Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 12
HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega sjötíu
manns hlaupa fyrir góðgerðar-
félagið Gleym mér ei í Reykjavíkur-
maraþoni Íslandsbanka um næstu
helgi og safna fyrir nýrri herferð og
vitundarvakningu sem er ætlað að
bjarga barnslífum.
Gleym mér ei er félag með þann
tilgang að halda utan um sjóð sem
notaður er til að styrkja ýmis mál-
efni í tengslum við missi barns á
meðgöngu eða í/eftir fæðingu.
„Við stefnum á það að safna þrem-
ur milljónum fyrir „Spörkin telja“,
fyrirbyggjandi fræðsluherferð þar
sem verðandi mæðrum er kennt
að þekkja hreyfingar barnsins síns
á seinni parti meðgöngu. Það hafa
aldrei jafn margir hlaupið fyrir
okkur,“ segir Anna Lísa Björnsdóttir,
einn stofnandi félagsins.
Árið 2015 voru 10 andvana fæð-
ingar á Íslandi. „Ef vel gengur, eins
og til dæmis í Hollandi, væri mögu-
lega hægt að bjarga sex börnum
á hverju ári,“ segir Anna Lísa frá.
„Þar í landi taka ljósmæður og
aðrir heilbrigðisstarfsmenn þátt í
að fræða verðandi mæður. Hlutfall
þeirra barna sem er áætlað að sé
bjargað á hverju ári er um 60% og
það má því með sanni segja að það
er til mikils að vinna.“ Góðgerðar-
félagið hefur unnið að fjölmörgum
verkefnum frá stofnun þess fyrir um
fimm árum. Til að mynda gefið kæli-
vöggur til heilbrigðisstofnana. Kæli-
vaggan gefur foreldrum barna sem
hafa látist við fæðingu meiri tíma til
að vera með barninu. Vaggan heldur
líkama þess hæfilega köldum og því
geta foreldrar haft barnið hjá sér í
allt að tvo sólarhringa, í stað örfárra
klukkutíma eins og áður. Félagið gaf
síðast kælivöggu til útfararþjónustu
Kirkjugarða Reykjavíkur.
„Þá geta foreldrar fengið að taka
krílin með heim og eiga rólega stund
með aðstandendum,“ segir Anna
Lísa og segir þá þjónustu foreldrum
að kostnaðarlausu. „Útfararstofan
tekur á sig að aðstoða foreldrana en
við gáfum þeim kælivögguna sem
kostar rúmlega 400.000 krónur,“
segir Anna Lísa frá.
Þá safnaði félagið fyrir endurbót-
um á duftreit fyrir fóstur í Fossvogs-
kirkjugarði í samstarfi við Kirkju-
garða Reykjavíkur. Grafreiturinn er
nú endurbættur og þykir prýði.
Eitt af nýlegum verkefnum félags-
ins er gjöf til foreldra sem missa
börn á meðgöngu. Minningarkassi
um barnið til að taka með sér heim.
Brynja Ragnarsdóttir, fæðingar-
læknir á kvennadeild LSH, fagnar
átakinu. „Árangur af fræðslu um
minnkaðar hreyfingar er studdur
góðum rannsóknum. Fræðslan þarf
að vera bæði til starfsmanna mæðra-
verndar og til verðandi mæðra. Við
styðjum átakið og tökum fullan
þátt í því. Hér verður farið yfir alla
verkferla,“ segir Brynja og segir að
þótt tíðni andvana fæðinga sé lág á
Íslandi sé til mikils að vinna.
Hlaupa í minningu dóttur sinnar
Matthías Friðriksson og Gerður Rún
Ólafsdóttir eru á meðal þeirra sem
hlaupa fyrir samtökin. Þau misstu
dóttur sína, Líf Matthíasdóttur,
fimm daga gamla.
„Við höfum góða reynslu af sam-
tökunum. Þau hjálpuðu okkur í
janúar 2018 þegar við misstum
dóttur okkar, Líf Matthíasdóttur.
Hún var aðeins 5 daga gömul þegar
hún lést. Gleym mér ei færði okkur
minningarkassa sem innihélt ýmsa
fallega og nytsamlega hluti sem
komu sér vel á erfiðum tíma. Þau
gáfu einnig Kvennadeild LSH kæli-
vögguna sem við fengum afnot af
eftir andlát Lífar,“ segir Matthías.
„Við viljum leggja okkar af mörk-
um til að heiðra minningu Lífar og
styrkja þannig félagið til að hlúa
enn betur að foreldrum sem missa
börn á meðgöngu, í fæðingu eða
nýbura. Hreyfing er góð leið til að
dreifa huganum og liggur hún vel
fyrir okkur svo að taka þátt í stærstu
fjáröflun Gleym mér ei átti vel við,“
segir Gerður Rún.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Bjarga barnslífum með fræðsluátaki
Anna Lísa, einn stofnenda styrktarsjóðsins Gleym mér ei, í duftreitnum í Fossvogskirkjugarði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gerður Rún og Matthías heiðra
minningu dóttur sinnar.
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við
þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð
myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. Slakaðu á. EyeSight er staðalbúnaður í Subaru Forester LUX, bensín.
Subaru Forester Premium, sjálfskiptur. Verð frá: 4.990.000 kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
N
N
E
M
M
N
E
M
/
S
ÍA
/
/
S
ÍA
/
/
S
ÍA
//
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
N
M
8
9
3
8
9
3
N
M
8
9
3
2
8
2
8
2
8
2
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
Læknar, ljósmæður
og heilbrigðisstarfs-
menn munu taka þátt í
nýju fræðsluátaki sem
sannað þykir að bjargar
barnslífum. Mæðrum
verður kennt að þekkja
hreyfingar barns síns á
seinni hluta meðgöngu.
Rúmlega sjötíu manns
hlaupa og safna fyrir
fræðsluátakinu.
frettabladid.is Lengri útgáfa af
greininni er á frettabladid.is
1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð