Sveitarstjórnarmál - jun 2019, Qupperneq 25
25
Í samstarfsnefnd sveitarfélaganna sitja þrír fulltrúar frá hverju sveitarfélagi. F.v. Elvar
Snær Kristjánsson, Seyðisfjarðarkaupstað, Róbert Ragnarsson, RR ráðgjöf, Bergþóra
Birgisdóttir, Djúpavogshreppi, Gauti Jóhannesson, Djúpavogshreppi, Anna Alexandersdóttir,
Fljótsdalshéraði, Þorbjörg Sandholt, Djúpavogshreppi, Jakob Sigurðsson, Borgarfjarðarhreppi,
Helgi Hlynur Ásgrímsson, Borgarfjarðarhreppi, Hildur Þórisdóttir, Seyðisfjarðarkaupstað,
Aðalheiður Borgþórsdóttir, Seyðisfjarðarkaupstað, Jón Þórðarson, Borgarfjarðarhreppi, Björn
Ingimarsson, Fljótsdalshéraði og jafnframt formaður og Páll Björgvin Guðmundsson, RR
ráðgjöf. Á myndina vantar Vilhjálm Jónsson, sem leysti Eygló Björgu Jóhannsdóttur af sem
fulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar og Steinar Inga Þorsteinsson, Fljótsdalshéraði.
ánægjulegt hve mikill samhljómur er í
hópnum og á meðal íbúa, þótt menn hafi
ekki endilega verið samstíga í upphafi.
Ég átti von á mun meiri neikvæðni í
umræðum á íbúafundunum. Nú er þetta
fullundirbúið af okkar hálfu. Nefndin hefur
verið mjög virk og verkefnastjórarnir
staðið sig vel. Ég held að þessi vinna hafi
leitt til vænlegrar niðurstöðu,“ segir hann.
Aukinn slagkraftur
Björn er sem fyrr segir ekki í vafa um að
sameining verði sveitarfélögunum fjórum
og íbúum þeirra til farsældar.
„Ég er algjörlega sannfærður um
það. Sameining myndi auka slagkraft
sveitarfélaganna frá því sem nú er og
hjálpa okkur mikið í baráttunni fyrir
hagsmunamálum íbúanna. Það á til
dæmis við um byggða- og atvinnumálin,
sem eru íbúum hér á svæðinu ofarlega
í huga. Sameining gerir okkur kleift að
samnýta stjórnsýsluna og auka þjónustu
við íbúana. Við eyddum talsverðu púðri
í að fara yfir fjármál sveitarfélaganna
og komumst að þeirri niðurstöðu að
nýtt sveitarfélag muni standa traustum
fótum fjárhagslega. Svo í mínum huga
mæla allir mikilvægustu þættirnir með
sameiningu og að samstarfið verði áfram
gott við þau sveitarfélög sem kusu að
standa utan við þessa vinnu,“ segir Björn.
Það er ákaflega mikilvægt
að hver kjarni í nýju
sveitarfélagi hafi áhrif á sitt
nærsamfélag.
SAMEINING SVEITARFÉLAGA