Fréttablaðið - 10.12.2015, Page 72
Páll Valsson, rithöfundur og ritstjóri, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2000 fyrir ævisögu Jónasar Hallgrímssonar. Árið 2009
hlaut Páll mikið lof fyrir bók sína Vig-
dís – kona verður forseti og að auki
liggur eftir Pál fjöldi þýðinga og rit-
stjórn fjölda fræðirita og skáldverka.
En nú fyrir jólin kveður við léttan og
skemmtilegan tón í verkum Páls sem
hefur sett saman sögu Egils Ólafssonar,
tónlistarmanns og leikara, sem nánast
hvert íslenskt mannsbarn þekkir.
Bókin kallast Egils sögur – á meðan ég
man og þar fara þeir félagar yfir ævi og
starf Egils í léttu máli og myndum.
Páll segir að hann hafi langað til
þess að gera öðruvísi bók en hann
hafi verið að fást við á síðustu árum.
„Einhverja bók sem gæti verið ekki
bara persónusaga heldur líka tíðar-
andasaga. Mig langaði líka til þess að
kafa ofan í tónlistarsenuna á áttunda
áratugnum sem var geysilega frjó og
merkileg. Þegar maður fer að stúdera
það þá verða fyrir manni hljómsveitir
eins og Spilverk þjóðanna, Stuðmenn
og Þursaflokkurinn og þær eiga allar
einn samnefnara: Egil Ólafsson. Þegar
bætist svo við að hann fer þarna inn
í leikhúsin og er svo í annarri hverri
bíómynd í íslenska kvikmyndavorinu,
þá er ljóst að hann er ákveðinn lykil-
maður í menningarlífi þessa tíma. En
aðal atriðið er nú, sem ég hafði kynnst,
að Egill er frábær sögumaður.
Skipst á sögum í þrjú ár
Þannig að við settumst niður og byrjuð-
um að tala saman. Erum búnir að tala
saman í tvö, þrjú ár og úr verður þessi
bók. Pælingin er líka sú að um leið og
við segjum sögu Egils þá erum við líka
að segja sögu tíðarandans. Sögur Egils
endurspegla svo hann sjálfan. Þannig
að pælingin er að eftir lestur bókarinn-
ar sitji lesandinn eftir með góða tilfinn-
ingu fyrir persónunni og stemningu
fyrir tímanum. Þetta er svona mósaík-
mynd af persónu og tíma.“
Páll segir að þessi bók sé ekki þann-
ig að kafað sé djúpt í einkalífið. „Auð-
vitað er komið inn á einkalífið og tog-
streituna sem myndast milli þess og
bransans og það eru þarna sögur af
alls kyns dóti í kringum það. En það
kemur líka fram hvað mikið hefur
breyst í þjóðlífinu. Egill er alinn upp
við gamlan skipstjóra á heimilinu, afa
hans og alnafna, sem vakti hann alltaf
klukkan 5.30 á morgnana með „Ræs“.
Þannig að hann var alltaf vaknaður
fyrir allar aldir og mætir hálf vank-
aður í skólann, þetta er tími sem er
horfinn. Tónlistarsenan hefur að sama
skapi breyst alveg gríðarlega frá því að
hann er að byrja í bílskúrshljómsveit
með hinum kornungu Glömpum, þá
var einfaldlega allt annar mórall. En
bókin er svo sannarlega ekki graf-
skrift, heldur portrett af listamanni
sem hefur fengist við margt.
Og ég leyfi mér að fullyrða að þetta
er skemmtileg bók. Það er stundum
vanmetið. Húmorinn fleytir mönnum
nefnilega oft í gegnum hremmingar.
En auðvitað er líka þarna alvarlegri
undirtónn og átök bæði í listalífinu
og einkalífinu.“
Góður sagnamaður
Páll segir að bókin sé þannig byggð
upp að þeir félagar hafi orðið til
skiptis. „Hann í fyrstu persónu og ég í
þriðju. Ég tengi þetta svo og reyndi að
finna jafnvægi í frásögnina.
