Fréttablaðið - 19.12.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 19.12.2015, Síða 28
Sígarettur voru taldar skaðlausar þegar þær dreifðust um heims-byggðina í seinni heimstyrjöld- inni. Nú sex og hálfum áratug síðar vitum við að tóbak dregur um helming neytenda þess til dauða. Rafrettur markaðssettar sem skaðlaus vara Söluaðilar halda margir hverjir því fram að rafrettur eigi eftir að leysa sígarettur af hólmi. Rafrettur hafa verið markaðssettar sem skaðlaus vara hér á landi og oftar en ekki settar í sæl- gætisbúning. Hægt er að velja á milli bragðefna eins og karamellu, súkkul- aði eða annarra sætuefna sem höfða vel til barna. Ólöglegt er fyrir börn undir 18 ára aldri að kaupa rafrettur en samkvæmt nýlegum gögnum hefur fimmti hver nemandi í 10. bekk prófað rafrettu. Þessar niðurstöður eru áhyggjuefni því lungu barna eru enn að taka út þroska og þar af leiðandi viðkvæmari fyrir efnum sem finnast í rafrettum. Einnig er veruleg ástæða til að hafa áhyggjur af útbreiðslu rafrettunnar því nýleg rannsókn frá Bandaríkjunum sýnir að táningar sem hafa notað raf- rettur eru líklegri en aðrir til að verða reykingamenn. Allt skaðminna en sígarettur Samanborið við sígarettureykingar er nánast allt mun skaðminna en að halda áfram að reykja. Í þessu ljósi er rafrettan jákvæð fyrir afmarkaðan hóp fólks, sem ekki hefur tekist að hætta reykingum með öðrum aðferðum. Þar með er það upptalið. Hingað til hefur árangur af því að nota rafrettur eða aðra nikótíngjafa til að hætta sígar- ettureykingum verið nokkuð svipaður. Af þeim sem vilja hætta að reykja hefur 7,3% tekist að hætta með rafrettum, 5,8% með nikótínplástrum og 4,2% með lyfleysu. Óvissan um heilsufarsaf- leiðingar notkunar rafretta er mikil, en þó er vitað að þær eru alls ekki skað- lausar. Því er enn ráðlagt að nota frekar aðra nikótíngjafa en rafrettur. Margar hættur sem fylgja rafrettum Hættur sem fylgja rafrettum eru margar, ekki síst það að viðhalda nikó- tínneyslunni í samfélaginu. Háskalegt er að sjá að tóbaksframleiðendur eru mættir á svæðið. Þeir stýra stórum hluta rafrettuiðnaðarins og hafa hingað til látið sig lítið varða hagsmuni neytenda vegna afleiðinga tóbaksreyk- inga. Afar ólíklegt er að þeir muni vara okkur við hættum tengdum rafrettum. Rafrettugufa er ertandi fyrir lungun og hefur neikvæð áhrif á öndunar- starfsemi. Efnið díasetýl er notað í bragðefni fyrir rafrettur og reyndar líka í matvælaframleiðslu. Það gefur tilefni til að hafa áhyggjur, því það getur valdið hættulegum bráðum lungnasjúkdómi hjá fólki þar sem það er notað í iðnaði (“popcorn lung” hjá starfsmönnum í örbylgjupopps- iðnaðinum) og því ástæða til að setja varnagla við það þegar fólk andar að sér þessu efni með rafrettueiminum. Eitrunartilfellum meðal barna yngri en fimm ára hefur fjölgað veru- lega samhliða útbreiðslu rafrettunnar. Ófrískar konur ættu ekki að nota raf- rettur því nikótín er skaðlegt fóstrinu og getur aukið hættu á ungbarna- dauða. Langtímaafleiðingar ekki þekktar Mikilvægt er að hafa í huga að ein- ungis um tíu ár eru liðin síðan raf- rettur komu fyrst á markað í Kína og enn styttra síðan þær urðu fáanlegar í vestrænum löndum. Það er því allt of snemmt að segja til um mögulega skaðsemi þeirra því ætla má að það taki að minnsta kosti um 15-20 ár að koma í ljós hvort þær valdi alvarlegu heilsutjóni. Vel má vera að rafrettur geti leyst sígarettur af hólmi fyrir vissa einstak- linga. Engu að síður þurfum við að vera vakandi fyrir mögulegum skaða af völdum þeirra. Matvæla- og lyfja- eftirlit Bandaríkjanna hefur rannsakað bragðefnin og komist að því að sum innihalda formaldehýð sem er þekkt krabbameinsvaldandi efni. Hver á að gæta hagsmuna barna? Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áætlar að sala á rafrettum muni margfaldast á næstu árum. Við getum ekki ætlast til þess að börn séu upplýst um mögu- lega skaðsemi rafretta á sama tíma og við seljum bragðefni fyrir rafrettur innan um sælgæti. Við getum þó verið alveg viss um að framleiðendur munu ekki gæta hagsmuna okkar eða barna okkar. Það tók okkur meira en fimmtíu ár að viðurkenna skaðsemi sígarettu- reyks. Það mun taka að minnsta kosti næsta áratug áður en við verðum betur upplýst um heilsufarsafleið- ingar rafretta. Rafrettur – skaðlausar eða ekki? Á heimasíðu mennta- og menn-ingarmálaráðuneytisins má lesa um rannsókn, sem gerð var af fremstu máltæknisérfræðingum Evr- ópu og bendir til þess að flest Evrópu- mál, þar á meðal íslenska, eigi á hættu stafrænan dauða og séu í útrýmingar- hættu á stafrænni öld. Niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í Hvítbókaröð META-NET, sem er kallað evrópsk öndvegisnet (a Network of Excellence). Er rannsóknin unnin af meira en 200 sérfræðingum á 60 rann- sóknarsetrum í 34 löndum, þ.á.m. Íslandi. (http://www.meta-net.eu/whi- tepapers). Sérfræðingarnir lögðu mat á stöðu máltækni fyrir 30 af um 80 tungu- málum Evrópu á fjórum mismunandi sviðum: vélþýðingum, talsamskiptum, textagreiningu og aðgengi að mállegum gagnasöfnum. Sérfræðingarnir komust að þeirri niðurstöðu að stafrænn stuðn- ingur við 21 af þessum 30 tungumálum væri lítill sem enginn á að minnsta kosti einu af þessum sviðum. Nokkur tungumál, m.a. íslenska, fá lægsta einkum á öllum sviðunum fjórum og lenti íslenska í næstneðsta sæti tungu- málanna 30. Aðeins maltneska er talin standa verr að vígi og enska ein taldist hafa „góðan stuðning“. Grundvöllur rannsóknarinnar Ekki er ljóst við hvað átt er með „staf- rænni öld“, hvort orðin merkja einfald- lega einhvern tíma í framtíðinni eða á þessari öld – öld stafrænna samskipta. Merking þessara orða skiptir ekki öllu máli heldur hugsunin og aðferðin sem býr að baki rannsókninni, skilningur á hlutverki og stöðu tungumála svo og tilgangurinn með því að fullyrða, „að flest Evrópumál, þar á meðal íslenska, eigi á hættu stafrænan dauða“ án þess að gerður sé nokkur fyrirvari annar en sá, að stafrænn stuðningur við tungu- málin verði aukinn að mun. Hlutverk tungumála Tungumál er mikilsverðasta tján- ingar tækni mannlegs samfélags í öllum sínum margbreytilegu mynd- um. Með tungumálinu tjáum við skapandi hugsun okkar og tilfinn- ingar, afstöðu og viðhorf og komum skilaboðum á framfæri í óteljandi myndum. Bandaríski félagsfræðingurinn John Naisbitt gaf árið 1994 út bók sem hann nefndi Global Paradox, og ræðir þar aukin samskipti þjóða í verslun og viðskiptum, þjóðernis- vitund, tungumál og styrk þjóðríkja og heldur því fram að því víðtækari, sem samvinna á sviði viðskipta og fjármála verði, þeim mun mikilsverð- ari verði hver einstaklingur. Þá telur hann að ný upplýsingatækni leysi alþjóðlega gjaldmiðla af hólmi og þýðingarvélar styrki einstakar þjóð- tungur af því að alþjóðleg samskipta- mál verði óþörf með þýðingarvélum. Um tungumálin segir John Naisbitt: Því samtvinnaðra sem efnahagslíf heimsins verður, því fleira í umhverfi okkar verður alþjóðlegra. Það sem eftir stendur af þjóðlegum verð- mætum verður hins vegar þeim mun mikilsverðara. Því alþjóðlegri, sem starfsumhverfi manna verður, því þjóðlegri verða menn í hugsun. Lítil málsamfélög í Evrópu hafa fengið nýja stöðu og aukinn styrk vegna þess að fólk leggur meiri rækt við menn- ingarlega arfleifð sína til mótvægis við sameiginlegan markað Evrópu. John Naisbitt minnist sérstaklega á Íslendinga og íslensku og bendir á, að á Íslandi tali allir ensku og jafnvel önnur tungumál. Engu að síður varð- veiti Íslendingar hreinleika íslensk- unnar („purity of the Icelandic lang- uage“) og byggi á gamalli lýðræðis- og bókmenntahefð. Framtíð íslenskrar tungu Íslensk tunga mun áfram vega þyngst í varðveislu sjálfstæðrar menningar og stjórnarfarslegs fullveldis þjóðar- innar. Landfræðileg og menningarleg einangrun landsins, sem áður varð til þess að tungan hélt velli, dugar ekki lengur. Íslenskt þjóðfélag hefur ekki sömu sérstöðu og áður og alþjóða- hyggja mótar viðhorf Íslendinga – ekki síst viðhorf ungs fólks sem eru meiri heimsborgarar og óbundnari heimahögum en fyrri kynslóðir, enda stundum talað um „hinn nýja Íslending“ sem láti sér í léttu rúmi liggja hvar hann er búsettur og hvaða mál hann talar, aðeins ef hann hefur starf og laun við hæfi og getur lifað því lífi sem hann kýs. Enginn vafi leikur á að margvísleg hætta steðjar