Fréttablaðið - 19.12.2015, Qupperneq 152
áriðÞað sem við
höfum að
hlakka til 2016
Ný breiðskífa Kanye
West og Rihönnu
Kanye West kemur til með að sýna Yeezy Season 3 á
New York Fashion Week í byrjun febrúar. Hann til-
kynnti Twitter fylgjendum sínum á dögunum að hann
væri að vinna í því að klára fatalínuna og nýjustu plötu
sína, SWISH, sem kemur líklega út á næsta ári. Rih-
anna er einnig að vinna í sinni plötu, Anti, sem er sögð
vera nánast tilbúin og kemur líklega út í lok þessa árs
eða byrjun 2016. Hún mun einnig koma fram í fyrsta
sinn á New York Fashion Week með tískulínu sína
Rihanna for Puma. Þrátt fyrir að það hafi ekki komið
opinber tilkynning þess efnis þá hélt hún uppboð í
mánuðinum þar sem meðal annars var hægt að bjóða
í miða á tískusýninguna.
Hlaupár
Líkt og alþjóð veit þá kemur
hlaupár á fjögurra ára fresti.
Þá bætist dagur við febrúar-
mánuð og þó nokkrir einstak-
lingar fá loksins að halda upp
á afmæli á réttum degi. Hlaup-
árin eru til þess að leiðrétta
skekkju í tímatali sem orsak-
ast af því að árstíðarárið er í
raun og veru 365,2422 dagar.
DC Comics
frumsýna
tvær stór‑
myndir
Ofurhetjur DC Comics hafa ekki
verið áberandi seinustu ár og hafa
þurft að lúta í lægra haldi fyrir Mar-
vel ofurhetjunum sem hafa slegið í
gegn í Avengers, Thor og Iron Man
myndunum. Á því verður breyting
á þessu ári þar sem tvær stórmyndir
úr röðum DC Comics verða frum-
sýndar. Batman vs Superman:
Dawn of Justice verður frumsýnd í
mars og Suicide Squad verður frum-
sýnd í ágúst. Mikil spenna
ríkir fyrir báðum
myndunum.
Ólympíuleikarnir
Zoolander 2
Mikil eftirvænting hefur verið eftir framhaldinu af
Zoolander sem verður 15 ára á næsta ári. Zoolander 2
er væntanleg í kvikmyndahús í febrúar. Mikið kynn-
ingarstarf hefur verið í kringum myndina, eins og til
dæmis þegar Derek og Hansel mættu á tískusýningu
Valentino í París fyrr á árinu. Þeir hafa fengið mikið
af heimsþekktum leikurum til þess að koma fram í
myndinni á borð við Penelope Cruz, Kristen Wiig og
Benedict Cumberbatch.
Forsetakosningar
á Íslandi
Það hefur ekki farið jafn mikið fyrir kom-
andi forsetakosningum á Íslandi og í
Bandaríkjunum en það mun líklega
breytast þegar það líður á árið.
Þorgrímur Þráinsson hefur lýst
yfir að hann ætli að bjóða sig
fram og Halla Tómasdóttir
hefur sagt frá því að hún sé
að íhuga framboð. Það sem
landsmenn eru hins vegar
að bíða eftir er að Ólafur
Ragnar Grímsson, núver-
andi forseti, taki ákvörð-
un um hvort hann ætli að
bjóða sig aftur fram. Lík-
lega munu fleiri bjóða sig
fram þegar fram líða stund-
ir en gengið verður
til kosninga
25. júní.
Justin Bieber
heldur tónleika á
Íslandi
Líklega stærsta stjarna heims um þessar
mundir og mest spilaði tónlistarmaður á
internetinu í dag ætlar að hefja tónleikaferð
sína um Evrópu hér á landi í Kórnum þann
9. september. Hann kom til landsins á þessu
ári og hefur greinilega verið heillaður upp úr
skónum þar sem hann ætlar að vera á land-
inu viku fyrir tónleikana að æfa sig áður en
hann heldur svo áfram að spila í Evrópu. Tón-
leikarnir verða þeir allra stærstu sem haldnir
hafa verið á landinu.
EM í fótbolta
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta
tekur í fyrsta sinn þátt á stórmóti í
Frakklandi í sumar. Biðin eftir þessari
stundu hefur verið mikil og er búist
við því að mörg þúsund Íslendinga
taki sér sumarleyfi í sömu vikunum
í júní. Strákarnir spila fyrsta leikinn
þann 14. júní gegn Portúgölum í
Saint-Etienne í S-Frakklandi.
Sumarólympíuleikarnir munu fara fram í Ríó
í Brasilíu í ágúst. Það verður í fyrsta skiptið
sem borg í S-Ameríku heldur Ólympíuleikana
en aðrar borgir sem komu til greina voru
Tókýó, Chicago og Madrid. Leikarnir fóru
seinast fram í London og vöktu mikla lukku.
Þetta ár verður í fyrsta sinn sem keppt verður
í rugby og í fyrsta sinn frá því árið 1904 sem
keppt verður í golfi. Fimm Íslendingar eru
komnir með þátttökurétt á leikunum. Það eru
þær Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir
í frálsíþróttum og Anton Sveinn McKee, Eygló
Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthers-
dóttir í sundi.
Forseta‑
kosningar
í BNA
Það hefur verið mikið
fjaðrafok yfir komandi
forsetakosningum Banda-
r í k j a n n a . Þ a ð
er útlit fyrir að
Hillary Clinton, fyrr-
verandi forsetafrú, verði
framboðsefni demókrata en enn
er óljóst hver tekur slaginn fyrir
repúblikana. Donald Trump hefur
haldið forskoti á mótframbjóðend-
ur sína innan Repúblikanaflokksins
en Ted Cruz, sem hefur verið
að auka fylgi sitt, nálgast
hann óðfluga. Donal
Trump hefur valdið
miklu fjaðrafoki með
u m m æ l u m s í n u m
um innflytjendamál
í Bandaríkjunum og
hefur meðal annars
látið út úr sér að
hann vilji meina
múslimum inn-
göngu í Banda-
ríkin.
Það hefur verið vinsælt í lok árs að skoða það sem hefur
staðið upp úr á liðnu ári en blaðamenn Fréttablaðsins horfa
fram í tímann og skoða hvað næsta ár ber í skauti sér.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r116 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð