Fréttablaðið - 05.10.2017, Qupperneq 42
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI „Við erum bara spenntir
fyrir verkefninu enda er þetta einn
stærsti og mikilvægasti leikur sem
við höfum spilað. Þetta verður
gaman,“ segir Ragnar Sigurðsson,
miðvörður íslenska landsliðsins
í fótbolta, en strákarnir okkar
mæta Tyrkjum í Eskisehir á föstu-
dagskvöldið. Þeir æfðu í síðasta
sinn í Antalya í gær en flugu svo til
Eskisehir undir kvöldið en þar fer
leikurinn fram.
Strákarnir okkar eru í öðru sæti
I-riðils í undankeppni HM 2018
og ráða örlögum sínum sjálfir er
varðar að komast í umspilið. Sex
stig tryggja okkar mönnum sæti
í umspilinu en gullpotturinn við
enda regnbogans er auðvitað sjálft
heimsmeistaramótið í Rússlandi á
næsta ári. Ísland komst á EM 2016
í Frakklandi og strákarnir eru stað-
ráðnir í að komast á annað stórmót.
Aftur í stórum séns
„Ég var að hugsa þetta fyrir svolitlu
síðan. Það getur hvaða landslið
sem er komist á eitt stórmót en það
er annað að sýna stöðugleika eins
og við erum að gera. Við komumst
í umspil, förum svo á stórmót og
erum núna aftur í stórum séns,“
segir Ragnar og bætir við:
„Það sýnir virkilega að þú ert með
gott lið ef þú ert að gera þetta trekk í
trekk. Þetta er bara geggjað. Ég veit
ekki nákvæmlega hvernig við erum
að gera þetta en það er góður andi
og samstaða og metnaður í þessu
liði og það er augljóslega að sýna
sig.“
Ísland vann Úkraínu, 2-0, í síð-
asta leik en tapaði þar áður á móti
Finnlandi ytra sem var mikið áfall.
Eftir tapið gegn Finnum var gerð
breyting á miðvarðaparinu en þá
fékk Ragnar nýjan mann sér við
hlið, Sverri Inga Ingason. Ragnar
var búinn að spila við hlið Kára í 27
mótsleikjum í röð.
Þetta var mjög skrítið
„Ég viðurkenni fúslega að þetta var
mjög skrítið. Það var skrítið að hafa
ekki Kára við hliðina á sér þar sem
við erum búnir að spila saman í sex
ár. Það vita samt allir hérna hvað
Sverrir getur. Þetta var samt vissu-
lega skrítið,“ segir Ragnar sem segir
Kára Árnason ekki hafa tekið pirr-
ing sinn út á öðrum.
„Auðvitað var Kári pirraður þegar
hann fékk þessar fréttir. Ef þú ert
ekki pirraður þegar að þú ert að
spila áttu ekki að vera að spila fót-
bolta eða íþróttir yfir höfuð. Kári
er fagmaður og lét þetta ekkert
bitna á liðinu þó svo að þetta væri
svekkjandi fyrir hann. Ég tók ekki
eftir neinu.“
Ísland spilaði við Tyrkland fyrir
tveimur árum í brjáluðum látum í
Konya og það má búast við annarri
eins stemningu í Eskisehir á föstu-
dagskvöldið.
Ekkert stress á okkur
„Ég veit ekki hversu mikið það mun
hjálpa að hafa verið hér áður. Það er
alltaf ákveðið sjokk að koma inn á
völl þar sem allt er geðveikt. Spurn-
ingin er bara hvort maður tekur það
með sér á jákvæðan eða neikvæðan
hátt. Maður getur orðið stressaður
eða notað þetta sem einhvers konar
hvatningu. Við erum með það reynt
lið að það verður ekkert stress á
okkur.“
Öll lið geta komist einu sinni á stórmót
Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, segir mikil gæði hjá Íslandi og að það sýni sig með því að liðið er enn þá
að gera góða hluti eftir hafa komist á EM 2016. Honum fannst skrítið að spila ekki með Kára Árnasyni á móti Úkraínu í síðasta leik.
