Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 102
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Lífið í
vikunni
05.08.18-
11.08.18
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Sumarútsala
í fjórum búðum
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
LOKAHELG
IN
Það er alveg l í k l e g t að við tökum e i t t -hvað
nýtt en annars
verður fókusinn
á Utangarðs-
menn, Das Kapi-
tal, Egó, þetta
r o k k st ö f f s e m
við allir dýrkum,“
segir Birgir Jónsson,
trommarinn taktfasti í
Dimmu, en hljómsveitin hefur
verið að æfa með Bubba Morthens
að undanförnu og dusta rykið af far-
sælu sambandi.
Bubbi og Dimma ætla að spila
á nokkrum tónleikum og verður
miðasala opnuð á mánudag. Þeir
ætla ekki að taka einhverja stórtón-
leika heldur staði þar sem er heitt og
svolítið sveitt.
„Við ákváðum að taka smá snúning
sem byrjar á Menningarnótt. Fljót-
lega kviknaði hugmyndin
um að fara að gera
nýtt efni líka. Eitt-
hvað frumsamið
sem við myndum
jafnvel gefa út en
án allrar pressu.
Við ætlum ekki að
skuldbinda okkur
neitt, kannski
kemur plata og
kannski eitt lag og
kannski ekkert. Þegar
allir eru sáttir þá gerist
eitthvað,“ segir Birgir.
Hann segir að þegar þeir komi
saman gerist einhverjir töfrar en
allir séu þeir æfinganördar sem elski
fátt meira en að telja í. „Við æfðum
á hverjum degi í þrjá mánuði fyrir
giggið í Hörpu. Alltaf kl. 17 og á
laugardagsmorgnum kl 10. Í öllu
því ferli skapaðist einhver fílingur
og vinskapur sem hefur haldist. Þetta
er eiginlega of skemmtilegt til að láta
þetta ekki rúlla aðeins lengur.“
Birgir segir að nýja efnið sé svolítið
af gamla skólanum og hann sé sáttur
við það sem hefur fengið að hljóma
á æfingunum sem taka á flesta nema
Bubba. Hann blæs varla úr nös.
„Bubbi er eins og þrítugur íþrótta-
maður. Hann er kjarnorkuver, þessi
maður.
Maður er enn að komast yfir
það hverslags forréttindi það eru
að flytja lögin hans með honum
sjálfum. Hann er einn merkilegasti
listamaður þjóðarinnar og maður
byrjaði að pikka upp Fjöllin hafa
vakað og Hiroshima þegar maður
var tíu ára enda samdi hann nánast
alla íslensku rokkbiblíuna.“
benediktboas@frettabladid.is
Bubbi og Dimma
sameinuð á ný
Bubbi Morthens og Dimma ætla að leiðast hönd í hönd um landið
og halda nokkra magnaða rokktónleika á litlum stöðum. Nýtt efni
gæti heyrst en strákarnir hafa verið duglegir að semja undanfarið.
„Þetta verkefni núna er bara gert af ást og virðingu og vináttu. Við þurfum þetta ekkert, og hann þarf þetta ekkert.
Við bara elskum að spila saman,“ segir Birgir Jónsson trommuleikari sem hér stendur í miðjunni. MYND/SPESSI
Staðfestar dagsetningar
● 22. sept. Græni hatturinn
● 28. sept. Frystiklefinn, Rifi
● 29. sept. Bæjarbíó, Hafnarfirði
● 06. okt. Alþýðuhúsið, Vest-
mannaeyjum
Birgir Jónsson.
Förðunarfræðingur frá Holly-
wood kennir á Íslandi
Förðunar-
fræðingurinn
Thalía
Echeveste
er flutt til
Íslands með
kærastanum
sínum en hún
hefur komið að
förðun í fjölmörgum
kvikmyndum og þáttum, meðal ann-
ars Narcos, Spectre, Point Brake og
Rogue One. Hún kennir nú við Mask
Academy í Hæðarsmára.
Gleðisprengja í kvöldsólinni
í Hvammsvík
Skúli Mogensen, forstjóri WOW
air, tók forskot á sæluna og bauð
til risaveislu í Hvammsvík þar
sem fjölmargir fögnuðu
forstjóranum fimm-
tuga. Stuðmenn,
brenna, listaverk,
kampavín og frægt
fólk í þemafötum
gerðu veisluna
að dúndurgleði.
Þemað var tweed-
föt og voru gestir
margir hverjir í glæsi-
legum fötum.
Hljóðfæri Vintage Caravan
týnd á Spáni
Martraðarflugferð meðlima The
Vintage Caravan með flugfélaginu
Vueling frá Barcelona lauk þannig
að þeir fóru heim tómhentir. Engin
hljóðfæri voru um borð og bíða
þeir og vona það besta. Hljóðfærin
skiluðu sér svo að lokum í gærdag.
Lag og Evróputúr
Arnór Dan Arnarson, söngvari í
Agent Fresco, gaf út sitt fyrsta lag
sem heitir Stone by Stone. Fyrir utan
að gefa lagið út er hann að skipu-
leggja Evróputúr og næstu plötu
hljómsveitarinnar.
1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð