Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 88
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
• Þrekhjól Cardio XTR
• Stærð 95x55x129 cm
• Þyngd 32kg
• Hámarksþyngd notanda 130kg
• Þjálfunarálag 35-260 Wött
• Hægt að stilla inn efri mörk hjartsláttar
• Púlsmælir í handföngum
• Skjár sýnir: Vegalengd, tíma, hraða,
snúning/mín, hitaeiningar og púls.
VERÐ: 99.000 KR
HAMMER ÞREKHJÓL
Ég var búin að sjá mynd af karlmanni með bleikt glimmerskegg hér og þar á samfélagsmiðlum og gat bara ekki stillt mig um að
prófa,“ segir Birna Jódís Magnúsdóttir
förðunarfræðingur sem brá á það ráð
að jólavæða kærastann, Þorgrím Tjörva
Hallgrímsson, svo um munaði.
Birna lét hendur standa
fram úr ermum og bjó
til sitt eigið efni til
glimmergerðar-
innar, en hún
hefur verið
iðin við að
prófa sig
áfram þegar
kemur að
s n y r t i -
v ö r u m ,
o g sý n t
afraksturinn
við góðan
orðstír á You-
Tu b e - r á s i n n i
sinni, þar sem hún
gengur undir nafn-
inu birnamagg. Hefur
glimmerskeggið vakið heilmikla
athygli og greinilega þörf á upplyftingu
fyrir skeggjaða.
Þó svo að útkoman hafi verið stór-
brotin er vinnan að baki dýrðinni mun
minni en menn gætu ímyndað sér og
því á svo gott sem allra færi. „Þetta tók
ekki nema kannski 10 mínútur í allt,
en ég setti augnskugga undir glimm-
erið til að „lita“ skeggið,“ bendir Birna
á og segir Þorgrím alsælan með með
nýja útlitið. „Hann fílaði sig mjög vel
Glimmervæddi
kærastann
á tíu mínútum
með skeggið. Hann hafði orð á því að
hann saknaði þess þegar hann vakn-
aði í morgun. Þetta er án efa eitthvað
sem við skellum í aftur, en ég held að
við verðum að fá okkur nýja ryksugu
fyrst,“ útskýrir hún og skellir upp úr,
en samhliða sindrandi skeggi var gólfið
undirlagt.
Birna segist hafa fengið fjölda fyrir-
spurna varðandi uppátækið.
„Já, fólk hefur sýnt
þessu mikinn áhuga
og hefur mjög
gaman af þessu.
Toggi hefur
me ira a ð
segja fengið
nýjar vina-
beiðnir á
Facebook
út á glimm-
erskeggið.
Svo virðist
f ó l k l í k a
ve ra m j ö g
áhugasamt um
hvernig húsið
mitt líti út, en ég
er auðvitað löngu
búin að moppa.“
Skyldi ekki hafa verið
bölvað vesen að ná
þessu úr skegg-
inu? „Nei,
alls ekki,
e i n
g ó ð
sturtu-
ferð og
s m á
sjampó,“
s v a r a r
Birna að
lokum og
hvetur aðra
s ke g g va x n a
og glimmersinn-
aða til að láta slag
standa. „Þó ekki nema
til að eiga bara af sér mynd
með glimmerskegg.“
gudrun@frettabladid.is
TónlisT
sóley
Ask the Deep
HHHHH
Morr Music
Í skáldsögunni High Fidelity spyr
poppnördinn, plötubúðareigand-
inn og aðalsögu-
hetjan Rob Gor-
don: „Hlustum
við á popptónlist
vegna þess að við
erum óhamingju-
söm, eða erum
við óhamingju-
söm vegna þess
að við hlustum
á popptónlist?“
Tónlist vekur
upp tilfinning-
ar, hún huggar,
hún fær okkur
til að finna til samkenndar
og samúðar, en hún getur einnig
rifið upp sár sem gróa aldrei full-
komlega. Þessi ást. Alltaf þessi full-
komna en vonlausa ást sem brennur
svo heitt en brennur svo út. Og eftir
er óhamingjan. Botnlaust dýpið.
Þekkja þetta ekki allir?
Ask the Deep er önnur breiðskífa
Sóleyjar Stefánsdóttur, sem kallar
sig einfaldlega Soley. Hún vakti
mikla og verðskuldaða athygli árið
2011 með frumrauninni We Sink.
Bera plöturnar mörg sameiginleg
einkenni, lágstemmdar og draum-
kenndar, en eiga þó báðar tvær
sinn eigin persónuleika – ef svo
má að orði komast. Á nýrri plötu
er Sóley að fikra sig áfram í nýjum
hljóðheimi raftónlistar í bland við
hefðbundnari hljóðfæri, slagverk
er áberandi og útsetningarnar eru á
tíðum einkar tilkomumiklar. Hljóð-
heimurinn fellur einkar vel að sög-
unni sem Sóley flytur áheyrendum
en sú saga er gullfalleg, brothætt,
sorgleg og jafnvel martraðar-
kennd í senn.
Fyrsta lagið,
D e vi l , s e t u r
t ó n i n n f y r i r
plötuna og inni-
heldur hina, ó,
svo lýsandi línu
„It‘s never sunny
anyway“. Ævintýr
er mjög sterkt lag
og textinn (ljóðið)
kallar upp sterkar
tilfinningar; viljum
við að leitandi og
ráfandi elskhugar
finni hvor annan?
Næstsíðasta lagið, Dreamers, er
alger negla, útsetningin „stór“ og
kraftmikil í anda sögunnar um
draumana sem geta kostað okkur
allt sem við eigum, sem takmarkast
ekki við neitt annað en botnlaust
hyldýpi sálarlífsins. En öll leggjum
við samt undir, ekki satt?
Björn Teitsson
niðursTAðA: Sterkasta verk Sóleyjar
inniheldur hæfilega tilraunamennsku,
fallegar útsetningar og framúrskarandi
texta.
Botnlaust hyldýpið
snarauðvelt
„Ég byrja á því að setja lit í skeggrótina og
skeggið, augnskuggi virkar vel. Svo nota
ég hárvax og skeggolíu sem lím og ber
síðan glimmerið í skeggið með bursta.“
Útkoman er stórglæsileg.
Birna hvetur sem
flesta til að skella
í glimmerskegg
fyrir hátíð-
arnar.
Þörfin fyrir að glimmerskreyta skegg kærastans
greip förðunarfræðinginn Birnu Jódísi
Magnúsdóttur og úr varð stórbrotið jólaútlit.
1 0 . D e s e m b e r 2 0 1 5 F i m m T u D A G u r68 l í F i ð ∙ F r É T T A b l A ð i ð