Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 32
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Spunaverksmiðjan hóf starf-semi að Tyrfingsstöðum í júlí í sumar. Strax hefur hún
vakið athygli bæði hér á landi sem
erlendis. Hulda framleiðir prjóna-
garn úr sérvalinni íslenskri ull í
sauðalitunum. Þessa dagana er
annatími í sveitinni en Hulda ætlar
að gefa sér tíma til að vera gestur á
prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélags-
ins í kvöld en þar hittist prjónafólk
yfir handavinnu.
Hulda segir að þau hjónin séu
með sauðfjárrækt, um 250 kindur,
og nýti alla ull af sínu fé til að búa til
band. „Við stefnum að því að kaupa
einnig ull af nágrannabændum.
Okkar ullargarn er heldur mýkra en
lopinn sem hefur verið seldur hér
á landi. Með því að ráðast í að setja
upp verksmiðjuna getum við komið
fleiri afurðum af kindinni í verð.
Þar fyrir utan hef ég mikinn áhuga
á handverki og langar að viðhalda
gömlum hefðum. Svo vill maður
auðvitað auka virðingu fyrir þessu
dásamlegu hráefni sem íslenska
ullin er. Hún er alveg einstök,“ segir
Hulda. „Ég hef alltaf prjónað talsvert
en hef þó ekki mikinn tíma til þess
um þessar mundir,“ bætir hún við.
„Fyrir fimm árum fór ég að spinna
á rokk og fékk mikinn áhuga á því.
Stundum lita ég ullina líka. Ég hef
selt garnið hér frá heimili mínu og í
gegnum Facebook. Síðan erum við
að vinna að því að setja upp heima-
síðu þar sem garnið verður til sölu,“
útskýrir hún. „Ég ætla að kynna
garnið og það sem við erum að
gera á prjónakvöldinu og verð með
sýnishorn fyrir þá sem hafa áhuga.
Reyndar hefur áhuginn á garninu
verið mjög mikill um allan heim. Ég
hef fengið fyrirspurnir frá Evrópu,
Ameríku, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og
Japan. Verksmiðjan er ekki stór og
við erum nýbyrjuð með þessa starf-
semi svo hún er enn í þróun. Áhugi
á íslenskri ull er gríðarlega mikill og
fólki finnst starfsemin spennandi.“
Hulda segir að það hafi verið dýrt
að koma upp vélunum og það sé
mikil vinna að halda verksmiðjunni
gangandi. Við þurfum að mata
allar vélarnar og standa yfir þeim.
Maðurinn minn er vélstjóri og
aðstoðar mig við að halda vélunum
gangandi,“ segir hún.
Hulda segir að margir ferðamenn,
bæði innlendir og erlendir leggi
leið sína á bæinn til að forvitnast
um starfsemina. „Þetta er fyrsta
svona verksmiðjan á landinu og
algjört einsdæmi. Þeim, sem hafa
sett svona verksmiðjur upp í öðrum
löndum hefur gengið vel og við
vonum að sú verði raunin líka hér á
landi. Við fengum styrki til að koma
verksmiðjunni á laggirnar og erum
bjartsýn á framhaldið,“ segir hún en
Ístex tekur við allri ull frá bændum
og spinnur í Álafossgarnið. „Ef
bændur hafa áhuga á að vinna úr
eigin ull hafa þeir þurft að senda
hana til útlanda og hafa gert það,“
segir Hulda. „Þetta er búið að vera
eins og lygasaga frá því ævintýrið
byrjaði og hefur gengið mjög hratt
og vel. Starfsemin hefur farið fram
úr björtustu vonum og ekkert farið
úrskeiðis.“
Áhugi á íslenskri ull er mikill
Hulda Brynjólfsdóttir, sauðfjárbóndi og spunakona, rekur smáspunaverksmiðju að Tyrfingsstöðum
ásamt eiginmanni sínum, Tyrfingi Sveinssyni. Verksmiðjan ber hið skemmtilega nafn Uppspuni.
Hulda er sauðfjárbóndi. Hún leggur mikla áherslu á mjúka og góða ull.
Verksmiðjan hefur gengið vel og prjónaáhugamenn og -konur hafa sýnt þessu
nýja garni athygli. Fyrstu afurðirnar heita Hulduband og Dvergaband.
NAME IT Kringlunni og Smáralind
Við fögnum
afmæli!
Bjóðum afmælislínu
á frábæru verði.
Glaðningur og uppákomur
fyrir börnin um helgina.
Hlökkum til að sjá þig!
Minnum einnig á
Kauphlaup í Smáralind
og Kringlukast í
Kringlunni um helgina.
Góð tilboð!
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R