Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - jun 2019, Síða 13

Sveitarstjórnarmál - jun 2019, Síða 13
13 SVEITARSTJÓRNARMÁL gesta þeirra. Langisandur hlaut nýverið alþjóðlega umhverfisvottun, hinn svonefnda bláfána, í sjöunda sinn og er nú eina bláfánaströnd landsins. Meðal annarra augljósra kosta nýja byggingarsvæðisins eru nálægðin við Akraneshöfn, nálægð við vaxandi miðbæ og íþrótta- og útivistarsvæði. Örstutt verður í alla nauðsynlega þjónustu. Síðast en ekki síst munu íbúar á svæðinu búa að víðáttumikilli sjávarsýn til suðurs. Uppbygging í undirbúningi Að sögn Sigurðar Páls Harðarsonar, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar, er unnið að undirbúningi, skipulagningu og áfangaskiptingu uppbyggingar á reitnum. Hann segir ekki unnt að segja til um hvenær uppbygging á reitnum hefst eða hvenær henni verður lokið en telur ekki loku fyrir það skotið að hafist verði handa við Suðurgötu á næsta ári. Reiturinn markast einmitt af Suðurgötu í norðvestur, Jaðarsbraut í norður og Faxabraut í suður. Á reitnum eru einnig tvær bryggjur, auk landfyllingar. Ein mikilvæg forsenda þess að uppbygging geti hafist á Sementsreitnum er uppbygging Faxabrautar. Hún er þjóðvegur í þéttbýli og segist Sigurður Páll vonast til þess að Vegagerðin bjóði uppbyggingu hennar út síðar á þessu ári. Áætlaður kostnaður er 500-600 milljónir króna en brimvörn við götuna er miðuð við að sjávarborð muni hækka eins og spár gera ráð fyrir. Með uppbyggingu Faxabrautar yrði búið að loka reitnum á allar hliðar. Strompurinn féll Stórvirkar vinnuvélar verktakafyrirtækisins Work North hafa unnið að því undanfarin misseri að brjóta niður og fjarlægja gríðarlegan byggingarmassa Sementsverksmiðjunnar. Niðurrifið náði Bæirnir breytast Akranes er ekki eina dæmið um bæi á Íslandi sem hafa verið eða eru í þann mund að breytast verulega, svo sem með nýju miðbæjarskipulagi og byggingu nýrra miðbæjarkjarna. Sveitarstjórnarmál munu í næstu tölublöðum fjalla um fleiri slík dæmi og tekur blaðamaður gjarnan við ábendingum um áhugaverð umfjöllunarefni af þessu tagi í tölvupósti á netfangið gaji@ mmedia.is. hámarki, ef svo má að orði komast, þegar hinn víðfrægi Sementsstrompur var felldur með tveimur sprengingum fyrr á þessu ári. Hann hafði þá gnæft yfir byggðina í kring og verið helsta kennileiti Akraness um áratugaskeið. Í deiliskipulagi frá í mars 2017 var gert ráð fyrir að strompurinn fengi að standa nánast á miðjum reitnum. En þegar íbúar Akraness voru spurðir álits um hvort hann ætti að standa eða falla kom í ljós að yfirgnæfandi meirihluti vildi að hann færi. Sú varð sem sagt raunin. Eins og glögglega má sjá á þessum myndum þá gerbreyttist ásýnd Akraness þegar Sementsverksmiðja ríkisins vék af Sementsreitnum. (Ljósm.: Guðni Hannesson).

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.