Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 10
Besta Hekluverðið
4.690.000 kr.
VW Passat GTE Tengiltvinnbíll / Sjálfskiptur / Vistvænn
Hér er aðeins sýndur hluti af bílum í boði. Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Nýr Volkswagen á Besta Hekluverðinu
Nú er góður tími til að fá sér nýjan Volkswagen hjá Heklu því við vitum aldrei
hvað svona frábært verð býðst lengi. Tryggðu þér Volkswagen á besta
Hekluverðinu og aktu inn í sumarið.
Besta Hekluverðið 6.990.000 kr.
VW Tiguan Allspace Comfortline+ 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn / Sjö sæta / Dráttarbeisli
Fullt verð: 7.635.000 kr.
645.000 kr.
Afsláttur
Besta Hekluverðið
4.490.000 kr.
VW T-Roc 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / Fjórhjóladrifinn
Auglýsing um próf til
viðurkenningar bókara
Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald, er fyrirhugað að
halda próf til viðurkenningar bókara 2018 sem hér segir:
Prófhluti I: Reikningshald 11. október 2018 –
prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Prófhluti II: Skattskil og upplýsingatækni 20. nóvember
2018 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Prófhluti III: Raunhæft verkefni 15. desember 2018 –
prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 18.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar
nr. 686/2015 um próf til viðurkenningar bókara og til
prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins www.anr.is.
Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 37.500.
Próftökugjöld skal greiða í síðasta lagi á eindaga sem verður
auglýstur síðar. Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé
skilyrðum 43. gr. laga nr. 145/1994 um að próftökumaður sé
lögráða og hafi forræði á búi sínu (að búið hafi ekki verið
tekið til gjaldþrotaskipta).
Væntanlegir prófmenn skulu skrá sig til prófs á heimasíðu
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins www.anr.is eða á
heimasíðu framkvæmdaraðila prófanna www.promennt.is
Reykjavík, 7. ágúst 2018
Prófnefnd viðurkenndra bókara
SIMBABVE Tendai Biti, fyrrverandi
fjármálaráðherra Simbabve, var í
gær dreginn fyrir dóm og ákærður,
sakaður um að hafa kynt undir
ofbeldi eftir kosningar sem fram fóru
á mánudaginn í síðustu viku. Biti er
hátt settur meðlimur stjórnarand-
stöðuflokksins Hreyfingin fyrir lýð-
ræðisumbætur (MDC).
Biti lýsti yfir sigri fyrir hönd for-
setaframbjóðanda flokksins stuttu
eftir kosningar, þrátt fyrir að úrslit
hafi ekki verið kynnt. MDC-liðar
sögðu að brögð væru í tafli, tafir
hafi orðið á tilkynningunni þar sem
landskjörstjórn væri að hagræða
úrslitum. Á miðvikudegi eftir kosn-
ingar brutust mótmæli MDC-liða út
í átök við lögreglu og fórust sex mót-
mælendur.
Eftir kosningarnar, sem flokkurinn
ZANU-PF vann, hefur Emmerson
Mnangagwa forseti beitt sér af hörku
gegn stjórnarandstöðu. Lýst var eftir
Biti og átta öðrum MDC-liðum í upp-
hafi vikunnar og var Biti handtekinn
á miðvikudaginn.
Biti var þá rétt kominn yfir landa-
mærin og til Sambíu þar sem hann
sótti um hæli en var fluttur aftur til
Simbabve. Hann á yfir höfði sér tíu
ára fangelsisdóm. „Þetta er mikil
þolraun en við lifum þetta af. Við
höldum áfram baráttunni,“ sagði Biti
þegar honum var sleppt úr fangelsi
gegn tryggingu.
Bandaríska ríkisstjórnin er á meðal
þeirra sem hafa sagst hafa áhyggjur
af ástandinu í Simbabve. Utanríkis-
ráðuneytið sagði á fimmtudaginn að
svo gæti farið að Sambíumönnum
yrði refsað fyrir að hafa framselt Biti.
Undir þetta hefur flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna tekið.
Sagt að það gæti verið alvarlegt brot
á alþjóðalögum að afhenda Biti
simb abvesku lögreglunni ef frá-
sögn lögmanns Biti um að hæsti-
réttur Sambíu hafi áður kveðið upp
úrskurð um að ekki mætti afhenda
Biti væri rétt.
Í gær sótti Nelson Chamisa, sem
laut í lægra haldi fyrir Mnangagwa,
stjórnlagadómstól heim þar sem
hann kærði kosningarnar. Dóm-
stóllinn hefur nú þrettán daga til að
kveða upp úrskurð í málinu.
thorgnyr@frettabladid.is
Stjórnarandstæðingur
ákærður í Simbabve
Simbabvesk yfirvöld hafa ákært stjórnarandstæðing fyrir að kynda undir of-
beldi. Hann hafnar sök. Bandaríkin gagnrýna aðgerðir gegn stjórnarandstöð-
unni og SÞ segja að Sambía gæti hafa framið lögbrot með framsali mannsins.
Tendai Biti í járnum í Harare, höfuðborg Simbabve. NORDICPHOTOS/AFP
1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð