Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 10
Sýrland Sýrlenskar uppreisnar-
sveitir yfirgáfu í gær al Wair-hverfi í
norðvesturjaðri borgarinnar Homs,
sem þeir hafa haft á valdi sínu í
nokkur ár.
Þeir sömdu við Sýrlandsstjórn um
að fá að fara óhultir frá borginni og
fylgdust bæði sýrlenskir hermenn
og fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
með brottför þeirra.
Borgarstjórinn í Homs, Talal Bar-
azzi , sagði að eftir samninginn yrði
Homs örugg borg, laus við byssur og
byssumenn.
Alls voru það nokkur hundruð
manns sem voru flutt frá borginni,
sumir með sjúkrabifreiðum. Fjöl-
skyldur uppreisnarmannanna fóru
einnig burt frá borginni. Fólkið hélt
sem leið liggur til yfirráðasvæða
uppreisnarmanna í norðvesturhluta
landsins.
Gegn uppgjöf uppreisnarmanna
lét stjórnin 35 fanga lausa.
Þessi niðurstaða þykir mikill sigur
fyrir stjórn Bashar al Assads Sýr-
landsforseta. Stjórnarherinn hefur
setið um borgarhlutann í nærri þrjú
ár og ítrekað gert loftárásir á íbúana
þar.
Á síðasta ári gerðu uppreisnar-
menn í gamla borgarhlutanum í
Homs sambærilegt samkomulag við
stjórnarherinn um vopnahlé gegn
því að fá að yfirgefa borgina.
Aðeins nokkrar vikur eru frá því
rússneski herinn hóf loftárásir á
uppreisnarmenn í Sýrlandi. Rússar
hafa ekki eingöngu beint árásum
sínum að vígasveitum Íslamska
ríkisins svonefnda, heldur einnig að
uppreisnarhópum sem notið hafa
stuðnings frá Vesturlöndum.
Íbúar hverfisins voru orðnir lang-
þreyttir á linnulausum hernaði í
nærri þrjú ár, en undanfarið hefur
stjórnarherinn haldið uppi mikilli
sókn á hverfið úr norðri og notið þar
stuðnings rússneska hersins.
Í al Wair bjuggu um 300 þúsund
manns við upphaf átakanna, en
meira en 200 þúsund þeirra hafa
fyrir löngu flúið átökin. Stjórnar-
herinn mun nú taka þetta hverfi á
sitt vald. Borgin verður þar með öll
komin undir stjórn Assads á ný.
Homs var lengi vel miðpunktur
uppreisnarinnar gegn Assad forseta
og stjórn hans.
Þessa dagana standa yfir í Sádi-
Arabíu viðræður nokkurra helstu
hópa sýrlenskra uppreisnarmanna,
þar sem þeir ætla að reyna að ná
samstöðu um kröfur sínar í hugsan-
legum friðarviðræðum við stjórn
Assads. gudsteinn@frettabladid.is
Stjórnarherinn í Sýrlandi náði
borginni Homs aftur á sitt vald
Uppreisnarmenn yfirgefa síðasta hverfi sitt í borginni eftir nærri þriggja ára umsátur stjórnarhersins með
linnulitlum loftárásum. Samið var um vopnahlé meðan uppreisnarmenn og fjölskyldur þeirra héldu burt.
Uppreisnarmenn komnir um borð í rútu sem flutti þá burt frá borginni Homs í gær. NordicpHotos/AFp
Vopnabúr Íslamska ríkisins
Amnesty International segir að Daish-samtökin, sem kalla sig Íslamska ríkið,
hafi í fórum sínum meira en hundrað tegundir af vopnum og skotfærum
Þessi vopn eru framleidd í meira en 25 löndum, en flest í Rússlandi, Kína,
Bandaríkjunum og ýmsum Evrópulöndum.
Stór hluti vopnanna var í eigu íraska hersins og fenginn fá Bandaríkjunum
eða Rússlandi og öðrum þáverandi austantjaldsríkjum.
Mest munar þar um vopn sem bárust til Íraks meðan Saddam Hussein var
þar við völd, ekki síst þegar Írakar áttu í stríði við Íran. Að minnsta kosti 34 ríki
sendu Írökum vopn á þessum tíma, en 28 þessara sömu landa sendu Írönum
einnig vopn.
Megnið af vopnum Íslamska ríkisins er sem sagt fengið úr vopnageymslum
íraska hersins, en einnig hafa vígasveitirnar komist yfir vopn í bardögum,
með ólöglegum vopnaviðskiptum og frá liðhlaupum í bæði Írak og Sýrlandi.
Þetta eru vopn af ýmsu tagi, allt frá léttum skotvopnum yfir í riffla, vél-
byssur, sprengjuvörpur og þungavopn ásamt brynvörðum hervögnum og
skriðdrekum.
Þessi vopn hafa vígasveitir Íslamska ríkisins notað til þess að fremja alls
kyns mannréttindabrot
bandaríkin Angela Merkel Þýska-
landskanslari er „maður ársins“ hjá
tímaritinu Time. Það þýðir að tíma-
ritið telur hana hafa verið áhrifa-
mesta einstakling ársins á heims-
vísu.
Er þar meðal annars vísað til
þeirrar forystu sem hún hefur tekið
innan Evrópusambandsins, svo sem
þegar tekist hefur verið á um flótta-
mannastrauminn undanfarið eða
hinn lamandi skuldavanda Grikk-
lands.
„Nú þegar stór hluti heimsins á
enn á ný í harðvítugum deilum um
jafnvægið milli öryggis og frelsis, þá
er kanslarinn að krefjast ansi mikils
af þýsku þjóðinni, og með fordæmi
hennar, okkur hinum einnig,“ segir
í umfjöllun tímaritsins.
