Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 36
tók hana úr starfsliðinu á leikdegi
og lét hana dúsa á æfingasvæðinu
áður en hún gafst upp, hætti og
kærði Chelsea. Málið verður tekið
fyrir á næsta ári og gæti farið svo að
Chelsea þurfi að greiða Evu miska
bætur.
Ábyrgð leikmanna?
Mourinho á oft í miklu haltu mér
slepptu mér sambandi við leik
menn sína. Þeir annaðhvort elska
hann og væru til í að brjóta skothelt
gler með höfðinu fyrir Portúgalann
eða hafa nákvæmlega engan áhuga
á að spila fyrir hann.
Þegar Mourinho var látinn fara í
fyrra skiptið frá Chelsea var mikið
skrifað og skrafað um að kóngarnir
í Chelsea í þá daga, Frank Lampard
og John Terry, hefðu talað hann úr
starfi. Þeir voru svo sagðir hafa gert
það nokkrum sinnum í viðbót enda
stjóraskiptin ansi tíð hjá liðinu.
Mourinho lenti í svipuðu ves
eni hjá Real Madrid þar sem hann
móðgaði nokkra kónga og var
algjörlega búinn að missa klefann.
Nú eru leikmenn eins og Eden
Hazard (besti leikmaður síðasta
tímabils), Cesc Fábregas (sem bætti
eigið stoðsendingamet í fyrra) og
Nemanja Matic (besti varnarsinn
aði miðjumaður síðasta tímabils)
að spila eins og þeir kunni ekki fót
bolta.
Augljóslega urðu þeir ekki verri
leikmenn á einni nóttu. Þetta er
ekki Space Jam. Yfirmaður tækni
mála hjá Chelsea væri ekki að tjá
sig opinberlega um ágreining
milli leikmanna og Mour
inhos nema þeir væru búnir að
kvarta í yfirvaldið. Eins og svo
oft áður þurfa leikmenn ekki
að sýna neina ábyrgð því auð
veldara er að reka einn
mann en heilt lið. Og
það þurfti Mourinho
að upplifa aftur hjá
sama liðinu.
J o s é M o u r i n o
ætlaði að búa um sig
á Brúnni að þessu
sinni og vildi vera að
minnsta kosti í áratug
hjá Chelsea. Hann var
kominn til að vera, en eins
og með þá flesta hjá Chelsea
var hann látinn fara.
Fótbolti José Mourinho var rekinn
öðru sinni frá Chelsea á fimmtu
daginn. Eftir níu tapleiki í ensku
úrvalsdeildinni og þá staðreynd að
ríkjandi meistararnir eru í 16. sæti
með aðeins 15 stig gafst Roman
Abramovich, eigandi félagsins, upp
og rak sinn uppáhaldsmann.
Endurkoma Mourinhos gekk full
komlega fyrstu tvö tímabilin en fyrri
hluti þessa vetrar var kata strófa frá
fyrsta leik þegar hann gagnrýndi
lækninn Evu Carneiro með þeim
afleiðingum að hún hætti.
Eins og stundum áður missti
Mourinho klefann en leikmenn
sem spiluðu eins og algjörar hetjur
á síðasta tímabili virðast ekki hafa
nokkurn áhuga á að spila fyrir
Portúgalann í ár. „Svo virtist vera
að það hafi verið áþreifanlegur
ágreiningur á milli Mourinhos og
leikmannanna. Við töldum að
það væri tímabært að grípa til
aðgerða,“ sagði Michael Emanalo,
yfirmaður tæknimála hjá Chelsea,
um brottreksturinn því auðvitað
tjáir Abramovich sig ekkert frekar
en fyrri daginn.
Úr hetju í skúrk
Stuðningsmenn Chelsea réðu sér
vart fyrir kæti þegar José Mourinho
var endurráðinn knattspyrnustjóri
félagsins sumarið 2013. Hann eyddi
reyndar fyrsta tímabilinu í að tala
liðið niður og sagði það ekki geta
orðið meistara en lofaði Englands
Kominn til að vera
en var látinn fara
José Mourinho ætlaði að koma sér vel fyrir hjá Chelsea og var tilbúinn að vera
lengi á Brúnni. Roman Abramovich hefur enga þolinmæði fyrir tapleikjum og
rak hann í annað sinn. Réð ekkert við leikmennina frekar en fyrri daginn.
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@frettabladid.is
Er þolinmæði
kannski ekki dyggð?
