Fréttablaðið - 10.12.2015, Síða 74
Jólalest Coca-Cola fer í sína
árlegu hringferð laugar-
daginn 12. desember með
tilheyrandi ljósadýrð og
jólatónum. Þetta verður 20.
skiptið sem Jólalestin ekur
um Höfuðborgarsvæðið og
gleður íbúa og vegfarendur.
Fylgstu með ferð
Jólalestarinnar á coke.is.
leggur af stað
eftir 2 daga!
C
o
c
a
-C
o
la
a
n
d
t
h
e
C
o
n
to
u
r
B
o
tt
le
a
re
r
e
g
is
te
re
d
T
ra
d
e
m
a
rk
s
o
f
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.
#Jolalestin
Það er þannig að Biblíu-félagið er 200 ára á þessu ári og dagskrá tónleikanna tekur mið af því. Efnið tengist allt
textum Biblíunnar og tónlistin
hefur verið samin við þá. Samt er
það ansi fjölbreytilegt og ekkert
yfirmáta hátíðlegt allt, þar eru
ástarsöngvar og gleðisöngvar og
alls konar yrkisefni,“ segir Hólm-
fríður Sigurðardóttir píanóleikari
um tónleikana Ég hef augu mín til
fjallanna í Dómkirkjunni annað
kvöld. Ásamt henni kemur Margrét
Hannesdóttir sópransöngkona þar
fram.
„Við vorum beðnar um að spila
og syngja á þessum tónleikum og
höfum verið að æfa síðustu vikur.
Tónlistin er bæði íslensk og erlend
og má þar nefna Ljóðaljóð Páls
Ísólfssonar, Biblíuljóð Dvořáks,
sungin á íslensku og Rejoice úr
Messíasi eftir Händel,“ lýsir Hólm-
fríður. Hún segir þær Margréti oft
hafa unnið saman áður enda séu
þær frænkur.
„Margrét byrjaði að læra söng
í Söngskólanum í Reykjavík, þar
sem ég starfa sem píanóleikari.
Meðal kennara hennar voru Ólöf
Kolbrún og Diddú. Síðan fór hún í
framhaldsnám til Bandaríkjanna
og hefur oft komið fram, bæði hér
heima, í Þýskalandi og á Ítalíu,“
lýsir hún.
Tónleikarnir eru síðasti viðburð-
ur ársins vegna 200 ára afmælis
Biblíufélagsins. Þeir hefjast klukk-
an átta og eru ókeypis fyrir alla.
gun@frettabladid.is
Ástar- og gleðisöngvar í Dóm kirkjunni
Bækur
Nína S.
HHHHH
Hrafnhildur Schram
Útgefandi: Crymogea
Fjöldi síðna: 158
Bókarhönnun: Studio Arnar Freyr Guð-
mundsson, Birna Geirfinnsdóttir
Kápumynd: Sigurjón Guðjónsson
Eins og hafmeyja sem syndir sinna ferða
fór Nína Sæmundsson höggmyndalista-
kona aðrar leiðir en flest samferðafólk
hennar og líf hennar var hvorki hefð-
bundið né þjóðsagnakennt heldur
meira í ætt við hreinræktað ævintýri.
Þessi kotbóndadóttir og vinnukona úr
Fljótshlíð fann hjá sér þrá eftir einhverju
meiru en Reykjavík hafði upp á að bjóða
í upphafi tuttugustu aldar og fyrir sam-
bland af tilviljunum og ákveðni lá
leið hennar um þann heim sem fæstir
Íslendingar á þessum tíma gátu ímynd-
að sér, allt frá heilsuhæli í Ölpunum í
úlfaldaferð um eyðimerkur. Nína S. var
sveltandi listakona í París á þriðja ára-
tugnum, bjó lengi í Hollywood með
ástkonu sinni og kynntist þar mörgum
helstu goðsögnunum á upphafsárum
talmyndanna, var virt, eftirsótt og dáð
fyrir list sína víða um heim og flutti svo
heim til Íslands upp úr sextugu og bjó
við hógvær kjör til æviloka. Eitt það
verk sem henni þótti hvað vænst um,
Hafmeyjan sem stóð í stutta stund og
stendur nú aftur í Reykjavíkurtjörn, var
sprengt í loft upp af nafnlausum aðilum
sem töldu verkið „ósiðlegt“ en líklegra
má telja að það hafi verið líf og sjálfstæði
listakonunnar sem þótti fara of langt út
fyrir rammann.
Bókin um ævi Nínu S. er einstaklega
áhugaverð, sagan af þessari stórmerki-
legu konu sem fór þá leið sem hjartað
bauð henni, hvort sem var í ævistarfi
eða einkalífi, lýsir metnaði og ástríðu
Afrekshugur hafmeyjunnar Nínu Sæmundsson
Ég hef augu mín til fjallanna, er fögur yfirskrift tónleika í Dóm-
kirkjunni annað kvöld, föstudag. Þar syngur Margrét Hannes-
dóttir sópran og Hólmfríður Sigurðardóttir leikur á píanó.
Hólmfríður er móðursystir Margrétar og þær frænkur hafa oft unnið saman áður. Mynd/Úr einKaSaFni
Bedúínakona, frá 1922, eftir nínu Sæmundsson.
1 0 . d e S e m B e r 2 0 1 5 F I m m T u d A G u r54 m e N N I N G ∙ F r É T T A B L A ð I ð