Ragnar Sigurðsson hlustar á þjóðsönginn ásamt þeim Gylfa Þór Sigurðssyni, Hannesi Þór Halldórssyni og Aroni Einari Gunnarssyni fyrir leikinn á móti Úkraínu á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Skrifar frá
Antalya
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Ég veit ekki hversu
mikið það mun
hjálpa að hafa verið hér áður.
Það er alltaf ákveðið sjokk
að koma inn á völl þar sem
allt er geðveikt.
Ragnar Sigurðsson
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
- Fæst í apótekum -
Hunangsplástur og sárakrem með
hunangi. Hentar á allar tegundir sára.
Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár.
Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur.
www.wh.is
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R28
Nýjast
Domino’s-deild kvenna í körfu
Snæfell - Keflavík 63-77
Stigahæstar: Kristen Denise McCarthy
23/12 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir
14 - Brittanny Dinkins 26/7 fráköst/11 stoð-
sendingar, Birna Valgerður Benónýsdóttir
14, Thelma Dís Ágústsdóttir 12.
Haukar - Stjarnan 73-66
Stigahæstar: Cherise Daniel 18/10 fráköst/8
stoðs., Helena Sverrisdóttir 17/14 fráköst,
Rósa Björk Pétursdóttir 16 - Sylvía Rún Hálf-
danardóttir 16, Danielle Rodriguez 16.
Valur - Breiðablik 87-63
Stigahæstar: Alexandra Petersen 23/8
fráköst/6 stoðsendingar, Guðbjörg Sverris-
dóttir 17/8 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 15 -
Ivory Crawford 17, Auður Íris Ólafsdóttir 12.
Njarðvík - Skallagrím. 66-84
Stigahæstar: Hrund Skúladóttir 17, María
Jónsdóttir 12 - Carmen Tyson-Thomas
32/22 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
16, Fanney Lind G. Thomas 14.
Í dag
15.50 Armenía - Pólland Sport
15.50 Aserbaídsjan - Tékkl. Sport 2
18.35 England - Slóvenía Sport 2
18.35 N-Írland - Þýskal. Sport 3
18.35 Skotland - Slóvakía Sport 4
19.00 KR - Njarðvík Sport
20.45 HM Markasyrpa Sport 2
21.30 Safeway Open Golfstöðin
Domino’s-deild karla í körfubolta
19.15 Höttur - Stjarnan
19.15 Ke£avík - Valur
19.15 Tindastóll - ÍR
19.15 KR - Njarðvík
ERLINGUR TIL HOLLANDS
Erlingur Richardsson er tekinn
við hollenska karlalandsliðinu í
handbolta. Eyjamaðurinn skrifaði
undir þriggja ára samning við hol-
lenska handknattleikssambandið.
Erlingur var síðast við stjórnvölinn
hjá Füchse Berlin í Þýskalandi en
var rekinn þaðan fyrir tæpu ári.
Þar á undan þjálfaði hann West
Wien í Austurríki og hér heima
þjálfaði hann bæði hjá ÍBV og HK.
Pavel Ermol-
inskij og félagar
hans í KR hefja
titilvörnina
á heima-
velli á móti
Njarðvík í
kvöld.
BJARNI AÐSTOÐAR RÚNAR
Bjarni Guðjónsson verður
aðstoðarmaður Rúnars Kristins-
sonar hjá KR. Þeir þekkjast vel en
Bjarni lék undir stjórn Rúnars hjá
KR á árunum 2010-14. Á þeim tíma
vann KR tvo Íslandsmeistara-
titla og þrjá bikartitla. Bjarni
tók við KR af Rúnari haustið
2014 og stýrði Vesturbæjar-
liðinu fram á mitt sumar
2016 þegar hann var látinn taka
pokann sinn. Á síðasta tímabili
var Bjarni aðstoðarmaður Loga
Ólafssonar hjá Víkingi R.