Fréttablaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 42
Fólk| tíska
Góð blanda lovísa segir stjórnmálafræði og förðunarfræði
fara vel saman.
Jólaförðun lovísa er sérstaklega hrifin af gylltu í kringum augu og rauðum vörum.
Fylgjast má með förðun lovísu á öllum helstu samfélagsmiðlum undir makeupbylovisa.
mynd/lovísa oktovía Eyvindsdóttir
Ég lærði förðun hjá snilling-unum í Reykjavík Make up School. Metnaður þeirra í
garð nemenda er aðdáunarverður
og ég sé ekki eftir að hafa valið
þann skóla,“ segir Lovísa Oktovía
Eyvindsdóttir, nýútskrifaður förð-
unarfræðingur og forfallin áhuga-
manneskja um förðun. Lovísa er
einnig stjórnmálafræðingur og
segir stjórnmál og förðun fara vel
saman.
„Stjórnmálafræði er hálfgerð
samfélagsfræði. Ég fylgist vel með
málefnum líðandi stundar og það
getur komið sér vel þegar kúnnar
koma í förðun, það er auðvelt
að finna eitthvað til að tala um.
Ég fæ útrás á Snapchat-aðgang-
inum mínum um förðun svo vinir
mínir í háskólanum þurfa ekki að
hlusta á mig blaðra endalaust um
förðunar- og snyrtivörur,“ segir
Lovísa sposk en hún stundar nú
nám í fjölmiðla- og boðskiptafræði
við HÍ.
En hvað er svona heillandi við
förðun? „Förðun er svo miklu
meira en bara tól til þess að gera
sig fína, förðun er tjáningarleið
og í dag er mikið svigrúm fyrir
fjölbreytileika. Ég er sjálf mikið
kameljón, get verið óförðuð marga
daga í röð og mætt svo allt í einu
með svartan varalit í skólann. Það
er mikilvægt að vera bara maður
sjálfur. Ég er líka ánægð með að
fleiri og fleiri karlmenn koma sér
á framfæri í förðunarheiminum,
bæði sem förðunarfræðingar og
svo þeir sem farða sig dags dag-
lega og búa til myndbönd á Yo-
uTube.“
Varst þú krakkinn sem stalst
í snyrtidótið hennar mömmu?
„Mamma átti aldrei mikið af snyrti-
dóti. Hún er svo náttúrulega falleg
og frískleg. Líklega var það stjúp-
móðir mín sem kom mér fyrst á
bragðið þegar ég var unglingur, en
það eru 10 ár á milli okkar í aldri
og þegar ég var yngri var hún oft
að taka sig til um helgar með alls
konar litríku dóti. Síðustu ár hef
ég verið að prófa mig áfram og
stigið mörg feilspor en alltaf lært
förðun Er Eitt
form tJáninGar
fJölbrEytilEiki Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir hefur nýlokið námi í förð-
unarfræðum en þar á undan kláraði hún stjórnmálafræði. Hún segir förðun
miklu meira en bara tól til að gera sig fína og fjölbreytileikinn sé allsráðandi.
af þeim. Alls konar „special effect“-
förðun heillar mig upp úr skón-
um þessa dagana, ég man varla
skemmtilegri daga en þegar ég var
að farða fyrir hrekkjavöku núna í
október.“
Er einhver förðun í uppáhaldi hjá
þér? „Ég hef alltaf verið rosalega
hrifin af dökku smokey, mér finnst
það svo seiðandi og kynþokkafull
förðun. En ég get ekki sleppt því
að minnast á gyllta augnförðun og
rauðar varir, klassískt lúkk. Sagan
segir líka að það sé jólaförðunin
í ár.“
áttu einhverja uppáhalds förðun-
argræju? „BeautyBlender. Þessi
undra svampur er dásamlegt tól til
þess að koma í veg fyrir rákir eftir
bursta.“
Ef þú hefðir bara 5 mínútur fyrir
galaveislu? „Ég myndi svitna og of-
anda fyrstu 30 sekúndurnar. Í mók-
inu myndi ég laga augabrúnirnar,
setja á mig léttan farða og skyggja
andlitið og velja rauðan, fljótandi,
mattan varalit. Svo maskari og
stök augnhár til þess að fá smá
náttúrulegan væng … Eru fimm
mínútur liðnar?“
tJáninGarform „Ég er sjálf mikið kameljón, get verið óförðuð
marga daga í röð og mætt svo allt í einu með svartan varalit í skólann.“
#wolford
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
Peysur í jólapakkann
Str. S-XXXL - Margir litir
5900 -
7900 -
8900 -
8900 -
Við erum á Facebook
Skemmtipakkinn
365.is | Sími 1817
FRÁBÆR DAGSKRÁ
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Tryggðu þér áskrift á 365.is