Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - jun 2019, Qupperneq 22

Sveitarstjórnarmál - jun 2019, Qupperneq 22
22 SVEITARSTJÓRNARMÁL Íbúar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi munu kjósa um það í haust hvort þeir kæri sig um að búa í einu og sama sveitarfélaginu. Björn Ingimarsson er bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði og formaður samstarfsnefndar sveitarfélaganna sem hefur leitt undirbúning að hugsanlegri sameiningu sveitarfélaganna. Hann fer ekki dult með skoðun sína á því hvort sameina eigi sveitarfélögin fjögur. “Ég er sannfærður um að sameining yrði íbúum þessara sveitarfélaga til góðs. Það myndi auka verulega slagkraft okkar í baráttu fyrir hagsmunamálum íbúanna, hvernig sem á það er litið,” segir Björn. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður, Djúpavogshreppur og Borgarfjarðarhreppur. Það yrði ekki fjölmennasta sveitarfélag landsins. Samanlagður íbúafjöldi var um 4.800 manns um síðustu áramót. Þar af búa 3.600 á Fljótsdalshéraði. Nýja Kosið um sameiningu á Austurlandi – nærsamfélögin fá heimastjórn Eftir Garðar H. Guðjónsson sveitarfélagið yrði hins vegar hið stærsta á landinu sé litið til landrýmis því sveitarfélögin fjögur hafa nú skipulagsvald yfir um 11 þúsund ferkílómetrum lands. Meðal annars vegna mikilla fjarlægða í sveitarfélaginu er áformað að kosnar verði sérstakar heimastjórnir sem fara með ákveðin völd í nærsamfélögunum. Kynning og kosningar í haust Tólf manna samstarfsnefnd, skipuð þremur fulltrúum frá hverju sveitarfélagi, hefur undanfarna mánuði unnið ötullega að undirbúningi íbúakosningar um sameiningu. Hún skilaði nýverið ítarlegri skýrslu ásamt tillögu að dagsetningu íbúakosningar sem sveitarfélögin fengu til umfjöllunar nú í júní. Samkvæmt tillögu nefndarinnar verður kosið um hugsanlega sameiningu í haust. Kynningarfundir fyrir íbúa verða jafnframt haldnir í aðdraganda kosningarinnar, líklega í ágúst eða september en að minnsta kosti átta vikum áður en gengið verður til kosninga. Björn segir að ekki liggi fyrir tillögur um hugsanlegt nafn á nýju sveitarfélagi en unnið hefur verið að undirbúningi undir vinnuheitinu Sveitarfélagið Austurland. Verkefnið hefur sérstaka vefsíðu, svausturland.is. Hugað verður í alvöru að nafni þegar ljóst verður hvort af sameiningunni verður eða ekki. Íbúar jákvæðir Sveitarfélögin fjögur hafa nú þegar talsverða samvinnu sín á milli. Þau hafa sameiginlegt félagsmálaráð og annast Fljótsdalshérað félagsþjónustu fyrir þau öll. Þau hafa jafnframt samvinnu um brunavarnir ásamt fleiri sveitarfélögum. Sveitarfélög á Austurlandi hafa verið iðin við að sameinast í gegnum tíðina. Á því svæði sem nú myndar Fjarðabyggð voru níu sveitarfélög árið 1987. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til við sameiningu þriggja sveitarfélaga 2004. Og nú er stefnt að því að fækka enn sveitarfélögum á Austurlandi. Þau eru nú sjö talsins en yrðu fjögur eftir sameiningu. Íbúar reyndust mun jákvæðari í garð sameiningar en samstarfsnefnd sveitarfélaganna gerði upphaflega ráð fyrir. (Egilsstaðir, ljósm. Fljótsdalshérað).

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.