Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - jún. 2019, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - jún. 2019, Blaðsíða 20
20 SVEITARSTJÓRNARMÁL Po rt h ön nu n / A P al m an na te ng sl Ég er 100% endurvinnanlegur Mig langar að endurvinna þig Endurvinnsla – í þínum höndum Það er í þínum höndum að ákveða hvaða úrgang þú ætlar að flokka og skila til endurvinnslu. Vel gæti reynst að byrja smátt en bæta svo smám saman við eftir því sem þú venst hugmyndinni. Í öllum sveitarfélögum er tekið á móti spilliefnum og langflest þeirra taka við pappa, pappír og plasti til endurvinnslu. Nánari upplýsingar og einföld ráð um endurvinnslu má sjá á www.urvinnslusjodur.is/endurvinnsluvika Um þessar mundir eiga sér stað róttækar breytingar á fyrirkomulagi þjónustu við fatlað fólk. Þessar breytingar eru að verulegu leyti drifnar áfram af Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (einnig nefndur Sáttmáli SÞ) sem verið er að innleiða hér á landi. Sambandið hefur fylgst með innleiðingunni og telur að Sáttmáli SÞ samrýmist vel þeirri áherslu sem íslensk sveitarfélög hafa lengi lagt á öfluga nærþjónustu sem svari þörfum íbúa. Þá hefur sýn sáttmálans á heildstæða, einstaklingsbundna nálgun hlotið mikinn hljómgrunn í því augnamiði að samþætta stærstan hluta velferðarþjónustu í nærumhverfi notenda. Þá eigi mat á þörf fyrir stuðning fyrst og fremst að stýra því hvaða úrræði eru veitt. Sveitarfélögin eru samstíga í innleið- ingunni og virk í því að leggja meginreglur sáttmálans til grundvallar við skipulag og framkvæmd félagsþjónustu. Meginstefið felur í sér að efla notendur og styðja þá til sjálfshjálpar; þjónusta sé þannig veitt á forsendum notandans en ekki „kerfisins“. Með þessu er undið ofan af forræðishyggju og stofnanavæðingu sem til skamms tíma einkenndi þjónustu við fatlað fólk í of ríkum mæli. Róttækum breytingum - sem jafnvel má jafna til byltingar - fylgja einatt áskoranir. Gagnvart sveitarfélögunum er fyrsta krefjandi verkefnið að mæta notandanum þar sem hann er staddur og tryggja að þjónustan sé raunverulega veitt á forsendum hans. Þá kalla leiðarljós sáttmálans á uppstokkun eldri stofnanaúrræða og umbreytingu á þjónustuferlum er til skemmri tíma geta falið í sér fjárhagslegar byrðar fyrir sveitarfélögin sem ábyrgðaraðila þjónustu. Notendasamningar Mikilvægt atriði í valdeflingu notenda er að þeim geti staðið til boða að ganga til samkomulags við ábyrgðaraðila um þá þjónustu sem veitt er. Með því er markvisst horfið frá því fyrirkomulagi að þjónustukerfið mæli út eitt og sama úrræðið fyrir alla notendur. Gerð notendasamninga hefur gefist vel í nágrannaríkjum með þeirri útfærslu að notandi fái úthlutað tilteknu fjármagni sem hann ráðstafar til þess að kaupa þjónustu. Í þeim löndum sem Íslendingum er tamt að bera sig saman við hafa þó ýmis vandkvæði komið upp sem mikilvægt er að horfa til og læra af við innleiðinguna hérlendis. Finna verður jafnvægi milli væntinga og þess sem raunhæft er að standi til boða við samningsgerð. Þá verður að tryggja ásættanlegt samræmi í því sem boðið er þannig að ekki komi upp álitamál um óeðlilega mismunun. Sérstaklega þarf að gæta þess að gerð notendasamninga skapi ekki eða viðhaldi aðstöðumun milli notenda. Áríðandi er til að mynda að þjónustunotendur á landsbyggðinni eigi síst lakari möguleika á því að nýta sér önnur form en þá hefðbundnu þjónustu sem starfsmenn sveitarfélaga veita í dag. NPA er valkostur Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er einn flokkur notendasamninga og mikilvægur valkostur við hefðbundið form á félagsþjónustu við fatlað fólk. Sé það sameiginleg niðurstaða notanda og ábyrgðaraðila þjónustu að þetta tiltekna þjónustuform henti vel til þess að mæta stuðningsþörfum er gengið til samningsgerðar um NPA. Fastákveðinn reglurammi gildir um NPA sem þjónustuform og er hann mun strangari en almennt gildir um notendasamninga. Það leiðir af þessum ramma af NPA mun ekki verða altækt þjónustuform, heldur virka sem valkostur þegar tilteknar forsendur eru uppfylltar til viðbótar því sem almennt gildir um notendasamninga. Þar er meginskilyrði að fatlaður einstaklingur stýri öllum þáttum þjónustunnar enda er það í mestu samræmi við þau markmið sem að er stefnt um valdeflingu notenda. Tryggvi Þórhallsson lögfræðingur á lögfræði- og velferðarsviði sambandsins. Sáttmáli SÞ um réttindi fatlaðs fólks – driffjöður breytinga

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.