Fréttablaðið - 05.10.2017, Síða 8
VIÐSKIPTI „Við höfum ekki stórar
áhyggjur af því að það staflist
upp einhver bílamassi hér þó að
bílaleigurnar setji eitthvað inn á
markaðinn,“ segir Özur Lárusson,
framkvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins (BGS), aðspurður hvort
offramboð sé á notuðum bílum hér
á landi eða útlit fyrir slíkt.
Bílaleigur stíga nú varlega til
jarðar eftir miklar offjárfestingar
í bifreiðum, eins og kom fram í
Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins
um viðskipti og efnahagsmál, í gær.
Þar sagði að útlit væri fyrir að verð á
notuðum bílum gæti lækkað þegar
bílasölur færu að selja bifreiðarnar
en fjöldi þeirra hefur fjórfaldast á
síðustu sex árum. Í byrjun septem-
ber voru 25.850 bílaleigubílar á skrá.
„Einhverjar bílaleigur munu
halda að sér höndum og reyna að
nýta bílana lengur þannig að þessi
floti kemur ekki einn tveir og þrír
inn til sölu. Þær hafa líka breytt
aðeins verklagi sínu á síðustu árum
en áður var það alþekkt að það væru
útsölur á haustin á bílaleigubílum
en núna dreifist þetta betur yfir allt
árið,“ segir Özur.
„Á næsta ári verður þetta ekki
neitt til að hafa áhyggjur af og það er
mat okkar. Ef þessi túristasprengja
heldur áfram, og bílaleigurnar halda
áfram að kaupa það magn af bílum
sem þær hafa gert hingað til, þá á
einhverjum tímapunkti sjáum við
offramboð.“
BGS eru samtök sem samanstanda
af 155 fyrirtækjum eða bílaverk-
stæðum, bílasölum og umboðum
og öðrum sem bjóða vörur eða þjón-
ustu þeim tengdar. Özur bendir á að
verð á nýjum bílum hefur lækkað um
16 til 20 prósent það sem af er ári.
„Það fer alltaf seinna út á notaða
markaðinn en hins vegar er lækk-
unin þar að koma fram núna. Ég á
erfitt með að spá hvort það muni
lækka meira en það er möguleiki
að það gerist.“
Guðfinnur S. Halldórsson, eða
Guffi, eigandi Bílasölu Guðfinns og
bílasali til 49 ára, segist nú í fyrsta
sinn þurfa að vísa mögulegum við-
skiptavinum frá.
„Bílasölur eru í dag meira og minna
sneisafullar. Ég held að við séum að
fara inn í vetur þar sem verður miklu
meira af eldri bílum sem verða afskrif-
aðir því hinir koma til með að lækka
í verði,“ segir Guffi og segir að verð á
notuðum bílum sé enn of hátt.
„Þú getur fengið nýjan Hyundai
smábíl á 1.880 þúsund og þá kaupir
þú ekki notaðan tíu ára gamlan
sambærilegan fyrir 700 til 800 þús-
und. Það eru til 28 þúsund bílar af
2007 árgerðinni í landinu.“
haraldur@frettabladid.is
Áður var það
alþekkt að það væru
útsölur á haustin á bílaleigu-
bílum en núna dreifist þetta
betur yfir allt
árið.
Özur Lárusson,
framkvæmda-
stjóri Bílgreina-
sambandsins
Ég held að við séum
að fara inn í vetur
þar sem verður miklu meira
af eldri bílum
sem verða
afskrifaðir.
Guðfinnur S. Hall-
dórsson, bílasali
Óttast ekki offramboð
á notuðum bifreiðum
Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins óttast ekki að bílasölur muni fyllast
af notuðum bílaleigubílum á næstu vikum og mánuðum. Bílasali til 49 ára þarf
nú í fyrsta sinn að vísa fólki frá og segir að notaðar bifreiðar séu enn of dýrar.
Margar bílasölur eru nú yfirfullar af notuðum bílum og sala á nýjum hefur gengið vel. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓIK
VIÐSKIPTI Hugbúnaðarfyrirtækið
Azazo var tekið til gjaldþrotaskipta
í fyrradag. Félag í eigu Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins (NSA) keypti
rekstur fyrirtækisins úr þrotabúinu.
Sagt var frá því í Fréttablaðinu í
síðustu viku að eignir fyrirtækisins
hefðu verið kyrrsettar og það sett í
gjörgæslu. Brynja Guðmundsdóttir,
stofnandi Azazo og fyrrverandi for-
stjóri, lagði fram kyrrsetningar-
beiðni um miðjan síðasta mánuð
til tryggingar launakröfu sem hún
telur sig eiga á félagið.
Líkt og áður segir var rekstur
fyrirtækisins keyptur úr þrotabúinu
af félagi í eigu NSA. Sjóðurinn var
stærsti hluthafi hins fallna fyrir-
tækis. Fasteignir hafi hins vegar
orðið eftir í þrotabúinu.
„Azazo er mjög óvenjulegt fyrir-
tæki sem býður upp á hugbúnaðar-
lausnir sem margar stofnanir og
fyrirtæki eru mjög háð. Megintil-
gangurinn með ákvörðuninni var að
forða þeim hagsmunum sem hefðu
getað glatast,“ segir Friðrik Friðriks-
son, stjórnarformaður Azazo og full-
trúi NSA í stjórninni.
Aðilaskipti urðu að rekstrinum í
gær og mun ríflega helmingur starfs-
fólks fyrirtækisins halda starfi sínu.
Kaupverð er trúnaðarmál en Frið-
rik segir að það hafi verið sannvirði.
Miðað við aðstæður hafi það verið
ásættanlegt fyrir báða aðila.
„Með fyrirtæki sem þetta þá þarf
að bregðast hratt við. Verðmæti
hefðu getað glatast á einum degi.
Enginn hefði verið í forsvari fyrir
félagið nema slitastjórnin sem hefði
aldrei rekið félagið sjálf,“ segir Frið-
rik. „Aðalatriðið var að koma rekstr-
inum í skjól.“ – jóe
Azazo tekið til gjaldþrotaskipta
Rekstur Azazo var keyptur út úr
þrotabúinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
– fáðu meira út úr fríinu
Vila Galé Porto
Centro
BORGARFERÐ
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
84
3
43
PORTO
LJUBLJANA
VALENCIA
Frá kr. 79.695
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi með morgunmat.
23. nóvember í 3 nætur.
Frá kr. 49.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
12. október í 3 nætur.
Frá kr. 44.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
12. október í 4 nætur.
Stökktu
Stökktu
Frá kr.
44.995
m/morgunmat
Skelltu þér í
LISSABON
Frá kr. 59.995
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
16. nóvember í 3 nætur.
Stökktu
Allt að
39.950 kr.
afsláttur á mann
á flugsæti
m/gistingu
FY
RI
R2 1
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
SEVILLA
Frá kr. 69.395
m/morgunmat
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi.
9. nóvember í 3 nætur.
Melia
Lebreros
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann