Fréttablaðið - 10.12.2015, Page 44
Fólk| tíska
Gallabuxurnar eru sumar „bættar“,
á kálfunum er annar litur á galla
efninu en á leggnum. Skyrtur eru í
svipuðum stíl, þá eru vasar að fram
an með öðrum lit. Þetta gefur föt
unum skemmtilegan svip. Reyndar
er tískan frá Valentino næsta sumar
mjög frjálsleg. Hönnuðir Valentino
sem eiga heiðurinn af þessum stíl
eru Maria Grazia Chiuri og Pier
paolo Piccioli. Hermannalitir sáust
einnig á sýningunni, bæði í jökkum
og bakpokum. Þá verða sandalar
skór sumarsins ef marka má Val
entino.
Þau Maria og Pierpaolo þykja hug
myndaríkir hönnuðir, enda heillað
ist Valentino Garavani af þeim árið
1999. Þá fékk hann þau til að hanna
fylgihluti fyrir tískuhúsið. Niðurstað
an varð skemmtileg nýsköpun.
Þegar Valentino ákvað að draga
sig að mestu út úr tískuhönnuninni
árið 2007 fékk hann þau til að verða
listrænir stjórnendur fyrirtækisins.
Hér má sjá myndir af herratískunni
vor og sumar 2016 að hætti Mariu
og Pierpaolo. Skilaboðin er tímalaus
hönnun, stíllinn samkvæmt hefðinni
sem flestum ætti að líka vel við.
Valentino
lofar galla-
buxurnar
ÞÆgilegt Herratískan næsta vor og sumar frá Valentino
er frjálsleg og einkennist af gallabuxum og sandölum.
Gallabuxur eru reyndar alltaf í tísku en þessi heimsfrægi
hönnuður vill veg þeirra sem mestan.
glÆsilegt
Herrann sem
snýr baki í
myndavélina
er í mjög
klassískum
gallabuxum
fyrir næsta
sumar frá
Valentino.
gallaJakki
Þessi er í galla-
buxum og jakka í
stíl. Takið eftir að
á jakkaermunum
er annar litur.
tÖffari Flottur
síður jakki með
blómamynstri
við gallabuxur.
Töff klæðnaður.
sanDalar Þeir voru áberandi við gallabuxurnar á sýningu
Valentino.
frJÁlslegt
Þægilegur og
hefðbundinn
klæðnaður.
Takið eftir sand-
ölunum. ÖÐruVísi Þessar gallabuxur eru með rönd eins og
smóking buxur.
blÁtt og
Meira blÁtt
Blái gallabuxna-
liturinn nær
til hermanna-
mynsturs í
þessum jakka.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Flottar yfirhafnir og peysur
Netverslun á tiskuhus.is