Fréttablaðið - 10.12.2015, Side 22
Sá sem drekkur of mikið skaðar ekki
bara sjálfan sig. Aðrar afleiðingar
drykkjunnar eru umfangsmiklar.
Þetta kemur fram í skýrslu sænska
læknafélagsins og bindindissam
takanna IOGT í Svíþjóð þar sem
teknar eru saman niðurstöður nýrra
rannsókna.
Afleiðingarnar eru allt frá
áhyggjum fjölskyldunnar vegna
drykkju ættingja til dauðsfalla í
umferðinni eða á vinnustað, að
því er segir í frétt sænska blaðsins
Dagens Nyheter.
Haft er eftir lækninum og pró
fessornum Sven Andréasson við
Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi
að þeir sem eigi að taka boðskap
skýrslunnar til sín séu þeir sem ekki
geri sér grein fyrir að þeir tilheyri
þeim hópi sem drekkur of mikið.
„Hafi einhver mörgum sinnum sagt
við einstakling að hann hafi áhyggjur
af drykkju hans þá hefur sá næstum
alltaf ástæðu til að hafa áhyggjur,“
segir læknirinn. Því miður séu við
brögðin hjá þeim sem drekkur of
oft þannig að gert sé of mikið úr
drykkjunni.
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir
hjá SÁÁ, segir fólk eiga að taka mark
á athugasemdum annarra. „Þá fer
fólk að hugsa sér nær. Að tala um
vandann er mjög mikilvæg leið.
Hér heima hafa bæði fjölskyldu
meðlimir og þeir sem drekka tæki
færi til að spyrja hlutlausa aðila og
leita aðstoðar. Það er hægt að tala
við ráðgjafa á göngudeild hjá okkur
og þá kemur í ljós hvort ástæða er til
að hafa áhyggjur.“
Andréasson segir að besta lausnin
sé þrýstingur frá umhverfinu þótt
það sé erfitt að vera sá sem bendir á
að drykkjan sé of mikil. Hann tekur
jafnframt fram að baráttuleiðir
stjórnvalda séu einokun með smá
sölu áfengis, skattlagning, aldurstak
mark og lokunartími skemmtistaða.
Greinilegt sé að þessar leiðir hafi
áhrif þar sem þær takmarki aðgengi
að áfengi. Aukið aðgengi hafi í för
með sér meira ofbeldi, umferðarslys
og fleiri dauðsföll.
Hann getur þess meðal annars að
of mikil drykkja hafi neikvæð áhrif
á fjóra til tíu fjölskyldumeðlimi, vini
og fleiri. Of mikil drykkja hafi fyrst
og fremst neikvæð áhrif á börnin,
hættan á að þau skaðist aukist. Rann
sóknir sýni að börn drykkjumanna
fái oft lægri einkunnir og minni
menntun en önnur börn, samtímis
sem þau eigi frekar á hættu að þurfa
sjálf að glíma við áfengisvanda.
Valgerður bendir á að áhyggjur
aðstandenda, barna, maka og stund
um foreldra vegna þess sem drekkur
spilli jólagleðinni. „Það er ástæða til
að ræða málin í þeirri von að þetta
batni.“
Mikilvægt að tala um áfengisvandamál
Prófessor við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi segir þrýsting frá umhverfinu bestu lausnina í baráttunni við of mikla drykkju.
Að tala um vandann er mjög mikilvæg leið. Hér heima hafa bæði
fjölskyldumeðlimir og þeir sem drekka tækifæri til að spyrja
hlutlausa aðila og leita aðstoðar. Það er hægt að tala við ráðgjafa á göngu-
deild hjá okkur og þá kemur í ljós hvort ástæða er til að hafa áhyggjur.
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
ibs@frettabladid.is
Jólagleði barnanna getur spillst af áhyggjum vegna drykkju fjölskyldumeðlims. NORDICPHOTOS/GETTY
Allt frá fjöru til fjalla
lÍs en ku
ALPARNIR
s
SWALLOW 250
Kuldaþol: -8
þyngd: 1,7 kg.
11.995 kr. 9.596 kr.
MONTANA, 3000mm vatnsheld
2. manna 16.995 kr. 12.796 kr.
3. manna 19.995 kr. 15.996 kr.
4. manna 26.995 kr. 21.596 kr.
30%
SNJÓBRETTAPAKKAR
Góðar
fermingargjafir
alparnir.is
FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727
P
P
Góð gæði
Betra verð
Húfur, frá kr. 5.995
Hanskar,
frá kr. 3.995
Cliff dömubuxur
Primaloft
dömujakki
2.595 1.995
2.195
Léttar dúnúlpur
fyrir dömur
og herra
20%
jólatilboð
Primaloft
dömuúlpa
Dúnúlpa
herra
20%
jólatilboð
20%
jólatilboð
20%
jólatilboð
Þegar gefin er sönn gjöf UNICEF,
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
gleður maður og bætir líf barna um
allan heim með lífsnauðsynlegum
hjálpargögnum, að því er bent er á
á vef samtakanna.
Hjá UNICEF á Íslandi, unicef.is,
er hægt að kaupa gjafabréf með
ljósmynd og lýsingu á gjöfinni. Sá
sem maður vill gleðja með slíkri
gjöf fær gjafabréfið en hjálpargögnin
eru send úr birgðastöð UNICEF til
barna í neyð. Á vef samtakanna segir
að hægt sé að velja um margs konar
hjálpargögn í öllum verðflokkum.
Sem dæmi má nefna að fyrir
5.501 krónu er hægt að gefa gjafa
körfu fulla af hjálpargögnum, það
er 38 pökkum af vítamínbættu jarð
hnetumauki sem gerir kraftaverk
við meðhöndlun vannærðra barna.
Karfan inniheldur einnig bóluefni
sem verndar 25 börn gegn misl
ingum. Í körfunni eru ormalyf sem
hjálpa 150 börnum að vinna bug á
sníkjudýrasýkingu í meltingarvegi
auk námsgagna fyrir 20 börn.
Það fer eftir þörfinni hverju sinni
hvert gjafirnar eru sendar. UNI
CEF metur þörf fyrir aðstoð eftir
ströngum verkferlum. Árlega kynnir
UNICEF á Íslandi síðan alþjóðlega
skýrslu þar sem fram kemur hvert
hjálpargögnin sem gefin voru
sem sannar gjafir árið áður voru
send. UNICEF er á vettvangi í yfir
190 löndum og lögð er áhersla á að
ná til allra barna. – ibs
Sannar gjafir UNICEF
hjálpa börnum í neyð
Stúlkur í 1. bekk í Sýrlandi með námsgögn frá UNICEF. MYND/UNICEF
5.501 kr.
kOSTaR kaRFa
FUll aF HJálPaRGöGNUM
l 38 pakkar af vítamínbættu
jarðhnetumauki
l Bóluefni sem verndar 25 börn
gegn mislingum
l Ormalyf sem hjálpa 150 börnum
að vinna bug á sníkjudýrasýkingu
í meltingarvegi
l Námsgögn fyrir 20 börn
fjölskyldAn
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r22 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð