Heimsmynd - 01.06.1991, Page 76

Heimsmynd - 01.06.1991, Page 76
sanss -i-=- *- -5 * S í iS" *"«p,esT' 5«, fnrstióri Ólatur, alþingismaöur á Allgeirsvollum, Eiriku , nrpstaskólakennari 09 alþingismaður, Gunnlaugur, Reykholti, og Eggert hæstarettardoman. nóShS‘ 1926t Bein',yrir af,an er Eiríkur Briem Pé/uríí Ásthilí ríðar VÍð hana má meöal annars siá ' 00 S , h0r einSSOn ,rá Bllt,ut,a|. afa hennar tp9n0mmei mnöurætt' 09 Bríeti Bjarnhéöinsdóttur tengdamoður hennar. Börnin sem sitja eru svstkini bruðarinnar, þau Guðrún Briem, Pétur J. Thorsteinsson siðar sendiherra, og Eiríkur Briem, síðar forstjóri ’ Landsvirkjunar. Gunnlaugur Claessen lækn- ir, Eggert Claessen banka- stjóri og María Kristín Cla- essen, kona Sigurðar Thor- oddsen verkfræðings (móðir Gunnars forsætisráðherra). 1920), vel gefin og hagorð kona en mikil hagmælska hefur fylgt mörgum af Briemsætt. Hún giftist Davíð Guðmundssyni, sem lengst af var prestur á Hofi í Hörgárdal. Meðal barna þeirra: a. Elsti sonurinn var hinn frægi náttúrufræðingur og þjóð- fræðasafnari Ólafur Davíðsson (1862-1903). Þekktasta verk hans er íslenskar gátur, skemmtanir, vikivakar og þulur. Hann drukknaði kornungur í Hörgá. b. Ragnheiður Davíðsdóttir (1864-1937) húsfreyja í Fagra- skógi var annað barn Ólafs og Dómhildar. Hún var gift Stef- áni Stefánssyni, bónda og alþingismanni. Langfrægasta barn þeirra var Davíð Stefánsson (1895-1964), skáldið frá Fagra- skógi, sem var ástmögur þjóðarinnar og þjóðskáld um sína tíma, allt frá því að fyrsta ljóðabók hans, Svartar fjaðrir, kom út árið 1919. Davíð bjó á Akureyri og var þar bókavörður Amtsbókasafnsins. Hann er einn af þremur stórskáldum Briemsættarinnar en hinir eru Hannes Hafstein og Valdimar Briem (sjá síðar). Meðal systkina Davíðs frá Fagraskógi voru Þóra Stefánsdóttir (1891-1981) á Hjalteyri (amma Árna Kol- beinssonar (f. 1947), ráðuneytisstjóra í Reykjavík), Stefán Stefánsson (1896-1955) lögfræðingur, alþingismaður Sjálfstæð- isflokksins og bóndi í Fagraskógi (meðal barna hans er Stefán Stefánsson (f. 1932), bæjarverkfræðingur á Akureyri, sem aft- ur er faðir Davíðs Stefánssonar (f. 1964), formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna) og Valdimar Stefánsson (1910-1973), saksóknari ríkisins (börn hans eru Andrés Valdimarsson (f. 1937), sýslumaður Arnesinga, og Ragnheiður Valdimarsdóttir (f. 1941), kona Hannesar Hafstein, sendiherra í Genf (sjá Haf- steinsætt, HEIMSMYND 7. tbl. 1989)). HARALDUR Á BÚLANDSNESI - KLÓKUR LANGAFI DAVÍÐS ODDSSONAR 2. Haraldur Briem (1841-1919) var annað barn þeirra Ólafs, timburmeistara á Grund, og Dómhildar. Hann nam trésmíði eins og faðir hans og lágu leiðir hans austur á firði. Þar dvaldi hann um hríð á prestssetrinu á Hofi í Álftafirði þar sem hann tók að sér viðgerð kirkjunnar. Varð hann þá skotinn í dóttur prestsins, Þrúði Þorsteinsdóttur, og giftust þau 1864. Þau hófu búskap á Rannveigarstöðum í Álftafirði en bjuggu síðar á Búlandsnesi í 20 ár. Haraldur var oddviti, hreppstjóri, sýslu- nefndarmaður og forustumaður um flest mál sveitar sinnar. Hann þótti læknir ágætur og slyngur málafærslumaður. Sem dæmi um það má nefna fræg málaferli í Hornafirði. Deildu þar tveir hreppar um sveitfesti þurfalings. Annar hreppurinn fékk Harald í lið með sér. Hann var tregur til, en lét þó til leiðast og vann málið. Sagði hann oddvitanum að hann vildi fá greiðslu fyrir að vinna svo vafasamt mál. Oddvitinn brást illa við og neitaði greiðslu. Haraldur sneri sér þá til hins oddvitans og sagði honum, að þeir hefðu tapað málinu fyrir klaufaskap, og enn mætti bæta úr því, ef málið væri tekið upp aftur. Samdist svo um með þeim að Haraldur tæki við málinu og fengi 100 krónur, ef hann ynni það, annars ekkert. Haraldur fékk málið tekið upp að nýju og vann það. Haraldur var lang- afi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og máski sækir Davíð eitthvað af visku sinni til þessa forföður síns. Meðal barna Haralds og Þrúðar var: ODDUR LÆKNIR OG FORELDRAR HANS a. Valgerður Briem (1879-1961), amma Davíðs Oddssonar. Hún var lágvaxin kona, smáfríð og með dökkt litaraft. Val- gerður stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík 1901 til 1902, en um það leyti var ungur maður austan úr sveitum í ljósmyndanámi í bænum og lágu leiðir þeirra saman. Hann hét Ólafur Oddsson frá Sámsstöðum í Fljótshlíð og var í læri hjá Árna Thorsteinssyni, ljósmyndara og tónskáldi. Ólafur þessi var léttur í lund og hafði jafnan gamanyrði á vörum. Þau Valgerður og Ólafur giftust 17. júní 1905 og settust að á Búð- um í Fáskrúðsfirði þar sem Ólafur stundaði ljósmyndun. Árið 1907 sigldi hann utan til Kaupmannahafnar til frekari full- komnunar í iðn sinni. Þau fluttust til Reykjavíkur haustið 1913 og bjuggu að Þingholtsstræti 3 og hafði Ölafur ljósmyndastofu sína á heimili þeirra. Síðustu ár ævi sinnar vann Ólafur á bæj- arstjórnarskrifstofum Reykjavíkur. Hann hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og fylgdi Sjálfstæðisflokknum fast að málum. Á heimili þeirra Valgerðar og Ólafs í hjarta Reykjavíkur var gestkvæmt og öllum veitt þar höfðinglega. Á gamals aldri rifjaði Valgerður oft upp heimsóknir skáldanna Davíðs Stef- ánssonar, frænda síns, en þau voru systkinabörn, og séra Valdimars Briem, föðurbróður síns, og fleiri ættmenna í Þing- holtsstrætið. Þau Valgerður og Ólafur eignuðust fimm dætur sem upp komust en engin þeirra giftist eða átti börn. Þær bjuggu allar í Reykjavík en eru nú látnar. Synirnir voru tveir. Sá eldri var Haraldur Briem Ólafsson (1908-1989), bankaritari í Reykja- vík. Dóttir hans er Þuríður Haraldsdóttir (f. 1945), skrifstofu- maður á Selfossi, gift Snorra Jens Ólafssyni framkvæmda- stjóra. Yngri sonurinn var Oddur Ólafsson (1914-1977), læknir £ Reykjavík. Hann var námsmaður með ágætum og í fremstu 76 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.