Fréttablaðið - 10.12.2015, Síða 60
Heimild: Telegraph og physioroom.com.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r40 s p o r T ∙ F r É T T A b L A ð I ð
FóTboLTI „Daniel verður að læra
hvað er verkur og hvað er alvöru
verkur.“ Þetta sagði Jürgen Klopp,
stjóri Liverpool, í síðasta mánuði
eftir að í ljós kom að endurkomu
Daniels Sturridge yrði seinkað um
nokkra daga. Sturridge hafði meiðst
á fæti á æfingu og gat ekki spilað
með Liverpool gegn Bordeaux í Evr-
ópudeildinni þann 26. nóvember.
Klopp hefur aðeins verið nokkrar
vikur í starfi hjá félaginu en hefur
nú upplifað þrenn mismunandi
meiðsli hjá Sturridge.
En þremur dögum síðar spilaði
hann sem varamaður í 1-0 sigri á
Swansea. Öðrum þremur dögum
síðar var hann í byrjunarliði Liver-
pool í fyrsta sinn í tæpa tvo mánuði
og í fyrsta sinn undir stjórn Klopps
er hann skoraði tvívegis í 6-1 bursti
á Southampton í deildabikarnum.
Klopp kættist og stuðningsmenn-
irnir með, sem eðlilegt er. Nú skyldi
Sturridge loksins komast á almenni-
legân skrið og Liverpool-liðið fylgja
með. Honum var hlíft gegn New-
castle um helgina, þar sem hann var
varamaður, en eftir 62 markalausar
mínútur ákvað Klopp að gera tvö-
falda skiptingu á sínu liði og setja þá
Sturridge og Roberto Firmino inn á.
Það gekk ekki upp. Newcastle
vann, 2-0, og hafi það ekki verið
nógu slæmt kom í ljós eftir leik að
Sturridge meiddist enn einu sinni,
nú aftan í læri. Í fyrstu var talið að
hann yrði frá fram yfir áramót en
samkvæmt nýjustu fregnum er
stefnt að því að hann geti spilað
með Liverpool þegar liðið mætir
spútnikliði Leicester á öðrum degi
jóla.
Sturridge er uppalinn hjá Man-
chester City og spilaði þar fyrstu
þrjú ár atvinnumannsferils síns.
Árið 2009 fór hann svo til Chelsea
þar sem hann var í fjögur tímabil
(þar af í hálft tímabil sem lánsmað-
ur hjá Bolton) og skoraði þrettán
mörk í 63 leikjum.
Þann 2. janúar 2013 keypti Liver-
pool Sturridge frá Chelsea fyrir um
tólf milljónir punda. Ákveðið var að
veðja á afar hæfileikaríkan 24 ára
framherja sem hafði samt meiðst
í sautján mismunandi skipti og
verið frá í samtals 516 daga á sínum
unga ferli. Sturridge byrjaði þó afar
vel og þrátt fyrir að hafa meiðst í
fimm mismunandi skipti missti
hann aðeins af þrettán leikjum
fyrsta eina og hálfa tímabilið sitt. Þá
afrekaði hann að skora 31 deildar-
mark í 43 leikjum og myndaði með
Luis Suarez skæðasta framherjapar
enska boltans. Saman skoruðu þeir
52 mörk tímabilið 2013-14 og Liver-
pool var hársbreidd frá titlinum
eins og frægt er.
Suarez fór eftir tímabilið og Sturr-
idge hefur vart séð til sólar síðan.
Meiðslin eru nú orðin 35 talsins og
er því nema von að Sturridge vilji
hlífa sér, sama hvað Klopp segir?
eirikur@frettabladid.is
Þúsund daga þjáningasaga Sturridge
Daniel Sturridge er aðeins 26 ára en þeir eru fáir sem eiga sér jafn langa og ítarlega meiðslasögu og þessi öflugi framherji. Atvikin eru
orðin 35 talsins og fjarvistardagarnir nánast eitt þúsund. Hann meiddist enn og aftur um helgina en gæti snúið aftur um jólahátíðarnar.
971 dagur á sjúkrabekknumSturridge hefur verið frá vegna meiðsla í nærri eitt þúsund daga. Hér eru meiðsli hans flokkuð eftir líkamshluta, mánuði sem hann meiðist í og hversu marga daga hann er frá.
VeIkIndI
12/2008: 22
07/2012: 7
09/2012: 2
Samtals
31
dagur
AFTAn
í LærI
09/2012: 33
11/2012: 36
04/2014: 14
07/2014: 10
12/2015: 4+
Samtals
97+
dagar
ÖkkLI
10/2008: 4
04/2011: 12
05/2013: 73
11/2013: 44
Samtals
133
dagar
Tá
02/2012: 3
08/2012: 8
Samtals
11
dagar
mjÖðm
10/2007: 104
04/2009: 14
11/2009: 165
12/2011: 24
03/2015: 33
04/2015: 13
Samtals
353
dagar
HnÉ
09/2011: 10
10/2015: 36
Samtals
46
dagar
FóTUr
11/2015: 3
Samtals
3
dagar
nárI
01/2009: 77
Samtals
77
dagar
LærI
02/2013: 13
02/2013: 14
03/2013: 3
09/2013: 15
11/2013: 10
07/2014: 5
09/2014: 38
11/2014: 74
Samtals
172
dagar
káLFI
09/2009: 12
10/2014: 36
Samtals
48
dagar
STÆRSTA UFC-KVÖLD ÁRSINS
LAUGARDAG 12. DES. KL. 03:00
365.is Sími 1817
GUNNAR ER KLÁR Í BARDAGANN
GUNNAR
NELSON
GEGN
DEMIAN
MAIA
CONOR
McGREGOR
GEGN
JOSÉ
ALDO
Laugardagskvöldið 12. desember mætir Gunnar Nelson
hinum brasilíska Demian Maia og í aðalbardaga kvöldsins
kljást Conor McGregor og José Aldo.
Ekki missa af stærsta UFC-kvöldi ársins.
Cheksea 2009-2013
372 dagar
manchester city 2006-2009
144 dagar
Liverpool 2013-
455 dagar