Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Page 23
23
við sveitarstjórnarlög þar sem
samstarfsnefndinni var veitt umboð til að
gera tillögu um fyrirkomulag sameiningar
og dagsetningu íbúakosninga þar um.
Fjöldi starfshópa var skipaður til að
fjalla um einstök málefni og fyrirtækið
RR Ráðgjöf fengið til að annast
verkefnastjórnun. Samstarfsnefndin hefur
fundað 15 sinnum á um sjö mánaða
tímabili frá 1. nóvember 2018 til 27. maí
2019 eða að jafnaði tvisvar í mánuði.
Fundað með íbúum
„Við höfum unnið ansi stíft í
samstarfsnefndinni og í starfshópum.
Björn segir að fulltrúar sex sveitarfélaga
hafi sest niður haustið 2017 til að ræða
hugsanlega sameiningu. Auk áðurnefndra
sveitarfélaga komu Fljótsdalshreppur og
Vopnafjarðarhreppur að þeim viðræðum.
Skipaður var starfshópur og gerði
hann það að tillögu sinni að gerð yrði
skoðanakönnun meðal íbúa. Hún fór
fram í mars 2018. Reyndist afstaða íbúa
Fljótsdalshrepps og Vopnafjarðarhrepps
til sameiningar afgerandi neikvæð og
heltust þau þá úr lestinni. Íbúar hinna
fjögurra voru á hinn bóginn mjög jákvæðir
í garð sameiningar.
Formlegt ferli
Kosið var til sveitarstjórna vorið 2018
og þá um haustið settust fulltrúar
sveitarfélaganna fjögurra aftur á rökstóla.
Skipuð var samstarfsnefnd í október
2018 og síðan hafa hlutirnir gerst hratt.
Ekki var um könnunarviðræður að
ræða heldur formlegt ferli í samræmi
Nú í vor kynntum við niðurstöður
starfshópanna á fundum með íbúum
sveitarfélaganna. Fundirnir voru vel
sóttir og viðbrögð íbúanna almennt
mjög jákvæð við þeim tillögum sem fyrir
lágu. Annars vegar fór fram almenn
kynning á þessum fundum en síðari
hluti fundanna var með þjóðfundarsniði
þar sem einstök málefni voru rædd í
hópavinnu. Við fengum ýmsar ábendingar
frá þeim sem sóttu þessa fundi og
höfum unnið úr þeim. Í lok maí gekk
samstarfsnefndin svo frá skýrslu um
störf sín og forsendur fyrir sameiningu
og gerði tillögu til sveitarstjórnanna
fjögurra um dagsetningu íbúakosningar.
Sveitarstjórnirnar fá skýrsluna aðeins
til kynningar og skulu fjalla um hana á
tveimur fundum. Hins vegar þurfa þær
að taka afstöðu til þess hvenær skal
kjósa en ég geri ráð fyrir að kosning fari
fram seint í október næstkomandi eða
snemma í nóvember,“ segir Björn.
Verði sameining samþykkt er gert ráð
fyrir að kosin verði ný sveitarstjórn vorið
2020 og hún starfi fram að kosningum
sem verða 2022, að sögn Björns. Nýja
sveitarstjórnin mun þá nota tímann
fram að reglubundnum kosningum til að
aðlaga stjórnsýsluna að nýjum veruleika
í sameinuðu sveitarfélagi. Björn segir
hugsanlegt að kosið verði um nafn á nýja
Menn voru ekki alltaf
sammála en við höfum
haft tækifæri til að rökræða
ágreiningsefni og komast að
sameiginlegri niðurstöðu.
Samþykki íbúar í sveitarfélögunum fjórum sameiningu verður ný sveitarstjórn kosin vorið 2020. (Séð niður Lagarfljót að Snæfelli. Ljósm.
Fljótsdalshérað).
SAMEINING SVEITARFÉLAGA