Fréttablaðið - 18.04.2015, Síða 70
| ATVINNA |
Brammer Group er leiðandi fyrirtæki í Evrópu með yfir 50 ára reynslu sem dreifingaraðili
á iðnaðar-og rekstrarvörum. Brammer er þekkt fyrir hágæða vörur og sveigjanlega þjónustu.
Þessi þjónusta er okkar góða starfsfólki fyrst og fremst að þakka.
Brammer á Íslandi starfrækir vöruhús staðsett á svæði Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð.
Brammer sér um innkaup og lagerhald, ásamt tæknilegri ráðgjöf fyrir Alcoa Fjarðaál og veitir 24
tíma þjónustu allt árið um kring. Einnig starfrækir Brammer verslun í Hafnarfirði og skrifstofu í
Reykjavík. Brammer er ört stækkandi fyrirtæki á Íslandi með um 50 starfsmenn.
Brammer auglýsir eftir verk- eða tæknifræðingi til að starfa
við ferlaþróun, umbætur og innleiðingu nýrra tæknilausna.
Starfslýsing
Brammer óskar eftir að ráða einstakling til vinnu við ferlaþróun, stöðugar umbætur og nýrra tæknilausna fyrir Alcoa Fjarðaál.
Starfið felur í sér mikla samvinnu við verkfræði- og viðhaldsdeildir Alcoa Fjarðaáls, ásamt framleiðslu sérfræðingum .
Einnig felur starfið í sér upplýsingaöflun og tilboðsgerð, ásamt gerð vörulýsinga til skráningar í birgðakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
-verkfræði eða tæknifræðimenntun
-reynsla og þekking af iðnaði
-reynsla af þjónustu
-frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt og í hóp
- góð tölvukunnátta
- góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Annað
Þetta er spennandi valkostur hjá fyrirtæki sem vinnur í nánu samstarfi við Alcoa Fjarðaál sem og Alcoa Inc.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Áhugasamir umsækjendur
Ferilskrá sendist til Jóhanns Eðvalds Benediktssonar á netfangið johann.benediktsson@brammer.biz, sem svarar jafnframt fyrirspurnum um
starfið.
Starfsstöð: Brammer InsiteTM innan lóðar Alcoa Fjarðaáls • Starfshlutfall: Fullt starf • Dagsetning ráðningar: Samkomulag
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2015
Staða skólastjóra Grunnskóla
Snæfellsbæjar er laus til umsóknar
Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 270 nemenda
grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík, á Hellissandi
og á Lýsuhóli. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og
hæfu starfsfólki. Mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun
náms og fjölbreytta kennsluhætti, með það að markmiði að
gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og
lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur mikla áherslu á kennslu
í átthagafræði, allar starfsstöðvar flagga Grænfána, eru
þátttakendur í Olweusarverkefninu gegn einelti og starfsfólk
hefur á undanförnum misserum lagt mikla vinnu í innleið-
ingu nýrrar Aðalnámskrár með það að markmiði að byggja
skólastarfið á þeirri vinnu frá hausti 2015.
Hlutverk skólastjóra er að vera í forystu við að skapa
umgjörð sem eflir áhuga nemenda og árangur. Hann leiðir
stjórnendateymi skólans og skapar hvetjandi starfsumhverfi
fyrir nemendur, kennara og aðra starfsmenn með það að
markmiði að gera skólann sífellt betri. Hann er opinn fyrir
samstarfi við bæði leik- og tónlistarskóla auk samstarfs
við aðra grunnskóla á svæðinu. Umsækjandi þarf að hafa
leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metn-
aðarfulla skólasýn.
Skólastjóri er talsmaður skólans í samskiptum við opinbera
stjórnsýslu á sviði menntamála, gagnvart fræðsluyfirvöldum
og í öllum samskiptum skólans út á við.
Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingi sem getur leitt
kraftmikið og gott skólastarf, verið reiðubúinn til að leita
lausna og á gott með samskipti við nemendur, kennara og
foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur.
• Kennarapróf er skilyrði.
• Kennslu- og/eða stjórnunarreynsla í grunnskóla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða
uppeldis- eða kennslufræði æskileg.
• Reynsla af fjármálastjórnun.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skipulagshæfileikar.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá
sem inniheldur vísun í umsagnaraðila. Auk þess skal
umsókn fylgja greinargerð um ástæður fyrir umsókn og sýn
umsækjanda á skólastarf í Snæfellsbæ til framtíðar auk
lýsingar á þeim verkefnum sem umsækjandi hefur leyst
og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna skólastjóra-
starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 5. maí 2015, og
skal umsóknum skilað til bæjarstjóra, Kristins Jónassonar,
Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, 360 Hellissandur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri í síma 894-7575 og í tölvupóstfanginu kristinn@
snb.is, Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar í síma 894-9903 og í tölvupóstfanginu maggi@
gsnb.is og Örvar Marteinsson, formaður fræðslunefndar í
síma 863-5026 og í tölvupóstfanginu orvarmarteins@simnet.
is .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar
sveitarfélaga.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2015. Í samræmi
við jafnréttisstefnu Snæfellsbæjar eru karlar jafnt sem kon-
ur hvött til að sækja um stöðuna.
Rekstrarstjóri
Hjá Íslenska Gámafélaginu starfa 240 manns víða um land en fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum upp á
heildarlausnir á sviði umhverfisþjónustu.
Mannauðsstefna fyrirtækisins sækir stuðning í heimspeki fisksins ,,Fish Philosophy“.
Mannauðsstefnan lýsir vilja fyrirtækisins til að vera framúrskarandi vinnustaður, þar
sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda
jafnræðis. Mannauðsstefnunni er ætlað að tryggja starfsmönnum sem
best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Helga Fjóla Sæmundsdóttir,
framkvæmdastjóri starfsmannasviðs. Umsóknir og
fyrirspurnir óskast á heimasíðu fyrirtækisins,
http://umsokn.gamur.is, en umsóknafrestur
er til og með 22. apríl 2015.
Íslenska Gámafélagið óskar eftir að ráða rekstrarstjóra til starfa.
Um er að ræða starfsstöðvar fyrirtækisins á Akranesi, í Borgarnesi
og í nærsveitum.
Gufunesi gamur.is 577 5757
Hæfniskröfur:
Meirapróf
Vinnuvélaréttindi eru æskileg
Rekstrar- og stjórnunarreynsla er kostur
Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður
og vandvirkni
Samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
Helstu verkefni:
Rekstrarstjóri stýrir viðkomandi landshluta í
samráði við framkvæmdastjóra rekstrarsviðs
Daglegur rekstur og stjórnun
Tengiliður við verkkaupa og viðskiptavini
Áætlana- og tilboðsgerð
Vinnutímaskráningar og verkbókhald
Til hvers að flækja hlutina?
365.is | Sími 1817
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR20