Fréttablaðið - 19.12.2015, Síða 40
Hvað á að gera um helgina?
Planið er að gera allt frá A-Ö
því ekkert hefur verið gert í
því samhengi. Jólaþrif, gjafa-
kaup, trjákaup, skreytingar,
og svo á ég sameignina líka.
Á kvöldin ætla ég að verð-
launa mig með því að horfa á
nýja morðseríu á Netflix. Er það
ekki jóló?
ReddaR öllu fyRiR jólin
Ég ætla að knúsa börnin mín
og skreyta jólatréð með þeim
um helgina. Það er nóg að
gera í jólaundirbúningnum. Ég
ætla rétt að kíkja út að borða
með vinkvennahópnum á
laugardagskvöld.
SkReyta jólatRéð
anna lilja johansen athafnakona
Helga arnardóttir sjónvarpskona
Ég mun vera í hefðbundnu jóla-
gjafastússi sem er óvenju tímanlega
þetta árið, hugsa um að skrifa jóla-
kort og svo eflaust hætta við. Hitta
vinkonu í árlegum jólakakóbolla,
fara í matarboð með hreindýrsþema
og reyna að koma að einum göngu-
túr í Elliða ár dalnum sem er æði
friðsælt í miðju jólaatinu.
jólagjafaStúSS
Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi
faRðu
Á jólamarkað KRÁS
í Fógetagarðinum.
Markaðurinn vaknar
upp af dvala í tilefni
jólanna. Mikið úrval af
fjölbreyttum mat, jóla-
glöggi, jólabjór og heitu
kakói. Opið er frá 13-19
um helgina.
HluStaðu
Á risatónleika
Gus Gus og fé-
laga í Gamla bíói.
Hljómsveitin
Gus Gus kemur
fram ásamt
Sturlu Atlas,
Úlfur Úlfur og
Gísla Pálma.
SjÁðu
Nýju Star Wars
myndina The
Force Awak-
ens. Myndin
var frumsýnd
í vikunni og
hefur fengið
stórgóða dóma.
leStu
Bókina Anna
á Eyrarbakka
– upphaflega
barnasaga,
sögu á mörkum
hroll vekju og
gamansögu,
eftir Elísabetu
Jökulsdóttur.
Jólatónleikar dj flugvélar og geimskip, Shades of Reykjavík og Vaginaboys verða haldnir á Húrra klukkan níu í kvöld. Þeir eru þó ekki með hefð-bundnu sniði, enda engin
kammersveit að sögn Stein-
unnar Harðardóttur, betur
þekktrar sem dj flugvél og geimskip.
„Ég þekki strákana ekki neitt, en ég
og vinir mínir hlustum alltaf á þátt-
inn hjá Shades of Reykjavík í partíum
og svona. Þannig að ég var ekki lengi
að hugsa mig um,“ segir Steinunn.
Shades of Reykjavík er fjöllista-
hópur, stofnaður árið 2011. Hópur-
inn samanstendur af röppurum,
tónlistarmönnum, leikstjórum og
skeiturum sem sameinast í tónlist
og öðrum listformum, en halda úti
vinsælum útvarpsþætti á FM Xtra.
Umsjónarmenn þáttarins eru Prins
Puffin og Elli Grill, sem hafa gert
garðinn frægan með rapptónlist og
útvarpsmennsku.
Steinunn kemur með leynigest.
En hversu mikið vill hún gefa upp
um gestinn? „Þetta eru jólatónleikar,
þannig að ég verð auðvitað að vera
með leynigest. Ég veit ekki alveg
hversu mikið ég get sagt án þess að
gefa það upp hreinlega, en við getum
orðað það sem svo að ég og leyni-
Mystískir tónleikar grímuklæddra
Jólatónleikar grímuklæddrar elektrósveitar, uppáklæddra rappara og plötusnúðs sem fer frumlegar leiðir í klæða-
burði eru á Húrra í kvöld. Leynigestur kemur fram til að koma gestum í jólaskap. Tónleikarnir hefjast klukkan níu.
Shades of Reykjavik, DJ Flugvél og Geimskip og Vaginaboys - grímuklæddir að vanda.. FRéttablaðið/ERniR
gesturinn munum pottþétt koma
öllum í jólaskap.“
Tónleikarnir í kvöld eru einkar
dularfullir, því auk leynigestarins
spilar elektrósveitin The Vagina boys.
Sveitin er þekkt fyrir að klæðast
grímum þegar þeir koma fram. Þeir
vilja ekki þekkjast. Grímurnar segja
þeir tilkomnar vegna þess að þeir séu
ekki í tónlist til þess að verða frægir
– heldur af ástríðu. olof@frettabladid.is
Þetta eRu jólatón-
leikaR Þannig að ég
veRð að veRa með
leynigeSt.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r40 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Helgin