Þetta hefur óneitanlega verið öðru-
vísi vinna en ég hef verið í en það var
einmitt ástæðan fyrir því að ég fór í
þetta verkefni. Þetta var í senn ákveðin
hvíld og feikilega skemmtilegt. Að tala
við og skiptast á sögum við Egil Ólafs-
son í þrjú ár er ekki leiðinleg vinna. Ég
vissi að Egill er ekki bara góður sagna-
maður heldur blundaði í honum rit-
höfundur sem ég leiði þarna fram á
sviðið. Slíkt fer ekki alltaf saman því
sumir miklir snillingar í munnlegri
frásagnarlist koma svo alls ekki orð-
unum á blað.“
Páll og Egill hafa á liðnum vikum
farið víða að kynna bókina og Páll
segir að það hafi nú verið ákaflega
létt og skemmtilegt verk fyrir sig. „Ég
er svona eins og rótari hjá Agli, kynni
bókina og les kannski eitthvað smá-
vegis en svo tekur performerinn við,
les og leikur og syngur eins og enginn
sé morgundagurinn. Það er rosaleg
orka í honum. Við komum líka aðeins
inn á þetta í bókinni, Egill hugsar vel
um sig og passar upp á hljóðfærið sitt
sem er röddin. Þetta er maður sem
hefur verið samtals í sjö ár samfleytt
á böllum, það er ansi langur tími. En
eins og hann segir sjálfur þá er hann
heppinn með stamínu og byggingar-
lag, stendur vel á sviðinu. Og nú er
hann kominn á skútu og segir að
hans byggingarlag falli vel að báti.
Það er margt svona skemmtilegt sem
streymir frá honum.“
Ég leyfi mér að fullyrða að þetta er skemmtileg bók
Páll Valsson skrifaði Egils sögur – á meðan ég man, ásamt viðfangsefninu Agli Ólafssyni og hann segist
hafa vitað að það blundaði rithöfundur í tónlistarmanninum. Þeir skiptust á sögum í þrjú ár.
Páll Valsson rithöfundur og meðhöfundur Egils Ólafssonar að Egils sögum hafði ákaflega gaman af ferlinu við að vinna þessa bók. Fréttablaðið/VilhElm
Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
„Ég er með vinnustofuna mína
opna, er þar með stóran sal með
þverskurði af því sem ég er að gera,“
segir grafíski hönnuðurinn Gísli B.
Björnsson, sem nú sýnir málverk í
Skipholti 1 til 13. desember, milli
klukkan 14 og 18.
„Myndirnar eru svo til allar á
háveginn og ég er að skoða land og
liti. Sæki mest af formunum í Suður-
landið, dálítið í Vesturlandið líka en
svo getur verið um hvaða hól eða
fjall að ræða sem er, bara úr mínum
hugarheimi.“
Gísli kveðst hafa fengist við mynd-
list alla ævi en ekki alvarlega fyrr
en eftir að hann hætti í grafískri
hönnun og kennslu. „Síðustu ár hef
ég gefið mér tíma til að fást við mál-
verkið,“ segir Gísli sem vinnur með
olíukrít. „Það eru fáir myndlistar-
Skoðar land og liti og sækir formin mest í Suðurlandið
menn að glíma við það verkfæri,
skilst mér. Ég nota krítina alltaf sem
skissutæki en er nú að gera myndir
sem eru allt upp í 1x1,40 m að stærð.“
Vinnustofan hans Gísla B. er í
gamla Myndlista- og handíðaskóla-
húsinu, hann kveðst hafa tengst því
húsi frá 1956, þegar hann hóf nám
við skólann og þar verður hann á
vaktinni frá tvö til sex fram á sunnu-
dag. – gun
Gísli b. björnsson hefur í auknum mæli fengist við myndlistina síðustu ár.
ÞEttA Er mAður sEm
hEfur VErið sAmtAls í
sjö ár sAmflEytt á böllum,
ÞAð Er Ansi lAngur tími. En
Eins og hAnn sEgir sjálfur Þá
Er hAnn hEPPinn mEð stAmínu
og byggingArlAg.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð