Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 52
„Iðnvélar ehf. hafa um 40 ára skeið
verið eitt stærsta fyrirtækið í inn-
flutningi, sölu og þjónustu nýrra
véla og tækja til iðnaðar og fleiri
atvinnugreina. Auk véla og verk-
færa býður fyrirtækið alls kyns
rekstrarvörur fyrir járn- og tré-
iðnaðinn í landinu,“ segir Hjört-
ur Pálmi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iðnvéla.
Aukið vöruúrval
Verslun Iðnvéla á Smiðjuvegi
44-46 hefur tekið miklum breyt-
ingum á undanförnum mánuð-
um að sögn Hjartar. „Vöruúrval-
ið hefur verið aukið og verslunar-
rýmið stækkað til muna. Einnig
er nú rúmgott sýningarrými fyrir
stærri vélar,“ segir hann.
BETA handverkfæri,
vinnufatnaður og vinnuskór
Á haustdögum tóku Iðnvélar við
umboði fyrir hin heimsþekktu
ítölsku Beta-verkfæri. „Fagfólk
í handverki þekkir vörurnar frá
Beta enda hafa þær getið sér orð
fyrir gæði og endingu jafnt hér-
lendis sem erlendis. Beta hefur frá
árinu 1938 framleitt handverkfæri
sem uppfylla þarfir fagfólks með
rómaða ítalska hönnun og gæða-
framleiðslu að leiðarljósi,“ segir
Hjörtur. Beta-verkfærin eru fram-
leidd í þremur ítölskum verksmiðj-
um. Fyrirtækið er fjölskyldufyrir-
tæki og er nú í eigu þriðju kyn-
slóðar upphaflega stofnandans.
„Hluti af þróunarstarfi Beta felst
í samstarfi við leiðandi keppnis-
lið í Formúlu 1 og MotoGP og hefur
Beta safnað mikilli þekkingu á því
sem atvinnumenn þurfa og vilja.“
En Beta framleiðir ekki eingöngu
verkfæri, eins og sjá má í verslun
Iðnvéla, því vinnufatnaður og -skór
eru áberandi líka. „Því er svo farið
að segja má að Beta-fatnaðurinn sé
í raun tískufatnaður fyrir iðnaðar-
fólk þótt áherslan liggi sannarlega í
praktík og þægindum,“ segir Hjört-
ur, en greinilegt er að ítalska hönn-
unin setur svip sinn á fatalínurnar
og skóna jafnt sem verkfærin. App-
elsínugulur litur einkennir Beta-
verkfærin og nýta fatahönnuðirnir
þann lit með penum en smekkleg-
um hætti í útlitshönnuninni.
Verðlagið hjá Iðnvélum á Beta-
verkfærunum er verulega hag-
kvæmt miðað við gæðin, og verð-
ið á skóm og fatnaði kemur einn-
ig skemmtilega á óvart.
Góðar gjafir
Þeir sem þurfa að kaupa jólagjaf-
ir fyrir starfsfólk fyrirtækja,
laghenta vini, ættingja eða bara
sjálfa sig ættu að leggja leið sína
á Smiðjuveginn eða á vefsíðuna
www.idnvelar.is þar sem meðal
annars er hægt að skoða jólagjafa-
bækling Iðnvéla.
Frábærar jólagjafir fyrir laghenta
Hvað er hægt að gefa þeim sem eiga flest eða allt? Ef viðkomandi er laghentur, stendur í framkvæmdum eða sinnir áhugamálinu
í bílskúrnum gætu verkfæri eða sérhæfður vinnufatnaður verið valkostur.
„Fagfólk í handverki þekkir vörurnar frá Beta enda hafa
þær getið sér orð fyrir gæði og endingu jafnt hérlendis sem
erlendis,“ segir Hjörtur.
Nánari upplýsingar má finna á www.idnvelar.is. Beta framleiðir ekki eingöngu verkfæri, eins og sjá má í
verslun Iðnvéla, því vinnufatnaður og -skór eru áberandi líka.
Hjörtur Pálmi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iðnvéla, innan um gæðavélar sem
eru til sölu í verslun Iðnvéla á Smiðju-
vegi 44-46. MyNd/GVA
Til eru sagir af öllum stærðum og gerðum. Japansk-
ar sagir eru ólíkar þeim sem flestir á Vesturlöndum
þekkja, blöð þeirra eru sérstaklega þunn svo auð-
velt og árangursríkt er að saga með þeim. Einnig saga
þær þegar togað er í þær, ólíkt þeim vestrænu, sem
saga þegar ýtt er á þær. Mörgum finnst það eðlilegri
aðferð við að byrja skurðinn.
Dozuki-sögin hefur mjög stíft blað þannig að sérstak-
lega gott er að nota hana við nákvæmnisvinnu. Um
leið takmarkar stíft blaðið dýpt skurðarins. Blað doz-
uki-sagarinnar er það þynnsta af öllum japönsku sög-
unum og eru tennur sagarinnar auk þess mjög þéttar.
Því þarf minni kraft við skurðinn og hann verður ná-
kvæmari. Einnig tekur minni tíma að saga með henni
af þessum sökum.
Ryoba-sögin hefur yfirleitt tvær mismunandi gerð-
ir af tönnum á sitthvorri hliðinni, aðra fínni og hina
grófari. Eins og á dozuki-söginni eru tennurnar þéttar
og því verður skurðurinn nákvæmari og auðveldari.
Á þeirri hlið ryoba-sagarinnar sem hefur fínni tenn-
ur eru tennurnar minni á nærenda sagarinnar en fara
svo stækkandi að fjærendanum til að auðvelda sög-
unina enn frekar.
Fleiri japanskar sagir, sem allar hafa mismunandi
eigin leika, eru til og nefna má azebiki-sög, kataba-
sög og kugihiki-sög.
JApAnskAr sAGir Eru æði sérsTAkAr
JólAGJöF FAGMANNSINS Kynningarblað
10. desember 20158