Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Blaðsíða 39

Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Blaðsíða 39
39 www.landsnet.is RAFMAGNAÐ SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA bóginn sá, að tryggja ríkissjóði beint endurgjald vegna nýtingar hafsvæða í íslenskri lögsögu sem geti jafnframt staðið á móti kostnaði ríkisins við stjórnsýslu. Athugasemdir sveitarfélaga voru margvíslegar. Það var þó aðallega síðartalda frumvarpið sem mesti styrrinn stóð um, en í því er kveðið er á um stofnun sérstaks fiskeldissjóðs sem falið er að auglýsa árlega eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki vegna verkefna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði og þjónustu á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Samtökin hafa frá fyrstu tíð verið gagnrýnin á þetta fyrirkomulag sem að þeirra mati er til þess fallið að etja sveitarfélögunum saman í innbyrðis samkeppni um úthlutun. Meirihluti atvinnuveganefndar hefur stuðst við þau rök, að um sé að ræða afnot af hafsvæði sem liggi utan umráðasvæðis sveitarfélaganna. Því sé hvorki verið að svipta sveitarfélögum réttindum eða að vegið að öðru leyti að sjálfstæði þeirra. Hér kveður við kunnuglegan tón. Enn á ný munu sveitarfélög af landsbyggðunum eiga allt undir því að ná eyrum embættismanna, að öllum líkindum í Reykjavík, og sannfæra þá um að sú innviðauppbygging sem stefnt er að á hverjum stað fyrir sig sé réttlætanleg og á einhvern hátt frambærilegri en hjá næsta nágranna. Kjörnum fulltrúum sem sitja í umboði kjósenda á hverju svæði fyrir sig er ekki treystandi til að meta og ráðstafa fé til uppbyggingar innviða og þjónustu. Samtökin lögðu á það áherslu að koma sjónarmiðum þeirra á framfæri við atvinnuveganefnd á milli annarrar og þriðju umræðu um tekju. Hvort það hafi orðið til þess að atvinnuvegnefnd ákvað að endurskoða afstöðu sína í gjaldtökumálum skal ósagt látið, en í lokabreytingum meirihlutans á frumvarpinu var lagt til að heildarfyrirkomulag á gjaldtöku verði endurskoðað fyrir 1. janúar 2021. Hér er þó ekki nema hálfur sigur unninn og ljóst að sveitarfélögin verða að halda vel á málum á næsta ári, eigi sjónarmið þeirra að njóta viðunandi framgangs. Gjaldtaka af fiskeldismannvirkjum verði sambærileg við gjalddtöku af fasteignum á landi Samtök sjávarútvegssveitarfélaga leggja áherslu á að gjaldtaka af fiskeldismannvirkjum í strandsjó verði með sambærilegu móti og gjaldtaka af fasteignum á landi og að sveitarfélögum verði þar með tryggður sjálfstæður tekjustofn af fiskeldisstarfsemi. Samtökin benda jafnframt á að með frumvarpinu er farið gegn tillögum auðlindastefnunefndar frá 2011 og starfshóps um fiskeldi frá 2017 sem lagði til að 85% af auðlindagjaldi renni til uppbyggingar á innviðum á þeim svæðum sem nýtast við uppbyggingu fiskeldis. SAMTÖK SJÁVARÚTVEGSSVEITARFÉLAGA

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.