Fréttablaðið - 05.10.2017, Side 33
Treflar fara aldrei úr
tísku og setja flottan
svip á heildarútlitið.
Þegar Playboy-kóngurinn Hugh
Hefner er horfinn til feðra sinna er
gott að rifja upp hvernig Playboy-
kanínan varð til.
Playboy-kanína er gengilbeina
á Playboy-klúbbi. Eftir hæfnispróf
voru fyrstu Playboy-kanínurnar
frumsýndar við opnun Playboy-
klúbbsins í Chicago árið 1960.
Kanínubúningurinn var hannaður
af Zeldu Wynn Valdes og Hugh
Hefner með hliðsjón af heilla-
kanínu Playboy-veldisins sem er
íklædd smóking. Hann saman-
stendur af hlýralausu korseletti,
kanínueyrum, svörtum sokka-
buxum, hvítum kraga, þverslaufu,
manséttu og loðnum dindli.
Hefner sagði sjálfur að innblást-
urinn að kanínu Playboy-veldisins
kæmi frá veitingamanninum
Bernard „Bunny“ Fitzsimmons
sem rak veitingastaðinn Bunny’s
Tavern með léttklæddum gengil-
beinum þar sem Hefner var tíður
gestur á námsárum sínum við Ill-
inois-háskóla í Urbana.
Playboy
kanínan lifir
Þurrkur í húð gerir iðulega vart við
sig þegar kólnar í veðri. Rútínan
sem gagnaðist vel við húðum-
hirðuna í sumar gerir ekki lengur
saman gagn.
Ekki hækka um of í ofnunum.
Loftið inni verður þurrt og
þurrkar húðina.
Gott er að setja upp rakatæki
eða fylla krukku af vatni og stilla
upp við ofninn.
Ekki hanga lengi í brennheitri
sturtunni þótt það sé freistandi
á köldum morgnum. Heita
vatnið þurrkar húðina. Notið
milda sápu án ilmefna.
Eftir sturtuna er ráð að þurrka
húðina ekki með kröftugum
strokum og grófu handklæði
heldur strjúka mjúklega og bera
rakagefandi húðkrem á líkam-
ann meðan húðin er enn rök.
Berið rakagefandi handáburð á
hendurnar eftir hvern þvott.
Húðin á fótunum þornar oft
meira á veturna og því gæti þurft
að skipta yfir í þykkara krem á
fæturna þegar haustar.
Ef húðin er mjög þurr í and-
liti mætti hafa lengra á milli
skrúbbmaskameðferða.
Smyrja húðina
Treflar eru málið í vetur.
Ef það er eitthvað sem fer aldrei úr tísku og nýtist sérlega vel þegar kólnar í veðri, þá er það
hlýr og góður trefill. Fallegur trefill
getur sett mikinn svip á heildar-
útlitið, hvort sem hann er litríkur,
í mildum litum, með áberandi
mynstri eða látlausu prenti. Þótt
tískan taki almennt breytingum frá
ári til árs eru ekki miklar sveiflur
í treflatískunni þennan veturinn
nema hvað varðar liti. Í vetur
verða rauðir treflar áberandi, enda
er rautt tískuliturinn í ár. Treflarn-
ir koma bæði einlitir eða með mjög
stóru mynstri. Extra stórir treflar
koma sterkir inn en þeir hafa líka
þann kost að hægt er að slá þeim
um sig og nota sem sjal innandyra.
Töff treflar í vetur
www.lyfogheilsa.is
kringlunni
Við kynnum til leiks tvo nýja farða úr
Lingeri De Peau línunni, Aqua Nude og Cushion
Farðarnir eru léttir og rakagefandi.
20% afsláttur af öllum vörum frá Guerlain.
Guerlain sérfræðingur verður á staðnum og aðstoðar
þig við að nna hinn fullkomna farða fyrir þig.
Guerlain kynning í Lyfjum & heilsu,
Kringlunni 5. – 8. október
www.lyfogheilsa.is
kringlunni
www.lyfogheilsa.is
kringlunni
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7