Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 95
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
11. ÁGÚST 2018
Viðburðir
Hvað? Listamenn á Langanesi
Hvenær? 15.00
Hvar? Sauðaneskirkja
Hópur listamanna hefur skipu-
lagt vinnustofudvöl á Langanesi
í samvinnu við Langanesbyggð
sem lýkur með listviðburðum um
helgina, 11.-12. ágúst. Alls hafa
þrettán listamenn dvalið á svæð-
inu en verkefnið er skipulagt af
fjórum listamönnum. Markmiðið
með dvölinni er að skapa rými
fyrir tilraunamennsku, hugmynda-
flæði og búa til nýjar tengingar
milli fólks og lands. Verkefnið er
nefnt eftir röstinni út við Font á
Langanesi. Meðal viðburða eru
tónleikar, samsýning listamanna í
Sauðaneshúsi ásamt hugbúnaðar-
hljóðinnsetningu eftir Freyju Eilíf í
Sauðaneskirkju sem verður opnuð
laugardaginn 11. ágúst klukkan
15.00 og dagslangur gjörningur
Hildar Ásu Henrýsdóttur í sund-
laug Langanesbyggðar sunnu-
daginn 12. ágúst.
Hvað? Reykjavík Food Festival
Hvenær? 16.00
Hvar? Skólavörðustígur
Matarmiðar verða seldir í miða-
sölutjöldum sem staðsett verða á
nokkrum stöðum á Skólavörðu-
stígnum. Miðaverð er 3 miðar
á 1.000 kr. Boðið verður upp á
fjölda skemmtiatriða, lifandi tón-
list og ýmislegt fleira sem mun
gera hátíðina að sannkallaðri
veislu fyrir augu og eyru, sem og
auðvitað bragðlaukana! Veitinga-
staðirnir sem munu kokka upp og
framreiða krásirnar eru Kol, Kola-
brautin, Sjávargrillið, Ostabúðin,
Sakebarinn, Krua Thai og Rib
With in – Bacon Guru/Stjörnugrís.
Hvað? Opnun sýningar Nínu Gauta
Hvenær? 16.00
Hvar? Tryggvagötu 17
Sýningin er opin alla daga nema
mánudag frá kl. 14 -18 til 12. ágúst.
Hvað? Myndlistarsýning | Söngvar
sálarinnar
Hvenær? 15.00
Hvar? Bókasafn Kópavogs
Alexandra Martini sýnir draum-
kenndar olíumyndir sem lýsa þörf
hennar til að tjá innri tilfinningar.
Hún sækir innblástur í reynslu
sína af því að vera kona í nýju
landi og í gegnum listina fjallar
hún um kynþætti, tungumál, ein-
manaleika og kraft kvenna þegar á
móti blæs
Hvað? Golfmót Liverpool klúbbsins
Hvenær? 07.30
Hvar? Hlíðavöllur
Skylda er að vera vel merktur
Liverpool Football Club í mótinu,
mótsstjórn er heimilt að vísa
mönnum frá séu menn ómerktir
eða „illa“ merktir. Mótið er
punktakeppni með forgjöf þar sem
hámarksforgjöf er 24 hjá körlum
en 28 hjá konum.
Sunnudagur
12. ÁGÚST 2018
Viðburðir
Hvað? Vegan Festivalið
Hvenær? 12.00
Hvar? Þórsplanið
Samtök grænmetisæta á Íslandi
og Vegan samtökin standa fyrir
Vegan Festivali á Thorsplani í
Hafnarfirði sunnudaginn 12.
ágúst. Það verða grillaðar vegan-
pylsur ásamt öllu meðlæti til
styrktar samtökunum og einnig
munu ýmsir aðilar bjóða upp á
veganvörur og veitingar til sölu
bæði á torginu og í verslunum í
kring. Heimsþekkta Vegan drag-
drottningin Honey LaBronx mun
sjá um að halda uppi stuðinu!
Hvað? Kampavínssmökkun
Hvenær? 17.00
Hvar? Port 9, Veghúsastíg
Hvað? Sambahátíð í Selárdal
Hvenær? 12.00
Hvar? Listasafn Samúels
Félag um endurreisn listasafns
Samúels Jónssonar í Selárdal var
stofnað vorið 1998 og fagnar því
tuttugu ára afmæli sínu á þessu
ári. Félagið hefur í hátt á annan
áratug sinnt viðgerðum á lista-
verkum og byggingum Samúels.
Gerhard König myndhöggvari
hefur frá upphafi verið verkstjóri
viðgerðanna. Sjálfboðaliðar frá
hátt í tuttugu þjóðlöndum hafa
komið að verkefninu, undanfarið
með stuðningi Vesturbyggðar.
Smakk á kampavíni og smáréttum.
Verðið er 10.000 kr. á mann.
Hvað? Klappstýrunámskeið
Hvenær? 15.00
Hvar? Primal Ísland
Á námskeiðinu kennir finnski
klappstýruþjálfarinn Ismo Kor-
honen grunnatriði klappstýru-
trixa, kennir akrótrix fyrir smærri
og stærri hópa og kynnir okkur
klappstýruheiminn. Markmið
námskeiðsins er að þátttakendur
læri að framkvæma hinar áhættu-
sömu listir á öruggan hátt og geti
að námskeiðinu loknu haldið
æfingum áfram sjálfstætt.
Hvað? Sápukúluvinnustofa
Hvenær? 13.00
Hvar? Hönnunarsafn Íslands
Kúluformið var Einar Þorsteini
Ásgeirssyni, arkitekt og stærð-
fræðingi, afar hugleikið, enda eitt
af hagkvæmustu formum náttúr-
unnar. Í tengslum við skráningu á
verkum Einars Þorsteins í Hönn-
unarsafni Íslands bjóða hönnuð-
irnir Björn Steinar Blumenstein og
Steinunn Eyja Halldórsdóttir upp á
sápukúluvinnustofu fyrir börn og
fullorðna. Þátttakendur búa til sín
eigin sápukúluverkfæri og prófa
sig áfram. Vinnustofan er í boði
Hönnunarsafnsins.
KÓRSTJÓRI ÓSKAST!
voxfeminae@voxfeminae.is
Umsókn
voxfeminae.is
Kvennakórinn
Vox feminae
Kynntu þér frábær skólatilboð
á snjöllum græjum í næstu
verslun eða á vodafone.is
Ertu til?
Framtíðin er spennandi.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 45L A U G A R D A G U R 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8