Fréttablaðið - 10.12.2015, Síða 46

Fréttablaðið - 10.12.2015, Síða 46
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmenn aUglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Leirinn á allan hug Fannars Þórs Bergssonar sem hefur undanfar­ in ár nær eingöngu leirað ýmsar þekktar teiknimyndafígúrur við miklar vinsældir. „Ég hef verið að leira styttufígúrur úr ofnbök­ uðum leir undanfarin sjö ár. Leir­ inn heitir Sculpey og um leið og ég uppgötvaði þessa tegund af leir þá fór ég að geta gert vandaðar stytt­ ur sem ég get einnig málað með akrýl málningu.“ Það er heillandi að skapa úr leir að sögn Fannars. „Ég hef allt­ af haft gaman af því að geta búið til það sem mig langar í frá því að ég var smástrákur. Á fullorðins­ árunum snýst þetta samt meira um töfrana við að geta búið til það sem ég sé og finnst skemmtilegt að skoða á flötu yfir­ borði eins og blöðum, bókum og sjónvarps­ og tölvuskjáum.“ Hann segir miklu meira lifandi þegar einhver kar­ akter er kominn í leirform í þrívídd og hægt er að skoða hvern krók og kima. „Þá nýtur maður fígúrunnar miklu betur en þegar hún er í tvívídd. Það er líka þessi áþreifanleiki og andleg vellíðan við það að móta úr leir sem rekur mann áfram. Ég fæ aldrei leiða á þessu, þetta er bara hluti af mér og meðfæddir hæfi­ leikar sem ég vil halda áfram að þróa og nýta til að færa mér sjálf­ um gleði og hamingju sem og öðru fólki.“ Ýmsar flóknar fígúrur Teiknimynda­ og myndasögufígúr­ ur eru sérsvið Fannars en í upphafi gerði hann einfaldar teiknimynda­ fígúrur á borð við Strumpana, Herramennina og Ungfrúrnar. „Í kjölfarið fór ég að búa til flókn­ ari fígúrur eins og Viggó viðutan, Lukku­Láka og svo teiknimynda­ söguhetjur eins og Batman, Super­ man og fleiri skyldar hetjur. Þetta var bara svo virkilega skemmti­ legt viðfangsefni að ég hef eigin­ lega eingöngu haldið mig við þetta þema síðan.“ Vinnuferlið hjá Fannari er einfalt. „Fyrst finn ég einhverja skemmti­ lega teikningu eða ljósmynd af við­ fangsefninu. Svo hef ég hana fyrir framan mig meðan ég leira eftir myndinni eða teikningunni. Helstu verkfærin sem ég nota eru útskurðarjárn sem ég hef notað frá því ég hóf að nota Sculpey­leirinn. Þó má segja að hendurnar séu náttúrulega að­ alverkfærið mitt auk ímynd­ unaraflsins. Auk þeirra er ég með alls konar verkfæri á borð við skurðartól með tréhand­ föngum og rúllukefli til að fletja leirinn út. Ég bý stund­ um til eigin verkfæri sem henta við smíðina hverju sinni. Almennt þarf þó helst hendurnar, hæfileika, vilja og þrjósku til leirgerðar. Það má yfirleitt notast við hvaða tæki og tól sem eru fyrir hendi en ann­ ars er best að skella sér bara í handverksbúðir og kaupa verk­ færasett þegar maður er að byrja.“ Margir furðu lostnir Þegar Fannar hefur fullmót­ að fígúruna er hitað upp í ofninum heima. „Það fer eftir stærð og þykkt hversu lengi fígúran er í ofninum en oftast eru þetta 30­60 mínútur. Svo tekur um rúman klukkutíma að kæla styttuna niður áður en ég mála hana. Mér finnst best að nota ákveðna ljósa liti af leirn­ um svo að ég þurfi ekki eins mikla málningu til að grunn­ mála styttuna. Ég byrja á Titani­ um White og svo eru það helstu lit­ irnir og loks skygging og lýsing og önnur smáatriði máluð með öðrum litum. Að lokum merki ég hverja styttu með listamannsnafni mínu og framleiðsluárinu.“ Fannar segir leirstytturnar hafa fengið mjög góðar viðtökur. „Marg­ ir verða furðu lostnir þegar þeir skoða þær nánar og sjá öll smá­ atriðin og um leið að ég handgeri hverja einustu styttu en geri engar afsteypur. Ég hef aðallega verið að sýna og selja stytturnar mínar á Facebook undir LeiraMeira en líka í verslununum Litir og föndur og Smíðar og skart á Skólavörðustíg.“ Aðspurður um uppáhaldsfígúrur segir hann erfitt að svara því. „Mér þykir vænt um öll sköpunarverkin mín og maður sér aðeins eftir þeim þegar þau seljast. En ef ég ætti að velja einhverjar uppáhaldsfígúr­ ur þá myndi ég kannski segja Sammi og Kobbi, Ástríkur og svo auðvitað íslensku jólasveinarnir.“ Snýst miklu meira um töfrana Leirgerð hefur heillað fannar Þór bergsson frá unga aldri og fær hann aldrei leið á henni. Undanfarin ár hefur hann einbeitt sér að gerð teiknimynda- og myndasögufígúra úr leir. Ekki þarf flókin tæki til framleiðslunnar en helst mæðir á höndum listamannsins. teiknimynda- og myndasögufígúrur eru sérsvið fannars og koma í mörgum útfærslum. „Þetta er bara hluti af mér og meðfæddir hæfileikar sem ég vil halda áfram að þróa og nýta til að færa mér sjálfum gleði,” segir fannar Þór bergsson. mynd/gVa Íslensku jólasveinarnir eru í uppáhaldi hjá fannari og mjög vinsælir. jólagjöf fagmannSinS i Kynningarblað 10. desember 20152
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.