Fréttablaðið - 05.10.2017, Side 19
Sinnuleysi Alþingis um mikilvæg hagsmunamál landsmanna tekur á sig ýmsar myndir. Ein
birtingarmyndin er styttan af Krist-
jáni IX Danakonungi þar sem hann
stendur framan við stjórnarráðið
fýldur á svip með útrétta hönd og
stjórnarskrá, „bætta flík, sem sniðin
var upprunalega fyrir annað land,
með öðrum viðhorfum, fyrir heilli
öld“ svo enn sé vitnað til orða Sveins
Björnssonar, fyrsta forseta Íslands,
í nýársávarpi 1949. Betur færi á að
þarna stæði stytta af Valtý Guð-
mundssyni alþm. sem lagði grunninn
undir heimastjórnina 1904 og ýmis
önnur helztu framfaramál landsins
um sína daga þótt það kæmi í hlut
Hannesar Hafstein að verða fyrsti
ráðherrann.
Annað mark um sinnuleysi
Alþingis er framhlið þinghússins
sem skartar enn skjaldarmerki og
kórónu danska konungsríkisins sem
Íslendingar skildu við 1944. Alþingi
ber utan á sér skömmina eins og
misheppnað húðflúr, þá skömm að
hafa von úr viti svikizt undan meira
en 70 ára gömlu fyrirheiti um nýja
stjórnarskrá. Þegar nýja stjórnar-
skráin nær fram að ganga skulum við
taka danska skjaldarmerkið niður af
þinghúsinu og setja skjaldarmerki
Íslands upp í staðinn, eigi síðar en
1. desember 2018 þegar við fögnum
100 ára afmæli fullveldisins. Við
skulum ekki halda upp á aldarafmæli
fullveldisins í skugga skammar.
Íslenzk stjórnmálamenning
Íslandi svipar enn til frumstæðra
ríkja í stjórnmálamenningarlegu
tilliti. Þingheimur horfðist loksins í
augu við þessa óþægilegu staðreynd
í september 2010 þegar hann sam-
þykkti einum rómi þingsályktun um
„að taka verði gagnrýni á íslenska
stjórnmálamenningu alvarlega og …
að af henni verði dreginn lærdómur.“
Þessi þingsályktun minnir á Eduardo
Duhalde, fv. forseta Argentínu, sem
sagði í viðtali við Financial Times
2002: „Stjórnmálaforusta landsins er
sjitt (hans orð, ekki mitt; stafsetning-
in er skv. Orðabók Menningarsjóðs),
og ég tel sjálfan mig með.“
Alþingi hefur svikizt undan eigin
ályktun frá 2010 um bætta stjórn-
málamenningu eins og það sveikst
undan eigin ályktun 2012 um að láta
fara fram rannsókn á einkavæðingu
bankanna. Í fyrra hrökklaðist ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknar frá völdum þar eð nöfn for-
manna beggja flokka reyndust vera í
Panama-skjölunum. Í síðasta mánuði
hrökklaðist ríkisstjórn undir forustu
Sjálfstæðisflokksins frá völdum
vegna leynimakks um barnaníðs-
mál. Hvergi örlar á iðrun eða eftirsjá
hvað þá heldur afsökunarbeiðni af
hálfu þeirra sem hrökkluðust frá og
gerðu íslenzk stjórnmál að athlægi
umheimsins eina ferðina enn.
Alþingi er í reyndinni rjúkandi rúst
eins og Þór Saari, fv. alþm., lýsir vel í
bók sinni Hvað er eiginlega að þessu
Alþingi? Birgitta Jónsdóttir alþm. tók
í sama streng í kveðjuræðu sinni á
Alþingi um daginn. Alþingi hegðar
sér á heildina litið eins og regnhlífar-
samtök stjórnmálaflokka sem hegða
sér aftur eins og hagsmunasamtök
stjórnmálamanna eins og Mikael
Karlsson, prófessor í heimspeki,
hefur lýst.
