Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 152

Fréttablaðið - 19.12.2015, Page 152
áriðÞað sem við höfum að hlakka til 2016 Ný breiðskífa Kanye West og Rihönnu Kanye West kemur til með að sýna Yeezy Season 3 á New York Fashion Week í byrjun febrúar. Hann til- kynnti Twitter fylgjendum sínum á dögunum að hann væri að vinna í því að klára fatalínuna og nýjustu plötu sína, SWISH, sem kemur líklega út á næsta ári. Rih- anna er einnig að vinna í sinni plötu, Anti, sem er sögð vera nánast tilbúin og kemur líklega út í lok þessa árs eða byrjun 2016. Hún mun einnig koma fram í fyrsta sinn á New York Fashion Week með tískulínu sína Rihanna for Puma. Þrátt fyrir að það hafi ekki komið opinber tilkynning þess efnis þá hélt hún uppboð í mánuðinum þar sem meðal annars var hægt að bjóða í miða á tískusýninguna. Hlaupár Líkt og alþjóð veit þá kemur hlaupár á fjögurra ára fresti. Þá bætist dagur við febrúar- mánuð og þó nokkrir einstak- lingar fá loksins að halda upp á afmæli á réttum degi. Hlaup- árin eru til þess að leiðrétta skekkju í tímatali sem orsak- ast af því að árstíðarárið er í raun og veru 365,2422 dagar. DC Comics frumsýna tvær stór‑ myndir Ofurhetjur DC Comics hafa ekki verið áberandi seinustu ár og hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir Mar- vel ofurhetjunum sem hafa slegið í gegn í Avengers, Thor og Iron Man myndunum. Á því verður breyting á þessu ári þar sem tvær stórmyndir úr röðum DC Comics verða frum- sýndar. Batman vs Superman: Dawn of Justice verður frumsýnd í mars og Suicide Squad verður frum- sýnd í ágúst. Mikil spenna ríkir fyrir báðum myndunum. Ólympíuleikarnir Zoolander 2 Mikil eftirvænting hefur verið eftir framhaldinu af Zoolander sem verður 15 ára á næsta ári. Zoolander 2 er væntanleg í kvikmyndahús í febrúar. Mikið kynn- ingarstarf hefur verið í kringum myndina, eins og til dæmis þegar Derek og Hansel mættu á tískusýningu Valentino í París fyrr á árinu. Þeir hafa fengið mikið af heimsþekktum leikurum til þess að koma fram í myndinni á borð við Penelope Cruz, Kristen Wiig og Benedict Cumberbatch. Forsetakosningar á Íslandi Það hefur ekki farið jafn mikið fyrir kom- andi forsetakosningum á Íslandi og í Bandaríkjunum en það mun líklega breytast þegar það líður á árið. Þorgrímur Þráinsson hefur lýst yfir að hann ætli að bjóða sig fram og Halla Tómasdóttir hefur sagt frá því að hún sé að íhuga framboð. Það sem landsmenn eru hins vegar að bíða eftir er að Ólafur Ragnar Grímsson, núver- andi forseti, taki ákvörð- un um hvort hann ætli að bjóða sig aftur fram. Lík- lega munu fleiri bjóða sig fram þegar fram líða stund- ir en gengið verður til kosninga 25. júní. Justin Bieber heldur tónleika á Íslandi Líklega stærsta stjarna heims um þessar mundir og mest spilaði tónlistarmaður á internetinu í dag ætlar að hefja tónleikaferð sína um Evrópu hér á landi í Kórnum þann 9. september. Hann kom til landsins á þessu ári og hefur greinilega verið heillaður upp úr skónum þar sem hann ætlar að vera á land- inu viku fyrir tónleikana að æfa sig áður en hann heldur svo áfram að spila í Evrópu. Tón- leikarnir verða þeir allra stærstu sem haldnir hafa verið á landinu. EM í fótbolta Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tekur í fyrsta sinn þátt á stórmóti í Frakklandi í sumar. Biðin eftir þessari stundu hefur verið mikil og er búist við því að mörg þúsund Íslendinga taki sér sumarleyfi í sömu vikunum í júní. Strákarnir spila fyrsta leikinn þann 14. júní gegn Portúgölum í Saint-Etienne í S-Frakklandi. Sumarólympíuleikarnir munu fara fram í Ríó í Brasilíu í ágúst. Það verður í fyrsta skiptið sem borg í S-Ameríku heldur Ólympíuleikana en aðrar borgir sem komu til greina voru Tókýó, Chicago og Madrid. Leikarnir fóru seinast fram í London og vöktu mikla lukku. Þetta ár verður í fyrsta sinn sem keppt verður í rugby og í fyrsta sinn frá því árið 1904 sem keppt verður í golfi. Fimm Íslendingar eru komnir með þátttökurétt á leikunum. Það eru þær Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir í frálsíþróttum og Anton Sveinn McKee, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthers- dóttir í sundi. Forseta‑ kosningar í BNA Það hefur verið mikið fjaðrafok yfir komandi forsetakosningum Banda- r í k j a n n a . Þ a ð er útlit fyrir að Hillary Clinton, fyrr- verandi forsetafrú, verði framboðsefni demókrata en enn er óljóst hver tekur slaginn fyrir repúblikana. Donald Trump hefur haldið forskoti á mótframbjóðend- ur sína innan Repúblikanaflokksins en Ted Cruz, sem hefur verið að auka fylgi sitt, nálgast hann óðfluga. Donal Trump hefur valdið miklu fjaðrafoki með u m m æ l u m s í n u m um innflytjendamál í Bandaríkjunum og hefur meðal annars látið út úr sér að hann vilji meina múslimum inn- göngu í Banda- ríkin. Það hefur verið vinsælt í lok árs að skoða það sem hefur staðið upp úr á liðnu ári en blaðamenn Fréttablaðsins horfa fram í tímann og skoða hvað næsta ár ber í skauti sér.   1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r116 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.