Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 4
tölur vikunnar 14.12 2015 til 20.12 2015
162 milljónir kostar
59% tollur á snakk úr kart-
öflum neytendur á ári.
hvalir voru taldir
af Hafró í loðnu-
áti í haust.
manns,
ríflega,
bíða þess
að hefja
afplánun í
fangelsi.
meira borðum við í veislu
en þegar við borðum ein.
538
voru sjúkraflug Mýflugs orðin um
miðja vikuna.
650
milljónir er áætlað að Herkastal-
inn, gistiheimili Hjálpræðishers-
ins, kosti nýja eigendur.
500
105 milljarða
kostar hraðlest frá Reykjavík
til Keflavíkurflugvallar.
12.000
95%
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
þingmaður Vinstri
grænna,
sagði í þingsal
að ekki væri
hægt að láta
bjóða sér
það að menn
væru fliss-
andi í salnum
undir áhrifum.
Þingmönnum brá og lýsti Þor-
steinn Sæmundsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, því yfir að
hann myndi taka málið upp hjá
forsætisnefnd drægi Lilja Rafney
ekki orð sín til baka eða upplýsti
um hvern ræddi. Annars lægju allir
undir grun.
Þrír í fréttum
Fliss, ónot og
flóttamenn
Birgitta Jónsdóttir,
þingkona Pírata,
bað Jón Gunn-
arsson, þing-
mann Sjálf-
stæðisflokks,
afsökunar
ef hún hefði
sært hann
og meitt. Hún
greindi frá því að
hún hefði ítrekað beðið um að
fá að skipta um sæti á síðasta þing-
vetri vegna þess hvernig Jón hagaði
sér gagnvart henni, „stöðugt að
skjóta í mann ónotum án nokkurs
tilefnis. Það hefur nákvæmlega ekki
neitt með pólítík að gera“.
Þórarinn Ævarsson,
framkvæmdastjóri IKEA,
sagði í viðtali við
Fréttablaðið
að fyrirtækið
ætlaði að
gefa hverjum
flóttamanni
sem kemur
hingað til
landsins
hundrað þúsund
króna inneign í versluninni. Fyrir-
tækið væri jafnframt tilbúið að
veita flóttamönnum atvinnu í sam-
starfi við Vinnumálastofnun.
Ræktun fóðurskordýra er svar við fóðurþörf sem fylgir vaxandi fiskeldi. noRdicphotos/afp
atvinna Víur, ræktunarfélag fóður-
skordýra, á Bolungarvík varð fyrir
því óhappi á árinu að flugurnar sem
félagið byggði starfsemi sína á drápust
allar í vor, og gerðist það á þeim tíma
þegar stofninn var sá eini á landinu.
Því þurfti að flytja nýjan stofn inn til
landsins. Hefur undirbúningur inn-
flutningsins tekið töluverðan tíma
vegna kvaða um sóttkví og innflutn-
ingsleyfi.
Þessar upplýsingar koma fram á
heimasíðu fyrirtækisins þar sem er
jafnframt tíundað að úr flugunni, eða
lirfum svörtu hermannaflugunnar,
verður unnið lirfumjöl fyrir eldisfisk.
Ræktun þeirra á Íslandi er að sögn
aðstandenda fyrirtækisins með öllu
örugg og engar líkur á að flugan geri
sig heimakomna í íslenskri náttúru
eða geri usla í mönnum eða dýrum.
Flugurnar sem fluttar eru inn koma úr
stofni sem hefur verið í áraraðir vott-
aður sem laus við óværu og sjúkdóma.
„Óhappið undirstrikar mikilvægi
þess að hafa að minnsta kosti tvo
aðskilda stofna á lífi á hverjum tíma,
og verður það fyrirkomulag að sjálf-
sögðu viðhaft þegar sóttkvínni á
hinum nýja stofni verður aflétt,“ segir
Gylfi Ólafsson, flugnabóndi og annar
stofnenda.
Tilraunaræktun hófst í Bolungar-
vík haustið 2014. Í frétt fyrirtækisins
segir að Vestfirðir séu ákjósanlegir
fyrir starfsemina. Á svæðinu fellur til
mikið af lífrænum úrgangi sem væri
hægt að nýta í stað þess að flytja hann
til annarra landshluta eins og gert er
nú. Fiskeldi á svæðinu er mikið og fer
vaxandi og þekking á öllum þáttum
fiskeldis eykst óðfluga. Förgunarkostn-
aður og flutningskostnaður á fiskifóðri
mun minnka snarlega. Þá er hægt að
nýta ódýrt húsnæði í uppbyggingar-
ferlinu, segja flugnabændur. – shá
Stofn flugnabænda í Bolungarvík drapst
Heilbrigðismál Nýverið var birt
greinargerð um rannsóknir á virkni
metýlfenidat-lyfja við athyglis-
bresti í börnum og unglingum
í hinu virta Cochrane Review.