Í þessu ljósi þarf að skoða þing-
lokin um daginn eftir að ríkis-
stjórnin hrökklaðist frá. Þá komu
þingflokkarnir aðrir en Píratar og
Samfylkingin sér saman um að ræða
aðeins þau mál sem þeir gátu allir
Sjálfstæðisbaráttunni er ekki lokið
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG komið sér saman um að ræða. Sjálf-
stæðisflokknum með nýsprungna
ríkisstjórn í fanginu var með því
móti veitt neitunarvald yfir dagskrá
Alþingis. Var flutt vantraust á ráð-
herra? – sem sitja áfram í starfsstjórn
eins og ekkert hafi í skorizt. Nei. Var
nýju stjórnarskránni þokað nær settu
marki? Nei. Hafa þingmenn áhyggjur
af að heyja enn eina kosningabaráttu
skv. kjördæmaskipan sem 67%
kjósenda höfnuðu 2012? Ekki verður
það séð.
Ef tíu framboð berast til Alþingis
og fimm þeirra frá tæp 5% atkvæða
hvert fyrir sig þá detta tæp 25%
atkvæða niður dauð. Hér birtist
löskun íslenzks lýðræðis í hnotskurn
þegar ólögmætar þingkosningar
eru haldnar eina ferðina enn skv.
stjórnarskrá hinna framliðnu sem
var kolfelld í þjóðaratkvæðagreiðslu
2012. Ný skoðanakönnun MMR sýnir
að stuðningur kjósenda við nýju
stjórnarskrána er jafnvel enn meiri
nú (70%) en hann var 2012 (67%).
Gróf mismunun
Alþingi hegðar sér eins og drykkju-
sjúklingur í afneitun og þarf að fara
í meðferð. Batahorfurnar eru skárri
en á meðalheimili þar sem heimilis-
fólkið er varnarlaust og sjúklingur-
inn er sjálfur einráður um fram-
haldið. Kjósendur eru heimilisfólkið
í dæmi Alþingis og geta haft áhrif að
vissu marki. Áhrif þeirra eru þó tak-
mörkuð þar eð gildandi kosningalög
mismuna kjósendum gróflega og
tryggja mörgum frambjóðendum
örugg sæti og sumum flokkum sæti í
forgjöf. Þar eð gömlu flokkarnir hafa
splundrazt einn af öðrum, Sjálf-
stæðisflokkurinn í fyrra, Framsókn í
ár, munu dauð atkvæði nú væntan-
lega dreifast jafnar milli gamalla
flokka og nýrra. Það er framför. Eftir
stendur þó meingallað kosninga-
kerfi sem 67% kjósenda höfnuðu
2012. Sveinn Björnsson forseti vissi
hvað hann söng þegar hann sagði
1949: „Vonandi dregst eigi lengi úr
þessu að setja nýja stjórnarskrá.“
www.sindri.is I sími 567 6000
Smiðjuvegi 1 grá gata, Kópavogi
Skútuvogi 1, Reykjavík
EKKI BARA GÆÐI
25.900 m/vsk
Fullt verð 38.435
VINNUVETTLINGAR VETRAR-
ÚLPA
STUTTERMA-
BOLUR PEYSA
Vind og vatnsheldur
galli með teygju í
mitti.
Hnépúðavasar
HÁSKÓLA-
1.490 m/vsk
Fullt verð 2.460
3.900 m/vsk
Fullt verð 5.919
VETRAR-
BUXUR
SMÍÐA-
BUXUR
ÖRYGGIS-
12.900 m/vsk
Fullt verð 16.900
9.900 m/vsk
Fullt verð 15.799
14.900 m/vsk
Fullt verð 25.799
590 m/vsk
Fullt verð 980
KULDAGALLI
NOKKRIR LITIR
19.900 m/vsk
Fullt verð 31.518
8.995 m/vsk
Fullt verð 12.990
FÓÐRAÐIR
GALLABUXUR
1.290 m/vsk
Fullt verð 1.590
PRJÓNA-
HÚFASKÓR
Classic regular fit.
Há íseta, lausar yfir
læri og beinar niður.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7