Fréttablaðið - 10.12.2015, Page 12
orkumál Fyrirhugaður vindmyllu
garður fyrirtækisins Biokraft í Austur
bæjarmýri norðan Þykkvabæjar mun
geta framleitt allt að 45 MW af raforku.
Þetta kemur fram í tillögu að mats
áætlun.
Biokraft, sem stofnað var
2012, gangsetti í júlí í fyrra tvær vind
myllur í Þykkvabæ í tilraunaskyni.
Þær myllur hafa samtals 1,2 MW fram
leiðslugetu. Nýting þeirra þykir hafa
verið mjög góð, skilað 42 prósentum af
fræðilegri hámarksgetu miðað við 24
prósent sem tíðkast á landi og er jafn
vel hærri en á sjó þar sem afkastagetan
er venjulega 41 prósent. Rafmagnið er
selt til Orkuveitu Reykjavíkur.
Áætlað er að bæta við þrettán
myllum á um 380 hektara svæði sem
nefnt er Djúpárvirkjun. „Svæðið er á
milli svokallaðs Dammskurðar í suðri
og Safamýrar í norðri og liggur á milli
Þjórsár og Markarfljóts í nálægð við
sjóinn,“ segir í tillögu að matsáætlun
sem Björney umhverfisráðgjöf gerði.
Landið er óskipt sameign Austurbæja
í Þykkvabæ auk Hábæjar 12 og Jaðars.
Reisa á þrettán vindmyllur í nálægð
við núverandi vindmyllur. Mastur
hverrar myllu yrði allt að 92,5 metra
hátt, þvermál snúningsflatar um 113
metrar og spaðarnir ná upp í 149
metra í hæstu stöðu.
Gert er ráð fyrir allt að 45 MW
uppsettu afli í fyrirhugaðri virkjun
Biokraft. Til samanburðar er Írafoss
virkjun í Soginu 48 MW, Kröfluvirkjun
60 MW og Blönduvirkjun 150 MW. Þar
sem aflið nær því að vera 10 MW eða
meira þarf framkvæmdin öll að fara í
umhverfismat.
„Víða erlendis þekkist það að
vindmyllugarðar séu nálægt manna
byggð, en þetta er í fyrsta sinn sem
þessi möguleiki verður skoðaður á
Íslandi,“ segir í tillögunni. „Langt er í
fjöll og annað sem getur skapað skjól
eða orsakað sviptivinda. Að fenginni
reynslu vegna fyrri vindmylla er útséð
að veðurskilyrði eru góð og vindur
frekar jafn yfir árið.“
Sem fyrr segir þarf umhverfismat
áður en af framkvæmdum getur orðið.
Fram kemur í matstillögunni að farið
hafi verið um svæðið þar sem núver
andi vindmyllur standa um tvisvar á
dag og landeigandi haft eftirlit með
umhverfinu.
„Ein vængbrotin veiðibjalla fannst
14. maí 2015 og er ekki vitað hvort hún
hafi flogið á spaða eða ekki,“ segir í til
lögunni um áhrif á dýralíf. „Samkvæmt
bændum á svæðinu virðist staðsetning
myllanna ekki hafa áhrif á ágengi gæsa
og álfta í nærliggjandi tún og kartöflu
garða.“ gar@frettabladid.is
Fá 45 MW úr þrettán
149 metra vindmyllum
Biokraft ehf. vill reisa þrettán 149 metra vindmyllur norðan Þykkvabæjar þar
sem tvær vindmyllur fyrirtækisins hafa framleitt rafmagn frá 2014. Uppsett
afl verður 45 MW miðað við 1,2 MW í dag. Aflið er svipað og í Írafossvirkjun.
Ekki vildu allir íbúar vera með
„Á íbúafundi í Þykkvabæ 8. desember 2014 kom tillaga frá íbúum um að
framkvæmdaraðili myndi endurskoða valda staðsetningu á landi Hábæjar
1 og 2 og Jaðars, vegna hugsanlegra sjónrænna áhrifa og að einungis land-
eigandi svæðisins fengi greitt fyrir landnot, en ekki íbúar í grennd við fram-
kvæmdina. Skoðuð var önnur möguleg staðsetning til að koma til móts
við óskir íbúa, nánar tiltekið sunnan við þorpið við sjávarsíðuna á svæði
sem kallast Gljáin. Farið var í frumrannsóknir og kom í ljós að svæðið gæti
hentað vel fyrir framleiðslu en þar sem undirstöðurnar eru sandur yrði sú
aðgerð að öllum líkindum kostnaðarsamari en fyrri kostur. Þessi staðsetn-
ing var hins vegar talin vera hentugri því svæðið er í sameign allra staðar-
búa og færu því leigugreiðslur til fleiri aðila. Þessu var hins vegar hafnað af
hluta íbúa og því var vikið aftur að upprunalegu hugmyndinni.“
Úr tillögu að matsáætlun Djúpárvirkjunar
Vindmyllurnar tvær ofan Þykkvabæjar sem teknar voru í gagnið í fyrrasumar ná mest 74 metra hæð. Nýju myllurnar ná tvöfalt
hærra. Fréttablaðið/aNdri MariNó
Stundum er gott
að gera sér dagamun
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum sem leika við bragðlaukana.
Tilvalin kostur sem sparimorgunverður,
gómsætur millibiti eða ljúengur eftirréttur.
… hvert er þitt eftirlæti?
Rauði krossinn í Reykjavík býður félaga og aðra velunnara
velkomna á opið hús og félagsfund í nýjum húsakynnum félagsins.
Staður: Efstaleiti 9
Stund: 10. desember, kl. 17:30 – 19:00
Drög að stefnu deildarinnar verða kynnt og boðið verður upp á kakó
og jólalega stemningu.
Stjórn og starfsfólk Reykjavíkurdeildar
Opið hús
og félagsfundur
✿ Fyrirhugaðar vindmyllur Biokraft
Erlendis þekkist það að vindmyllugarðar
séu nálægt mannabyggð, en þetta er í fyrsta
sinn sem þessi möguleiki verður skoðaður á Íslandi.
Úr tillögu að matsáætlun vegna Djúpárvirkjunar
Hallgrímskirkja
Þykkvibær
74 m
Hæð
149 m
Þvermál
113 m
Mastrið á
vindmyllunni
92,5 m
Mastrið á vindmyll-
unni er um 20 metrum
hærra en Hallgríms-
kirkja.
1 0 . d e s e m B e r 2 0 1 5 F I m m T u d A G u r12 F r é T T I r ∙ F r é T T A B l A ð I ð