að íslenskri tungu. Því þurfa stjórnvöld undir leiðsögn mennta- og menningarmálaráðu- neytisins að móta opinbera málstefnu sem víðtækt samkomulag yrði um. Til þess verður að efna til umræðu um íslenskt mál og íslenska málstefnu og þurfa sem flestir að taka þátt í þeirri umræðu auk stjórnvalda: rithöfundar og skáld, kennarar og skólayfirvöld, málvísindamenn, sagnfræðingar, bók- menntafræðingar og félagsfræðingar, læknar og lögfræðingar svo og fulltrú- ar atvinnulífs og viðskipta, enda hafa mörg fyrirtæki sýnt íslenskri málrækt áhuga og skilning. Auk þess er sjálfsagt að efla máltækni fyrir íslenska tungu. Máltækni sker hins vegar ekki úr um líf nokkurrar þjóðtungu. Framtíð íslenskrar tungu – tungan í útrýmingarhættu á stafrænni öld Auðvitað viljum við taka á móti flóttamönnum en við verðum að átta okkur á einu. Ef við opnum faðminn fyrir öllum þeim sem hingað vilja koma þá hrynur heilbrigðiskerfið. Hver á að borga undir öll veiku flótta- mannabörnin? Við þurfum fyrst að lækna íslensk börn. Ég vona að flestum ykkar hafi svelgst á kaffinu við þennan lest- ur. Þessi málflutningur gefur það nefnilega í skyn að útlendingar séu annars flokks. Hann málar mynd af flóttamönnum sem óæskilegri ógn við heilbrigðiskerfið okkar. Eins og við þurfum að velja á milli þess hvort við aðstoðum flóttamenn eða Íslendinga. Þetta er tilraun til þess að skapa átök á milli tveggja viðkvæmra hópa í samfélaginu, flóttamanna annars vegar og fólks sem þarfnast aðstoðar heilbrigðis- kerfisins hins vegar. Sem betur fer hefur þessi mál- flutningur hingað til einskorðast við kommentakerfið og símatíma Útvarps Sögu. Svíþjóðardemó- kratar, Danski þjóðarflokkurinn og Sannir Finnar hafa haldið þessum málflutningi á lofti á Norðurlönd- um en hann hefur ekki áður heyrst frá stjórnmálamönnum hérlendis. Það breyttist síðastliðinn föstu- dag, þegar þingmennirnir Brynjar Níelsson (Sjálfstæðisflokki) og Katrín Júlíusdóttir (Samfylkingu) tókust á í Morgunútvarpi Rásar 2. Tilefni umræðunnar var mál albönsku fjölskyldnanna tveggja sem sendar voru úr landi ásamt öðrum hælisleitendum í síðustu viku. Um málið sagði Brynjar: „Hvernig halda menn að kerfið verði ef við erum bara með opinn faðminn fyrir hverjum sem er? Þá verður ekkert kerfi og það verður heldur ekkert heilbrigðiskerfi. Ég segi eins og forsetinn; þetta er barnaleg einfeldni.“ Ekki barnaleg einfeldni Það er áhugavert að Brynjar Níels- son telji flóttamenn ógna íslensku heilbrigðiskerfi. Sýrlensku flótta- mennirnir 55 eru ekki einu sinni komnir til landsins en samt virð- ist ríkisstjórn Brynjars á góðri leið með að rústa heilbrigðiskerfinu ein og óstudd. Getur verið að stærsta ógnin við heilbrigðis- kerfið sé ekki þolendur stríðs og ofsókna sem hér fá skjól heldur ríkisstjórn Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks? Það er ekki barnaleg einfeldni að halda að við getum gert bæði í einu, veitt stríðshrjáðum flótta- mönnum skjól og rekið almenni- legt heilbrigðiskerfi. Við getum aukið aðstoð við flóttamenn, við getum bætt kjör öryrkja og aldr- aðra og við getum tryggt Landspít- alanum nauðsynlegt fjármagn. Þá getum við bætt sálfræðiþjónustu, barist gegn kynbundnu ofbeldi og tryggt öllum jafnan rétt til mennt- unar. Allt þetta getum við gert. Um þessi mál þurfum við ekki að velja. Mikilvægasta val okkar mun eiga sér stað í kjörklefanum vorið 2017. Þá fáum við tækifæri til að hafna málflutningi Brynjars Níelssonar og velja mannúðlegri stefnu. Við þurfum (ekki) að velja Óskar Steinn Ómarsson ungur jafnaðar- maður Mikilvægasta val okkar mun eiga sér stað í kjörklefanum vorið 2017. Þá fáum við tækifæri til að hafna mál- flutningi Brynjars Níelssonar og velja mannúðlegri stefnu. Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslu- stjóri Krabba- meinsfélagsins Hans Jakob Beck lungnalæknir og yfirlæknir lungnasviðs Reykjalundar Tryggvi Gíslason fv. skólameistari Landfræðileg og menningar- leg einangrun landsins, sem áður varð til þess að tungan hélt velli, dugar ekki lengur. Lára G. Sigurðardóttir visir.is Lengri útgáfa af greininni er á Vísi. 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.