Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 94
Heimsendir er ný skáldsaga eftir Guðmund Stein-grímsson. Þetta er önnur skáld-saga hans, sú fyrri, Áhrif mín á mannkynssöguna, kom út 2003. Það hafa því liðið fimmtán ár milli þessara tveggja bóka. Höf- undurinn er fyrst spurður af hverju þessi tími hafi orðið svo langur. „Þetta er saga sem ég byrjaði á strax árið 2004 og lét gerast það ár og breytti því ekki þegar ég fór að ljúka við hana,“ segir Guðmundur. „Sagan lá lengi hjá mér og þegar ég fór á þing þá var hún lítið meira en skjal í tölvunni minni sem ég opn- aði stundum. Svo kom að því að ég ákvað að klára hana og komst að því að tíminn hafði unnið með henni. Það var allt öðru vísi ferli að skrifa þessa skáldsögu en þá fyrri og tók miklu lengri tíma, en það varð líka að vera þannig. Ég verð ekki svona lengi að skrifa næstu bók. Þegar fyrsta skáldsagan mín fór í prentun 2003 þá var ég á nálum og var hjá forlaginu með lífið í lúk- unum að gera breytingar á síðustu stundu. Lokabreytingar sem ég gerði á þessari skáldsögu tók ég síðan út, sem mér finnst benda til að hún hafi verið komin í ágætt jafn- vægi. Mér finnst ég vera eins konar erindreki þessarar bókar, frekar en höfundur hennar. Það er eins og hún hafi skrifaði sig hægt og rólega í gegnum mig, öll þessi ár.“ Viðureignin við leiðindin Hvernig myndirðu lýsa umfjöllunar- efni bókarinnar? „Hún fjallar um ungan blaða- mann, Leif, sem árið 2004 ákveður að njóta lífsins með Unni, kærustu sinni, og fara til Bandaríkjanna. Þetta á að vera lífsnautnaferð þar sem á að elta drauminn en allt fer á annan veg. Bókin fjallar um drauminn, frelsið og viðureignina við leiðindin í lífinu. Tilveran finnst mér eilíft undr- unarefni og maður endar alltaf einhvers staðar. Á dögunum var ég allt í einu kominn á seglbretti í Skerjafirði þar sem ég missti stjórn á brettinu og synti í land. Ég hló og hugsaði: Þegar ég vaknaði í morgun ætlaði ég ekki að vera hérna. Mér finnst þetta oft vera svona, í stóru jafnt sem smáu. Það er eins og til- veran taki mann í munninn, velti manni um og skyrpi manni svo út einhvers staðar. Núna er ég útgef- andi útivistartímarits með Róberti Marshall á skrifstofu á Klapparstíg. Fyrir ekki svo löngu síðan var ég alþingismaður. Ég held að galdurinn við að lifa lífinu og njóta þess sé að taka hinni óvæntu hlið tilvistar- innar fagnandi og með ákveðinni aðlögunarhæfni. Í inngangskafla bókarinnar, sem ég skrifaði undir lokin, er aðalper- sónan að reyna að átta sig á því hvað hún hefur skrifað. Alveg eins og ég sjálfur er ekki nákvæmlega viss um hvað bókin fjallar, þá er aðalper- sónan það ekki heldur. Hún fjallar á einhvern hátt um frelsi og það að vera til og hvernig draumurinn getur falið í sér fallið. Þetta er til- vistarleg spennusaga. Bókin er fyrstu persónu frásögn og allt sem gerist þar eru hlutir sem ég hef séð eða heyrt af. Að því leyti er þetta stúdía í því hvað lífið getur verið ótrúlegt. Þetta er líka sam- tímaævintýri: Ungur maður fer út í heim og berst við dreka.“ Aðalpersónan heitir Leifur Eiríks- son, það er varla tilviljun? „Það er engin tilviljun. Leifur ætlaði til Grænlands að heimsækja pabba sinn en endaði með því að finna Ameríku og vissi ekki hvernig hann ætti að bregðast við því og fór þaðan.“ Raunverulegar tilfinningar Á bókarkápu er Leifi lýst sem rót- lausum blaðamanni. Þú þekkir blaðamennsku af eigin raun, varstu rótlaus? „Það er óhætt að segja að ég hafi verið það á þeim tíma. Mér finnst gaman þegar fólk sem les söguna heldur allt fram í miðja bók að þetta sé sjálfsævisaga. Tilfinningarnar sem ég er að fjalla um og krauma þarna undir niðri eru allar raun- verulegar og eiga sér stað í eigin sálar lífi. Á þann hátt er maður alltaf að fjalla um sjálfan sig. Karakterarn- ir eru svo sambland af einhverju úr veruleikanum. Sjálfum finnst mér ég þekkja þá og gæti allt eins átt von á að mæta þeim á förnum vegi.“ Má flokka bókina sem skemmti- sögu? „Hún er það, en ekki bara það. Nú eru að leka til mín vitnisburðir frá fólki sem hefur verið að lesa bókina. Mér finnst mjög gaman að heyra tvennt, að fólk hafi ekki getað lagt hana frá sér heldur lesið í einum rykk og þótt hún spennandi, og að það hlær upphátt. Ég vil skrifa skemmtilegar bækur.“ Stjórnmálamaður leysir morðgátu Það er ólíklegt að þetta verði síðasta skáldsaga þín. Heldurðu að þú eigir eftir að skrifa skáldsögu sem þú bygg- ir á reynslu þinni af stjórnmálum? „Ég er með hugmyndir að fjórum til fimm bókum sem mig langar mjög mikið til að skrifa. Eina bók langar mig til að skrifa um mig, reynslu mína af stjórnmálum og við- horf mitt til þeirra. Skjalið „Bók um stjórnmál“ er til í tölvunni minni. Heimur stjórnmálanna er gríðar- lega forvitnilegur og margir vilja alls ekki fara inn í hann. Stjórnmálin eru núna að ýmsu leyti á krossgötum og það er spennandi að skrifa um það. Svo er ég byrjaður á annarri bók sem á að fjalla um gamlan fyrr- verandi stjórnmálamann, algjöran durt.“ Á hann sér fyrirmynd? „Hann á sér margar fyrirmyndir, en mig langar til að finna fallega tóninn í honum. Þetta á að vera spennusaga og stjórnmálamaður- inn leysir morðgátu. Þetta gæti orðið næsta bók, ég er allavega byrj- aður að skrifa hana.“ Tilvistarleg spennusaga Nýjasta skáldsaga Guðmundar Stein- grímssonar heitir Heimsendir og er samtímaævintýri. Er að skrifa bók þar sem stjórnmálamaður leysir morðgátu. „Mér finnst gaman þegar fólk sem les söguna heldur allt fram í miðja bók að þetta sé sjálfsævisaga.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN MÉR FINNST ÉG VERA EINS KONAR ERINDREKI ÞESSARAR BÓKAR, FREKAR EN HÖF- UNDUR HENNAR. ÞAÐ ER EINS OG HÚN HAFI SKRIF- AÐI SIG HÆGT OG RÓLEGA Í GEGNUM MIG, ÖLL ÞESSI ÁR. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Á einum stað, framarlega í Heimsendi, segir: „Þetta er saga um myrkar langanir, duldar fýsnir og ást. Hér greinir frá tveimur manneskjum sem sönnuðu það sem Fellini sagði um fólk, að fólk væri eins og hundar, það langaði til að tala en gæti bara gelt. Og urrað. Og bitið. Og glefsað. Þetta er játning, lesandi góður. Þetta er afhjúpun. Svona er ver- öldin. Svona var ég og svona er ég kannski ennþá. Ég veit það ekki. Ég vona að ég verði ekki sakaður um að draga undan. Ég hef ekki sagt neinum frá þessu áður, í það minnsta ekki almennilega.“ Eins og hundar 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.