Roman Abramovich, eigandi
Chelsea, hefur litla þolinmæði
eins og hann hefur sýnt. Mikið
er talað um að gefa knattspyrnu-
stjórum tíma en Rússinn er á
öðru máli. Þú vinnur titla eða
ferð. Ekki margir eru sammála
aðferðum Abramovich en titl-
arnir tala sínu máli.
José Mourinho
júní 2004 - september 2007
Sjö stórir titlar;
Englandsmeistari 2x
og bikarmeistari 1x
Avram Grant
september 2007 - maí 2008
Enginn titill en ferð í úrslitaleik MD
luis Felipe Scolari
júlí 2008 - febrúar 2009
Enginn titill
Ray Wilkins
febrúar 2009 - febrúar 2009
Stýrði liðinu til sigurs í einum leik
Guus Hiddink
febrúar 2009 - maí 2009
Bikarmeistari
Carlo Ancelotti
júlí 2009 - maí 2011
Vann deild og bikar á fyrra árinu
André Villas-boas
júní 2011 - mars 2012
Roberto Di Matteo
mars 2012 - nóvember 2012
Bikarmeistari og
vann Meistaradeildina
Rafael benítez
nóvember 2012 - maí
2013
Vann Evrópudeildina
José Mourino
júní 2013 -
desember 2015
Deildarmeistari
og deildabikar-
meistari
Níu töp og eitt
fjölmiðlaslys
08.08 Mourinho gagnrýnir
Evu Carneiro opinberlega
16.08 3-0 tap fyrir Man. City
29.08 1-2 tap fyrir C. Palace
12.09 3-1 tap fyrir Everton
03.10 1-3 tap fyrir Southampton
24.10 2-1 tap fyrir West Ham
31.10 1-3 tap fyrir Liverpool
07.11 1-0 tap fyrir Stoke
05.12 0-1 tap fyrir Bournemouth
14.12 2-1 tap fyrir Leicester
meistaratitlinum 2015. Það gekk
allt upp.
Nú, aðeins rétt rúmu hálfu ári
síðar, er hetjan á Brúnni orðin
skúrkurinn enda liðið búið að tapa
níu leikjum í ensku úrvalsdeildinni
og er aðeins tveimur stigum frá
falli en fimmtán stigum frá sæti í
Meistaradeildinni. Svo virðist sem
eini möguleiki Chelsea á að komast
í Meistaradeildina að ári sé að vinna
hana á þessu ári.
Til að setja þessi níu töp í sam
hengi þá tapaði Mourinho aðeins
tíu leikjum í heild sinni í fyrri
stjóra tíð sinni hjá Chelsea sem var
rétt rúm þrjú tímabil. Hann tapaði
svo bara átta leikjum með Inter og
aðeins ellefu á þremur árum í deild
með Real Madrid.
Læknirinn út
Mourinho hefur verið að sumu leyti
stórfurðulegur á þessu tímabili og
blaðamannafundirnir skrítnari en
oft áður. Þó mjög skemmtilegir eins
og vanalega þegar Mourinho á hlut
að máli.
Vitleysan á þessu tímabili hófst
strax í fyrsta leik þar sem liðið gerði
jafntefli við Gylfa Þór Sigurðsson og
félaga í Swansea. Undir lok leiksins
stökk læknirinn Eva Carneiro inn á
völlinn í „leyfisleysi“ af hálfu Mour
inhos til að hlúa að Eden Hazard.
Chelsea var þá þegar búið að missa
mann af velli og var að verja stigið.
Þar sem Carneiro fór inn á þurfti
Hazard að fylgja henni út af og þar
með voru Chelseamenn níu inni á
vellinum um stund.
Mourinho trompaðist og gagn
rýndi Carneiro opinberlega. Hann
Mourinho er búinn að
tapa níu leikjum í deildinni
núna sem er einum leik
minna en hann tapaði í
heildina með Chelsea þegar
hann stýrði liðinu síðast.
Brottvikning læknisins Evu Carneiro var
upphafið að endinum.
61,4
71,2
68,5
36,0
65,6
37,5
66,7 Rekinn
Lokatímabil: S9, J5, t11.
Rekinn eftir 25 leiki
Lokatímabil: S3, J4, t1.
Rekinn eftir átta leiki
2004/05 2005/06 2006/07 2007/08 2013/14 2014/15 2015/16
Sigur í deild,
sigur í
deildabikar
Sigur í deild,
sigur í
samfélagsskildi
2.sæti í
deild, sigur
í bikar, sigur
í deildabikar
3. sæti
í deild
Sigur í deild,
sigur í
deildabikar
%Sigurhlutfall Chelsea
1 9 . D E S E M b E R 2 0 1 5 l A U G A R D A G U R36 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð