Fréttablaðið - 19.12.2015, Síða 2
Veður
Í dag er spáð hvassri norðaustanátt
með snjókomu eða slyddu, einkum
norðaustanlands. Dregur úr frosti og hlánar
allra syðst. Sjá SÍðu 92
Hrollvekja og glens í Melabúðinni
Landbúnaður Lögreglan á Akur-
eyri hefur síðustu daga haft í nógu
að snúast í hrossasmölun norðan
Akureyrar. Eftir snjóatíð undan-
farið hafa margar girðingar farið í
kaf. Einnig hafa jarðbönn orðið í
mörgum túnum og hross því farið
af stað í leit að æti.
„Já, það hafa komið tilvik þar
sem við höfum verið að smala
hrossum af vegum til að gæta
öryggis bæði dýra og vegfarenda,“
segir Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri.
Þann 9. desember sem og
tveimur dögum síðar þurftu lög-
reglumenn á Akureyri að sinna
útköllum þar sem hross voru farin
úr hólfum sínum. Mikið hafði
snjóað þá daga og girðingar fóru á
kaf. Þann 9. þurftu lögreglumenn
að koma hrossum af þjóðvegi 1
rétt norðan Akureyrar í svarta-
myrkri. Tveimur dögum seinna
þurftu svo lögreglumenn að smala
hrossum innan bæjarmarka Akur-
eyrar. Náðist að króa hrossin af á
leikvelli barna ofarlega í bænum
þar sem eigendur vitjuðu hrossa
sinna.
„Það er stórhætta þegar svona
stórar skepnur fara úr girðingum
og upp á vegi,“ segir Daníel yfirlög-
regluþjónn. „Viljum við því biðla
til bænda og eigenda búfjár á þess-
um slóðum að huga að girðingum
sínum. Ef ekki er hægt að halda
hólfum girtum er nauðsynlegt að
taka hesta á hús svo ekki skapist
stórhætta.“
Sigfús Ólafur Helgason, fram-
kvæmdastjóri hestamannafélags-
ins Léttis á Akureyri, tekur undir
orð yfirlögregluþjónsins á Akur-
eyri og þakkar fyrir að ekki hafi
orðið slys.
„Við höfum beint því til eigenda
hrossa á svæðinu að huga að úti-
gangi. Girðingar eru komnar á kaf
og enga beit er að finna í mörgum
hólfum. Því þarf að gefa hrossum
úti og huga vel að girðingum. Við
höfum einnig fengið fjölda ábend-
inga um laus hross á svæðinu. Það
er mjög mikilvægt í því árferði sem
nú er að gæta að því að hross fari
ekki af stað. Um leið og hross fá
ekki beit í hólfum sínum fara þau á
flæking og því er voðinn vís,“ segir
Sigfús Ólafur. sveinn@frettabladid.is
Stórhætta af hrossum í
nágrenni Akureyrar
Girðingar í nágrenni Akureyrar eru margar hverjar á kafi og hross eiga greiða
leið upp á þjóðvegi. Stórhættulegt ástand, segir yfirlögregluþjónn. Formaður
hestamannafélagsins Léttis á Akureyri tekur undir varnaðarorð lögreglunnar.
Hross í vetrarhaga. Girðingar á kafi í snjó og jarðbönn gera það að verkum að
hrossastóð fara á flakk í leit að æti. Getur það skapað stórhættu á vegum í skamm-
deginu. Fréttablaðið/GVa
Um leið og hross fá
ekki beit í hólfum
sínum fara þau á flæking og
því er voðinn vís.
Sigfús Ólafur Helga-
son framkvæmda-
stjóri hestamanna-
félagsins Léttis á
Akureyri
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
Páskaferð til Dublin
24.- 28. mars
Verð frá 89.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
Á mann m.v. 2 í herbergi með morgunverði á
O´Callaghan Mont Clare.
*Verð án Vildarpunkta 99.900 kr.
MenntaMáL Menntamálaráð-
herra hefur dregið frumvarp sitt
um óbreytt útvarpsgjald til baka í
ríkisstjórn. Þess í stað fær Ríkisút-
varpið 175 milljóna króna framlag
sem verja á til eflingar innlendrar
dagskrárgerðar. Framlagið er
tímabundið og skilyrt við kaup
á efni frá sjálfstæðum framleið-
endum.
Frumvarp menntamálaráð-
herra hefur verið til umfjöllunar í
ríkisstjórn í um þrjár vikur áður en
ákveðið var að hann drægi frum-
varpið til baka. Frumvarpið fór
því aldrei fyrir þingið. Þess í stað
verður lögð fram breytingartillaga
við fjárlagafrumvarpið sem kynnt
var í fjárlaganefnd í gær.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2
í gær að nú verði gerður nýr þjón-
ustusamningur við RÚV. – ngy
Aukið fé til RÚV
með skilyrðum
„Ég fékk alveg frábærar móttökur og bókin mín rann út,“ segir Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur sem kynnti nýja bók sína, Anna á Eyrarbakka, í
Melabúðinni í Vesturbæ Reykjavíkur í gær. Bókin er að sögn Elísabetar bæði hrollvekju- og gamansaga. Fréttablaðið/Ernir
HeiLbrigðiSMáL „Það er mjög ánægju-
legt að sjá að það er skilningur hjá
stjórnvöldum og hjá Alþingi á þörfum
Landspítalans. Okkur leist ekki að
stöðuna fyrir næsta ár og er þetta því
léttir,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu
heilbrigðisráðherra um að leggja 1.250
milljónir til spítalans á næsta ári. Einn
milljarður fer í bráðaþjónustu en 250
milljónir til viðhalds. Fjárlög verða lík-
lega afgreidd á Alþingi í dag.
„Viðhaldsþörfin á spítalanum er svo
mikil og fer peningurinn strax í brýn-
ustu viðhaldsverkefnin. Milljarðurinn
mun í raun fara í aðgerðir til að bæta
flæði á spítalanum, einkum fráflæði
aldraðra einstaklinga sem hafa lokið
meðferð hjá okkur og komast ekki
heim til sín. Það hefur skort úrræði
fyrir það fólk,“ segir Páll.
Forstjóri Landspítalans bætir við að
þetta hafi í för með sér að nýting á sér-
hæfðu starfsfólki og búnaði spítalans
muni batna til muna. „Þetta snýst
þannig í raun um það að nýta með
sem bestum hætti sérhæfða þjónustu
sjúkrahússins. – ngy
Spítalaforstjóri
andar léttar
ríkið ver 1.250 milljónum til viðbótar í
landspítalann.
LögregLuMáL Maður fannst látinn í
Hólunum í Breiðholti í gær eftir að
hafa fallið fram af svölum. Friðrik
Smári Björgvinsson yfirlögreglu-
þjónn vildi ekki tjá sig um málið
þegar leitað var eftir því. Sagði hann
hugsanlegt að ekkert saknæmt hefði
átt sér stað og rannsókn málsins
væri á algjöru frumstigi. Á vef RÚV
kemur fram að tveir menn séu í
haldi vegna málsins. – ngy
Féll til bana
1 9 . d e S e M b e r 2 0 1 5 L a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð