Sveitarstjórnarmál - jún. 2019, Blaðsíða 17
17
Hvetur ungt fólk til dáða
„Að sjálfsögðu hvet ég ungt fólk til að
taka þátt í stjórnmálum. Stjórnmálamenn
eiga að vera í forsvari fyrir alla hópa
þjóðfélagsins og er ungt fólk stór partur
af þjóðfélaginu og ég tel engan betri í
að fara með sjónarmið unga fólksins en
unga fólkið sjálft. Rétt eins og aðrir hópar
þekkja best sín sjónarmið og fara fyrir
þeim“, segir Matthías aðspurður hvort
hann hvetji ungt fólk að fara í stjórnmál.
Líður best í sveitinni
Matthías er ánægður að eiga heima í
sveit á Blesastöðum enda segist honum
líða best heima enda búi staðurinn yfir
Matthías með systkinum sínum við
stúdentsútskriftina í vor en það eru þau
Gunnlaugur og Lára. (Ljósm.: Lára Jónsdóttir).
Mattías á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
þar sem hann finnur sig vel og hefur verið vel tekið af
sveitarstjórnarfólki, sveitarstjóra og íbúum. (Ljósm.: Magnús Hlynur
Hreiðarsson).
YNGSTI SVEITARSTJÓRNARMAÐUR LANDSINS
Áhugi Matthíasar á stjórnmálum hófst
þegar hann byrjaði í Fjölbrautaskóla
Suðurlands (FSu) á Selfossi en þar
var hann meðal annars gjaldkeri
nemendafélagsins og síðan formaður.
„Þessi störf voru virkilega skemmtileg og
þroskandi. Ég fór að læra um stjórnsýslu
og fleira í gegnum námið í FSu og
áhugi minn liggur þar. Björgvin Skafti
Bjarnason , oddviti setti svo vorið 2018
inn Facebook færslu um fyrsta fund O-
lista og ég ákvað að mæta og mætti á
alla fundi eftir það. Ég tók virkan þátt í
starfnu og sagðist vera tilbúinn að taka
sæti en bjóst hins vegar aldrei við því
að fá tækifæri á 3. sætinu enda ungur
og óreyndur. Það er hins vegar svo
skemmtilegur uppgangur í stjórnmálum
í dag að öll sjónarmið fá að njóta sín og
ungt fólk er byrjað að fá tækifæri, ég greip
mitt og vann hörðum höndum við það
að ná kjöri og það endaði eins og það
endaði og er ég þakklátur fyrir það“, segir
Mattías þegar hann var beðin að rifja upp
félagsmálaáhuga sinn og framboðið í
sveitarstjórnarkosningunum.
Fjölskylda og vinir mikilvægir
Í sveitarstjórn Skeiða- og
Gnúpverjahrepps sitja fimm fulltrúar.
Matthías situr í þriggja manna meirihluta
og er stoltur af því að hafa náð inn í
sveitarstjórn í fyrstu tilraun. „Þetta byrjaði
fyrst í augum sumra sem eitthvað smá
“flipp” og fólk hafði bara gaman að því
að svona ungur maður væri í framboði.
Þegar fólk sá hvernig við á listanum
unnum að þessu og hversu mikinn áhuga
ég hef á nærumhverfinu þá kom smá
spenna í þetta og fjölskylda og vinir stóðu
allan tímann við bakið á mér og höfðu
fulla trú á mér og okkar sjónarmiðum.
Sigrinum var vel fagnað og kannski ekki
réttur vettvangur að lýsa því ítarlega hér
en þetta var skemmtilegt kvöld“, segir
Matthías og hlær.
Ekkert mál að vera yngstur
Mattías segist vera stoltur af því að
vera í sveitarstjórn og þar með yngsti
sveitarstjórnarmaður landsins. „Ég pæli
í raun ekkert í því heldur er ég bara að
reyna að vinna mína vinnu með hag íbúa
að leiðarljósi eins og hver annar fulltrúi.
Auðvitað koma upp stundir þar sem
það er gert grín af þessu eða í eitthvað
í þá áttina, enda verður maður að vera
með breitt bak, en það er bara brot
af fólki, flestallir taka manni vel og sjá
mig ekki sem yngsta mann heldur bara
hreppsnefndarfulltrúa“.
Unga fólkið og málin þeirra
Þegar Matthías er spurður um helstu
áherslumál hans í sveitarstjórn er hann
fljótur að svara. „Mínar áherslur eru
aðallega á sviði íþrótta- og tómstunda,
upplýsingatækni og húsnæðismála.
Allt málefni, sem tengjast reyndar ungu
fólki en þessi mál eru mér mikilvægust
í dag, svo þegar þau komast í höfn er
ótæmandi listi af hlutum sem ég myndi
vilja koma í gegn. Nú erum við að vinna
að meiri samvinnu í íþróttamálum í
uppsveitum, betra upplýsingaflæði
til íbúa í gegnum samfélagsmiðla og
uppbyggingu húsnæðismarkaðsins svo
ég nefni eitthvað“. Og Matthías bætir
við. „Umhverfismálin eru óhjákvæmilega
mikilvægustu mál heimsins og ættu
að vera efst í huga allra. Síðan er ég
alltaf að koma mér meira og meira inn
í skipulagsmál og stjórnsýslu enda
eru skipulagsmál stór hluti af þessu.
Sorpmálin, skólamálin og uppbygging í
Þjórsárdal eru síðan spennandi mál sem
er verið að vinna að“.
Skipulagsmálin eru flókin
Matthías er búin að sitja í rúmlega ár í
sveitarstjórn, hvað hefur komið honum
helst á óvart við setuna og er eitthvað
sem hann átti alls ekki von á eða er
þetta allt eins og hann hélt að það
væri? „Það kemur mér á óvart hve flókin
skipulagsmál eru og hve erfitt er fyrir
fólk að vinna sig í gegnum þau. Ég vissi
að þau taka tíma en aldrei grunaði mig
hve lengi sum mál geta
verið í ferli. Það kom
mér annars ekkert mikið
meira á óvart, nema
kannski hve heimilislegt
þetta er allt saman í
svona litlu sveitarfélagi,
sem ég tel kost“.