Greinargerðin birtist 25. nóvember
og greinir frá skorti á rannsóknum
á ágæti lyfjanotkunar við ADHD í
börnum.
Vísindamenn teymisins lýsa
áhyggjum af aukaverkunum
methyl phenidate-lyfja á móti hóf-
legri gagnsemi lyfjanna við athygl-
isbresti. Aukaverkanir skráðar hjá
börnum eru svefnvandamál, minni
matarlyst og sjóntruflanir. Niður-
staða Cochrane-teymisins er að
ávísa ætti lyfinu Ritalin af varkárni
til barna og unglinga og fylgjast vel
með notkun þess.
Dr. Morris Zwi, einn höfunda
greinargerðar um rannsóknina
og barna- og unglingageðlæknir
hjá Whittington í London, sagði
niðurstöðurnar mikilvægar fyrir
heilbrigðisstarfsmenn og foreldra
barna með ADHD.
„Væntingar okkar um meðferð-
ina eru meiri en þær ættu að vera,
og þótt greinargerð okkar sýni
einhverja sönnun nytsemi þeirra
þá ættum við að hafa í huga að sú
niðurstaða er ekki áreiðanleg. Það
sem við þurfum enn eru góðar
rannsóknir sem meta áhættu með
tilliti til nytsemi lyfjanna,“ sagði
Zwi.
Magnús Jóhannsson, læknir hjá
Landlækni, segir vel þekkt að lyfið
gagnist ekki öllum. Hann bendir á
að fimmtíu ára reynsla sé af lyfinu.
„Metýlfenidat er gamalt lyf og
er áratuga reynsla af notkun þess,
verkunum og aukaverkunum,“ segir
Magnús. Lengi hafi verið vitað að
að metýlfenidat gagnist ekki öllum
með ADHD. Fram hafi komið tölur
eins og 70 eða 80 prósent.
„Svipað gildir um aukaverkanir
sem eru vel þekktar en þær algeng-
ustu eru lystarleysi, svefntruflanir
og höfuðverkur. Auk þessa er lyfið
ávanabindandi og eftirsótt af fíkl-
um,“ segir Magnús.
Niðurstaða úttektarinnar var að
lyfið gagnist við ADHD en á grund-
velli fyrirliggjandi gagna/rannsókna
sé ekki hægt að meta með vissu hve
mikið það gagnist og kemur þessi
niðurstaða ekki á óvart.
Höfundar greinarinnar höfðu líka
áhyggjur af aukaverkunum, sem að
vísu eru allvel þekktar vegna þess
hve lyfið hefur verið mikið notað
og lengi. Öll lyf þarf að meta með
tilliti til verkana og aukaverkana
og þannig tryggja að hvert lyf geri
meira gagn en skaða og er þessi
úttekt innlegg í þá umræðu.“
Notkun Íslendinga á lyfjum sem
innihalda metýlfenidat er meira
en tvöföld meðalnotkun annarra
Norðurlandaþjóða. Metýlfenidat
(Ritalin) hefur verið á markaði hér
síðan 1965 og forðalyfin (Ritalin
Uno og fl.) síðan 2002. Magnús segir
að þrátt fyrir efasemdir um gagn-
semi lyfsins muni það ekki hafa
áhrif á notkun lyfsins til skamms
tíma.
„Mín niðurstaða er því sú að
umrætt Cochrane-Review sé gott
innlegg en fátt komi þar á óvart og
það muni ekki hafa áhrif á notkun
þessa lyfs, að minnsta kosti ekki til
skamms tíma litið,“ segir Magnús.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Varúð í ávísun Ritalins til barna
Þrátt fyrir fimmtíu ára reynslu af lyfinu Ritalin við athyglisbresti er lækningamáttur þess talinn hóflegur.
Ný úttekt gefur tilefni til þess að gæta sérstakrar varúðar í meðferð barna með ADHD. Magnús Jóhannsson,
læknir hjá Landlækni, segir lengi hafa verið vitað að lyfið gagnist aðeins hluta þeirra sem glíma við ADHD.
notkun Íslendinga á lyfjum sem innihalda metýlfenidat er meira en tvöföld meðal-
notkun annarra norðurlandaþjóða.
Metýlfenidat er
gamalt lyf og er
áratuga reynsla af notkun
þess, verkunum og auka-
verkunum.
Magnús Jóhannsson
læknir hjá Embætti
landlæknis
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 l a u g a r d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð