Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - jun. 2019, Síða 19

Sveitarstjórnarmál - jun. 2019, Síða 19
19 SVEITARSTJÓRNARMÁL Hraðaspurningar Hvenær ertu fæddur og hvar? Ég er fæddur 9. maí 2000 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Hvað heita foreldrar þínir og systkini? Lára Bergljót Jónsdóttir og Bjarni Birgisson eru foreldrar mínir og síðan á ég 2 systkini, Lára Bjarnadóttir og Gunnlaugur Bjarnason. Uppáhaldsstaður á Íslandi? Þjórsárdalurinn er fallegur og margar góðar minningar þaðan, einnig eru Vestfirðirnir einstaklega fallegir. Fallegasti liturinn? Blár Besta íslenska hljómsveitin? Stuðlabandið ekki spurning. Hafragrautur eða Cherros ? Hafragrautur Uppáhalds talan? 12 Besti matur sem þú smakkar ? Lamb framreitt af pabba klikkar seint. Já eða nei við þriðja orkupakkanum? Stutta svarið er já held ég, þó ekki alveg ákveðinn. Með hvaða liðir heldur þú í ensku knattspyrnunni? Manchester United. Skemmtilegasti árstíminn? Sumar. Besta bílategundin? Flest allar tegundir frá Japan og Þýskalandi heilla mig. En er eitthvað að lokum sem Matthías vill koma á framfæri? „Já, ég vill bara enn og aftur hvetja ungt fólk til að demba sér í stjórnmálin ef áhuginn liggur þar og til hamingju Selfoss með Íslandsmeistaratitilinn í handbolta“. Viðtal: Magnús Hlynur Hreiðarsson. Mannvirkjamálin í félagsmálaráðuneytið Sú breyting var gerð í stjórnarráðinu um síðastliðin áramót að málefni mannvirkja og þar með Mannvirkjastofnun færðust frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu yfir til félagsmálaráðuneytisins. Mannvirkjastofnun hafði frá upphafi heyrt undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið eða frá 1. janúar 2011. Mannvirkjastofnun er félags- og barnamálaráðherra því til aðstoðar hvað varðar brunamál, rafmagnsöryggismál og byggingarmál. Stofnunin er stjórnsýslustofnun sem stuðlar að samræmdu byggingareftirliti um allt land, meðal annars með gerð leiðbeininga, skoðunarhandbóka og með beinum íhlutunarrétti ef byggingareftirlit sveitarfélaganna er ekki í samræmi við ákvæði laganna. Enn fremur annast stofnunin löggildingu hönnuða og iðnmeistara og gefur út starfsleyfi fyrir byggingarstjóra og faggiltar skoðunarstofur á byggingarsviði. Stofnunin sinnir einnig markaðseftirliti með byggingarvörum og tekur þátt í gerð íslenskra og evrópskra staðla á sviði byggingarmála. Mannvirkjastofnun hefur jafnframt eftirlit með því að slökkvilið séu skipulögð, búin tækjabúnaði og skipuð mannskap sem hafi nægjanlega menntun og þjálfun til að sinna hlutverki sínu. Meginþungi byggingareftirlits í landinu er í höndum sveitarfélaganna sem ráða byggingarfulltrúa til að sinna útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd byggingareftirlits. Gert er ráð fyrir að innan fárra ára verði allt byggingareftirlit framkvæmt af faggiltum aðila í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka sem Mannvirkjastofnun býr til. Þetta þýðir að annað hvort er byggingareftirlit, og þá aðallega yfirferð hönnunargagna og framkvæmd úttekta, framkvæmt af faggiltum skoðunarstofum eða af byggingarfulltrúum sem þá þurfa að hafa fengið faggildingu til að annast slíkt eftirlit.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.