Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Blaðsíða 7

Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Blaðsíða 7
7 STEFNUMÓTANDI ÁÆTLUN RÍKISINS OneSystems® sími: +354 660 8551 | fax: +354 588 1057 www.onesystems.is | one@onesystems.is OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum sveitarfélaga og þjónustu við íbúa VELJU M ÍSLENST - VELJU M ÍS LE N SK T -V EL JUM ÍSLENSKT - Þróunarstefna OneSystems styður MoReq2, kröfur evrópulanda um gagnsæi, rekjaleika og öryggi. Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneSystems hefur hannað og rekur yr 40 gagnvirkar þjónustugáttir af ýmsum toga, víðsvegar um landið hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum. Þar á meðal eru: Íbúagáttir, starfsmannagáttir, nefndarmanna- og gagnagáttir. Auktu aðgengi gagna og gagnsæi ákvarðanatöku með öruggu og rekjanlegum hætti. Stórauktu þjónustu án þess að auka yrbyggingu og sparaðu með skilvirkari stjórnun mála. Gagnvirkar þjónustugáttir Upplýsingagátt Portal Information Vefgátt fyrir íbúa Citizen Nefndarmannagátt Committee Starfsmannagátt Employee Self-Service Portal Project Verkefnavefur ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN ORKUSJÓÐUR Orkusjóður auglýsir styrki til uppsetningar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla við gististaði Ríkisstjórn Íslands hefur lagt fram aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Markmiðið með áætluninni er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni kolefnisbindingu þannig að Ísland geti staðið við markmið Parísarsamningsins til 2030 og markmið ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutleysi árið 2040. Eitt af áhersluatriðum áætlunarinnar eru orkuskipti í samgöngum sem er stærsti losunarþátturinn sem snýr að beinum skuldbindingum Íslands. Markmiðið með verkefninu er að fjölga hleðslustöðvum við gististaði þannig að mögulegt verði að auka hlutdeild rafbíla í ferðaþjónustu. Þeir gististaðir sem falla undir liði (a) og (b) í 4 gr. reglugerðar nr. 1277/2016, geta sótt um styrki til uppsetninga á hleðslustöðvum. Við úthlutun styrkja verður miðað við að: • Verkefnið leiði til uppsetningar á hleðslustöðvum í öllum landshlutum þannig að notendur rafbílaleigubíla geti ferðast um landið með öruggu aðgengi að hleðslustöðvum á næturstað. • Þegar eiri en einn sækir um uppsetningu stöðva á sama svæði, þá er sá umsækjandi valinn þar sem kostnaður við uppsetningu er lægstur miðað við fjölda gesta sem nýtt geta hleðslustöðina • Við uppsetningu hleðslustöðva verði hugað að aðgengi fatlaðra Til úthlutunar í eru 50 m.kr. Eingöngu eru veittir fjárfestingarstyrkir og geta styrkir hæst numið 50% af áætluðum kostnaði verkefnis. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2019. Rafrænar umsóknir sendist um þjónustugátt af vef www.os.is Staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar en 15. október 2019 Nánari upplýsingar fást hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg, 603 Akureyri. Sími: 569 6083. Netfang: jbj@os.is. Upplýsingar og gögn um stefnumótandi áætlun ríkisins er m.a. að finna í samráðsgáttinni og á stjórnarráðsvefnum. um á síðustu tveimur til þremur árum eða svo.“ Þarna er Valgarður að vísa meðal annars til skýrslu „Eyrúnarnefndarinnar“ sem kom út fyrir um tveimur árum, auk skýrslu um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og tekjustofnakerfið, sem einnig hefur verið fjallað talsvert um. „Þá höfum við einnig verið að horfa til ræðu ráðherra, sem hann flutti á síðasta landsþingi sambandsins, sem og stefnumörkunar sambandsins 2018-2022.“ Hvítbókar að vænta innan skamms Grænbókin lýsir gróflega stöðu sveitarstjórnarstigsins í 10 köflum. Auk þess eru settar fram 50 spurningar sem starfshópurinn telur gagnlegar til að draga fram sjónarmið sveitarstjórna um inntak og áherslur vegna stefnumótunarinnar. „Sjálf stefnan mun svo líta dagsins ljós í Hvítbók sem kemur út nú bráðlega, þegar við höfum lokið við að fara yfir þær umsagnir sem bárust um Grænbókina í samráðsgáttinni,“ segir Valgarður. Í Grænbókinni eru sett fram drög að þremur markmiðum, sem eru í fyrsta lagi að sveitarfélögin séu öflug og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi, í öðru lagi að réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu sé jafnt og í þriðja og síðasta lagi að verkaskipting og ábyrgð sveitarfélaga sé skýr og sjálfsstjórn þeirra virt. Þá verður stefnan einnig að taka mið af annarri stefnumótun hins opinbera, þar á meðal samgönguáætlun, byggða- og sóknaráætlunum og fjármálaáætlun ríkisins. Skýr markmiðssetning skiptir öllu Mikilvægasta markmið þessa umfangsmikla samráðsferlis er að sögn Valgarðs, að endanleg stefna byggi á skýrum markmiðum. „Þetta er stefnumótandi áætlun og skýr markmiðssetning skiptir því öllu, ekki hvað síst þegar að árangursmati og endurskoðun stefnunnar kemur, en áætlunina ber að endurskoða á þriggja ára fresti. Henni fylgir jafnframt aðgerðaáætlun til fimm ára í senn og við hverja aðgerð verða sett markmið sem tillögur um aðgerðir verða tengdar við ásamt árangursmælikvörðum.“ Hvítbókin verður í umsagnarferli fram í september og upp úr henni verður síðan unnin þingsályktunartillaga sem ráðherra leggur fram á næsta haustþingi. Eins og fyrr segir þá hefur sambandið boðað til aukalandsþings þann 6. september, en að sögn Valgarðs er það algjört lykilatriði að sveitarfélögin fái tækifæri til að fjalla um málið áður en það fer fyrir Alþingi. Hann hvetur jafnframt sveitarstjórnir til að taka Hvítbókina til umfjöllunar þegar hún verður birt í samráðsgáttinni og að gera framkomnar ábendingar og athugasemdir aðgengilegar fyrir starfshópinn með umsögn um málið. „Með þessu móti ætti ráðherra að hafa skjal í höndum sem hann getur byggt á þegar hann leggur málið fyrir Alþingi í haust.“

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.