Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1974, Page 27
við Sambandshúsið. Ég man að við Auður fengum oft að
fara á fætur klukkan 6 og hjálpa pabba að kemba hestunum
og brynna þeim. Og pabbi og mamma hvíldu sig frá dags-
ins önn með því að fara í reiðtúra á kvöldin.
Mamma ásetti sér líka að vera góður leiðbeinandi hinna
mörgu, myndarlegu stúlkna, sem hjálpuðu henni við heim-
ilisstörfin, eftir því sem árin liðu. Hún gaf þeim gott for-
dæmi og góð heilræði eins og okkur systrunum. Ég minnist
þess, er hún sagði við unga stúlku austan af landi, sem ætl-
aði að fara að gifta sig og setjast þar að. ,,Blessuð mundu
nú að strita ekki of mikið. Þú átt líka að njóta lífsins.
Taktu þér frí á sunnudögum og farðu í reiðtúra. Maður
verður að grípa tækifærið, það gefst ekki nema einu sinni.“
Mamma bar hag hinna minni máttar ekki síður fyrir brjósti
en pabbi og bæði voru þau skörungar, ekki vantaði það.
Mamma hafði auk þess yndi af að fara í gönguferðir, en
pabbi vann meira en svo, að hann gæti tekið þátt í þeim
nema sjaldan."
Auður: „Pabbi vann ótrúlega mikið. Ég held, að hann
hljóti að hafa unnið á við tvo, allt sitt lif. Og svo var hann
alltaf með nýjar hugmyndir. En hann hafði líka þann hæfi-
leika að geta dottað andartak, ef tækifæri gafst, og vera
svo alveg hress. Og það var ómetanlegt, því maður sem
fer á fætur upp úr fimm en sofnar ekki fyrr en eitt eða tvö
- ja - það heldur engin venjuleg manneskja út.“
Gerður: ,,Ég tók líka oft eftir þvi, að hann gat talað í
símann, skrifað grein og sinnt manni, sem var staddur hjá
honum allt í senn. Það var eins og hann gæti haldið mörg-
um þráðum í einu. En hann naut líka hjálpar mömmu.
Þegar hann kom heim, þreyttur af löngum ferðalögum,
gerði hún sitt ýtrasta til þess, að hann gæti haft næði. Og
hún var alltaf reiðubúin að fara i ferðalög með honum,
eða taka á móti þeim gestum, sem hann langaði að fá. Og
þetta var raunar gagnkvæmt, því það sem mömmu langaði,
það var líka hans vilji.“
Auður: „Það var líka afskaplega gaman að fara með þeim
til útlanda. Við vorum t. d. öll saman eitt sumar í Noregi
23