Þetta er í fyrsta sinn í 29 ár sem
kona verður fyrir valinu. Síðast var
það Corazon Aquino, sem var for-
seti Filippseyja.
Meðal þeirra sem Time segir hafa
komið til greina við valið í ár eru
Abu Bakr al-Baghdadi, sem er leið-
togi Daish-samtakanna í Sýrlandi og
Írak, bandaríski forsetaframbjóð-
andinn Donald Trump og Hassan
Rouhani Íransforseti.
Einnig segir tímaritið hafa komið
til greina að velja mótmælendur
hreyfingarinnar Black Lives Matter
í Bandaríkjunum, sem hafa barist
gegn ofbeldi bandarísku lögregl-
unnar gagnvart þeldökkum íbúum
landsins. – gb
Merkel valin maður ársins
umhverfiSmál Forseti Loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
(COP21), Laurent Fabius, kynnti í gær
ný drög að hnattrænum samningi um
aðgerðir í loftslagsmálum, með þátt-
töku allra ríkja.
Í ræðu á stuttum fundi við það til-
efni, þar sem samningsdrögunum
var dreift, sagði Fabius að búið væri
að ná saman að mestu leyti um
mikilvæg atriði, til dæmis hvernig
standa skuli að aðlögun að loftslags-
breytingum.
Enn á þó eftir að komast að niður-
stöðu um fjármögnun aðgerða,
eftirfylgni með markmiðum ríkja
til lengri tíma og ábyrgðarskiptingu
milli ríkja og ríkjahópa.
Drögin nú eru miklum mun
skýrari en þau sem viðræðuhópur
skilaði til þingsins um síðustu helgi
og dregur betur fram kosti varðandi
helstu ágreiningsefni. Fabius sagði
að vel hefði miðað, en enn væri þó
mikil vinna eftir á lokasprettinum.
Ráðstefnunni lýkur á morgun, en
Hugi Ólafsson, formaður íslensku
samninganefndarinnar, hefur sagt
það næsta víst að þingað verði inn í
helgina. Reynslan hafi sýnt frá fyrri
ráðstefnum að sjaldnast er hjá því
komist.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, segir í fréttatilkynn-
ingu það vera ánægjulegt að kominn
sé skriður á viðræðurnar. „Tilfinningin
er sú að nú þokist hratt í samkomulag-
sátt en björninn er þó ekki unninn.
Þótt búið sé að landa mikilvægum
atriðum er varða einstaka þætti samn-
ingsins á eftir að tengja þá saman og
búa til heildarramma utan um nýtt
samkomulag. Næstu sólarhringar fara
í að sníða þennan ramma og ég er von-
góð um að það takist.“ – shá
Töluvert hefur áunnist og drög að samningi verið kynnt
Laurent Fabius, og aðrir ráðamenn franskir, hafa lagt allt undir til að ráðstefnan
skili loftslagssamningi. FréttAbLAðið/AFp
SvíÞJÓÐ Færri hreyfihamlaðir íbúar
í Södertälje í Svíþjóð fá nú leyfi til
að leggja í stæði fatlaðra eftir að yfir-
völd fóru að skylda þá til að sæta
sérstakri rannsókn og jafnvel fara í
göngupróf. Misnotkun á stæðunum
hefur aukist undanfarin ár og þess
vegna var ákveðið að fara í herferð
gegn svindlinu.
Þeir sem sækja um nýtt leyfi til
að leggja í stæðin eða endurnýjun á
leyfi sæta nú rannsókn. Í þau skipti
sem göngupróf hefur farið fram
kom í ljós að notandi stæðisins gat
gengið talsverðan spöl án erfiðleika.
– ibs
Hreyfihamlaðir
í göngupróf
efnahagSmál Hrávöruverð hefur
lækkað mikið á árinu. Í vikunni
féll hrávöruvísitala Bloomberg og
hefur ekki mælst lægri síðan í júní
árið 1999.
Of mikið framboð og of lítil eftir-
spurn hafa valdið verðhjöðnun á
hrávörum. Á undanförnum dögum
hefur verð á hrávörum, svo sem áli,
stáli og kopar, lækkað enn frekar.
Greint var frá því í byrjun viku að
hrávöruverð tunnu af olíu væri
komið undir 40 dollara, í fyrsta sinn
síðan í febrúar árið 2009.
Ástandið hefur ekki verið verra
síðan í efnahagskreppunni 2008,
og er talið að það fari versnandi.
Lækkun hrávöruverðs hefur mikil
áhrif á alþjóðaviðskipti en Dow
Jones vísitalan hefur lækkað um 200
stig í vikunni eftir að tilkynnt var
um olíuverðið, auk niðurskurðar hjá
námurisanum Anglo American. – sg
Lægsta verð á
hrávöru í 16 ár
olíuverð hefur hríðfallið í ár.
Forsíða tímaritsins time með mynd af
Angelu Merkel, kanslara Þýskalands,
sem tímaritið telur hafa verið áhrifa-
mesta einstakling ársins á heimsvísu.
Þetta er í fyrsta sinn í 29
ár sem kona verður fyrir
valinu. Síðast var það
Corazon Aquino, sem var
forseti Filippseyja.
Skemmtipakkinn
Þeir sem eru áskrifendur að Skemmtipakkanum eiga gott í
vændum um hátíðarnar og öll fjölskyldan finnur sér þætti og
kvikmyndir við hæfi. Njóttu Skemmtipakkans í desember.
365.is Sími 1817
*Gildir til 31. des. 2015 fyrir áskrifendur að völdum tilboðspökkum 365.
FRÁBÆR
DAGSKRÁ
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
1 0 . d e S e m b e r 2 0 1 5 f i m m T u d a g u r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a Ð i Ð