Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 26
Kia Soul SUV
Í Soul fyrir jól
— Kia Soul á frábæru verði
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Reynsluaktu hátíðlegum Kia Soul
Kia Soul bíður þín í Öskju. Komdu og prófaðu. Kia Soul — 1,6 dísil, 6 gíra, beinskiptur,128 hö.
Verð frá 3.490.777 kr.
Kia Soul er glæsilegur á að líta. Hann er þægilegur í akstri, rúmgóður og þú situr hátt í honum.
Soul hefur ótal spennandi eiginleika eins og hita í stýri og sætum, loftkælingu, bakkmyndavél,
bakkskynjara, 4,3" litaskjá og 16" álfelgur. Þú getur fengið Soul sem rafbíl eða disilbíl, sjálfskiptan
eða beinskiptan — og á alveg frábæru verði. 7 ára ábyrgð fylgir öllum nýjum Kia bílum.
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
Jólaguðspjallið sem landsmenn lesa venjulega er úr Lúkasarguð-spjalli 2.1–14. Stundum vill það gleymast, en það er annar texti í Nýja testamentinu sem
einnig inniheldur jólaguðspjall,
Matteusarguðspjall 1–2. Hvaða
lærdóm getum við dregið af þessu
jólaguðspjalli?
Frásögnin greinir frá því að Jesús
hafi fæðst á dögum Heródesar kon-
ungs og að vitringar hafi komið að
austan með þau skilaboð að nú væri
fæddur nýr konungur Gyðinga. Her-
ódes varð skelkaður við þessar fréttir,
hræddur við að missa völd sín sem
einræðisherra. Fullur af bræði sendi
hann út hersveitir til að myrða öll
sveinbörn í Betlehem og nágrenni,
börn sem voru tveggja ára og yngri.
Fjölskyldunni litlu, Jósef, Maríu
og Jesú, tókst hins vegar að flýja úr
landinu áður en hersveitir Heródesar
náðu til þeirra. Þau gátu síðan dvalið
í landinu sem þau flúðu til þar til
Heródes var allur. Egyptaland tók á
móti þessu flóttafólki, á meðan ein-
ræðisherra heimalandsins, harðstjóri
og fjöldamorðingi, murkaði lífið úr
ungum þegnum sínum.
Hljómar þetta kunnuglega? Svo
milljónum skiptir er fólk að flýja
stríðsátökin í Sýrlandi, sem hófust
með uppreisn gegn harðstjórn ein-
ræðisherrans Bashar al-Assad, sem
brást við með skipulögðum fjölda-
morðum á þegnum sínum. Mis-
munandi er hvernig tekið er á móti
sýrlenskum flóttamönnum í öðrum
löndum, enda um óheyrilegan fjölda
af fólki að ræða. Þjóðverjar hafa lýst
því yfir að þeir ætli að taka á móti
800.000 manns á þessu ári. Svíar hafa
líka nú þegar tekið á móti miklum
fjölda flóttamanna frá Sýrlandi, svo
mörgum að þeir þurftu að lokum
að takmarka aðgengi fólksins að
landinu. Að maður tali nú ekki um
nágrannaríki Sýrlands; Tyrkland,
Líbanon og Jórdaníu, þar sem sýr-
lenskir flóttamenn eru nú samanlagt
yfir 4 milljónir.
Rými fyrir miklu fleiri
Á sama tíma hafa íslensk stjórn-
völd hreykt sér af því að þau ætli á
næstu misserum að taka á móti 55
flóttamönnum frá Sýrlandi. Fimm-
tíu og fimm. Fleiri flóttamenn fylgja
væntan lega í kjölfarið á næstu árum,
en það er núna sem þörfin er mest,
ekki eftir tvö til þrjú ár – eða öllu
heldur: þörfin var mest fyrir nokkr-
um mánuðum. Það er satt að íslenska
þjóðin sé lítil, en óhætt er að fullyrða
að á Íslandi sé rými fyrir miklu fleiri
flóttamenn en fimmtíu og fimm – og
það núna. Það er líka óhætt að full-
yrða að rými sé fyrir marga af þeim
einstaklingum og margar af þeim
fjölskyldum sem sótt hafa um hæli á
undanförnum vikum og mánuðum.
Á sama tíma og íslensk stjórn-
völd eru að hreykja sér af því afreki
að taka á móti 55 flóttamönnum frá
Sýrlandi og á sama tíma og margar
þjóðir heimsins eru að taka á móti
öllum þessum fjölda af flóttafólki
eru íslensk stjórnvöld önnum kafin
við að vísa fólki úr landi, einkum fólki
frá Albaníu – en einnig Sýrlandi – sem
hefur sótt um hæli hér á landi vegna
bágra aðstæðna heima fyrir.
Oft liggja þessar aðstæður fyrir.
Og oft eru þær einfaldlega hunsaðar
á grunni lagabókstafs sem segir að
senda skuli fólk til baka þaðan sem
það kom ríki ekki styrjöld í viðkom-
andi landi. Þetta fólk er sent heim án
tillits til þess hvaða aðstæður bíða
þess í gamla heimalandinu. Þetta
eru litlar fjölskyldur, lítil börn, sum
veik, sum nýbyrjuð í skóla hér á landi,
fólk sem þegar er byrjað að aðlagast
aðstæðum á landinu. Á sama tíma
er uppgangur í íslensku samfélagi
og rými nægilegt fyrir fólk úr öðrum
heimshlutum, fólk sem gerir ekkert
annað en að glæða samfélag okkar lífi
og fallegum litum.
Sameiginlegt átak
Hvað getum við gert? Við getum
mundað pennann, tekið þátt í frið-
samlegum mótmælum eða þrýst á
stjórnvöld með öðrum hætti. Með
sameiginlegu átaki er hægt að hafa
áhrif á ráðamenn þjóðarinnar, því
mikill fjöldi af fólki sem er einhuga
í vilja sínum er sterkt afl. Atburðir
síðustu daga í málefnum tveggja
fjölskyldna frá Albaníu eru góð dæmi
um það hverju er hægt að áorka með
sameiginlegum þrýstingi á stjórn-
völd. Því það var eingöngu fyrir
tilstilli almennings í landinu sem
stjórnvöld kúventu í þessum málum
og sýndu um leið að flest er mögulegt
ef viljinn er fyrir hendi. Þetta sýnir
okkur líka að almenningur getur ekki
sofið á verði sínum þegar kemur að
því að veita stjórnvöldum aðhald og
minna þau á gildi samúðar og mann-
réttinda.
Þetta væri einn lærdómur sem við
getum dregið af jólaguðspjalli Matte-
usar.
Jólaguðspjall og flóttafólk
Rúnar M. Þor-
steinsson
prófessor í nýja-
testamentis-
fræðum við HÍ Atburðir síðustu daga í mál-
efnum tveggja fjölskyldna
frá Albaníu eru góð dæmi
um það hverju er hægt að
áorka með sameiginlegum
þrýstingi á stjórnvöld.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð