Fréttablaðið - 05.10.2017, Page 56
SMALT
Einmitt það sem við öll höfum
beðið eftir – saltstaukur með Blue-
tooth. Reyndar er SMALT markaðs-
sett sem „centerpiece“ eða stofustáss
enda spilar tækið tónlist og kemur
fólki í gírinn með stemmingslýs-
ingu. En aðalvirknin er að útdeila
salti á „gagnvirkan máta“ – hvað sem
það nú þýðir.
IOT GANGRÁÐUR
Í ágúst innkallaði Matvæla- og lyfja-
eftirlit Bandaríkjanna inn um hálfa
milljón hjartagangráða vegna galla í
þeim sem gaf tölvuþrjótum greiðan
aðgang að þeim. Þetta hefði getað
haft í för með sér fjölda dauðsfalla
þar sem hakkararnir hefðu getað
fiktað við hjartslátt fólks. Hið svo
kallaða „Internet of Things“ (IoT)
eða sú lenska að troða nettengingu í
öll möguleg og ómöguleg tæki hefur
sínar dökku hliðar. Í sumar tókst
hópi hakkara að brjótast inn í tölvu-
kerfi spilavítis í Bandaríkjunum þar
sem þeir notuðu nettengt fiskabúr
til að finna glufu inn.
SNJALLBURSTI
Hair Coach hárburstinn dansar á
brúninni – hárbursti með skynjur-
um og appi sem mælir heilsu hárs-
ins og lætur þig vita hvernig skuli sjá
um makkann. Kannski er hér um að
ræða algjöra snilld – en eins og er oft
með svona tækjabúnað kemur ekki
fram á vefsíðunni hversu mikið
burstinn muni kosta en hann fer í
sölu núna í haust. Það er ákveðið
varúðarmerki.
REGNHLÍFARDRÓNI
Einfalt mál – dróni sem er í raun
fljúgandi regnhlíf sem fylgir þér
eftir hvert sem þú ferð og veitir þér
þægilegt skjól fyrir rigningunni. Frá-
bært! Hins vegar er kannski spurn-
ing með 1.600 punda verðmiðann,
það er ekkert víst að mörgum finnist
réttlætanlegt að eyða 230 þúsund
krónum í regnhlíf, sama hversu fín
hún er. Og það leiðir okkur að næsta
hlut.
LEVI’S SMART-JAKKI
Levi’s hefur loksins markaðssett
jakka saumaðan úr svokölluðu
snjallefni og með jakkanum er
hægt að stjórna símanum sínum
með erminni einni saman. Það er
óneitanlega mjög svalt – en á sama
tíma má alveg spyrja sig hvort 350
dollarar sé ekki dálítið hátt verð
fyrir jakka sem þú getur notað til að
skipta um lög. Auk þess má aðeins
þvo hann tíu sinnum.
NO PHONE ZERO
Eins og nafnið bendir til er No
Phone Zero ekki sími. Um er að
ræða plasthlut sem er í grófum
dráttum í laginu eins og snjallsími.
Frekar sniðugt bara.
RYKSUGUSKÓR
Á síðustu CES ráðstefnu sýndi fyrir-
tækið Denso ryksuguskó sem það
er að þróa. Þetta er mjög einfalt – á
meðan þú gengur um sjúga skórnir
upp drulluna og rykið sem þú stígur
á. Ekkert flókið við það og við á Líf-
inu bíðum gríðarlega spennt eftir
að geta keypt par enda verður ekki
þverfótað fyrir ryki hérna.
stefanthor@frettabladid.is
Framtíðin er
vonbrigðin ein
Svifbretti, flugbílar og vélmennaþjónar á hverju heimili. Þetta var
það sem við vildum að framtíðin væri. Framtíðin er núna og það
eina sem við fáum er rándýr djúsvél sem gerir ekki neitt og ísskápur
þar sem þú kemst á Facebook. Hér koma svo nokkur önnur dæmi:
Svona einhvern veginn lítur hún út, framtíðin sem við vildum.
Fiskunum gefið með annarri,
fiskabúrið hakkað með hinni.
Þetta fyrirbæri
hefur dugað ágæt-
lega hingað til.
Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
ÁSKRIFTIN
FYLGIR ÞÉR
Með sjónvarpsáskrift hjá 365 getur þú horft á
uppáhaldssjónvarpsefnið þitt, hvar og hvenær
sem er – því áskriftin fylgir þér 365ASKRIFT.is
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