Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 156

Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 156
Árið 2015 var klárlega ár rappsins og það var ekki hægt að horfa fram hjá því, þann­ig að þetta er rapp en samt mjög poppað og því eiga allir að geta verið með,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., um lokalagið í Ára­ mótaskaupinu í ár. Lagið ber titilinn Allir með og nýtur Steindi liðsinnis Stuðmanns­ ins og sjóarans síkáta  Egils Ólafs­ sonar, en þótt þeir tveir séu að vissu leyti ólíkir listamenn gekk sam­ starfið mjög vel. „Ég hef unnið með Steinda áður, hann er skemmtilegur og er alveg sér á parti. Ég er ánægður með að þetta hafi verið borið undir mig,“ segir Egill um Steinda. „Það var mjög mikill heiður að vinna með Agli og er hann að mínu mati einn flottasti listamaður þjóðarinnar,“ bætir Steindi við. Lagið er samið af StopWaitGo, en tríóið samdi jafnframt tvö vinsælustu lögin í undankeppni Eurovision á árinu. Teymið hefur verið Steinda innan handar með mörg hans vin­ sælustu laga og má þar nefna lögin Djamm í kvöld og Dansa það af mér. „Þegar við vorum uppi í stúdíói að búa til lagið og textinn var að fæðast, fórum við að kasta fram nöfnum um hvaða  rödd gæti hentað viðlaginu og þegar nafn Egils kom upp þá varð ekki aftur snúið. Þetta er lokalag skaupsins og það þarf að vera stórt og það er enginn stærri en Egill Ólafs,“ segir Steindi. Egill fer einnig með stórt hlutverk í myndbandinu. „Ég held að fólki muni hafa mjög gaman af því að sjá Egil á skjánum á gamlárs­ kvöld, enda algjör stórleikari.“ Egill segist halda að lagið geti vakið mikla lukku. „Ég hef aldrei haft nef fyrir hit­lögum en mér finnst þetta vera algjör eyrna­ ormur. Það er mjög söngvænt og dansvænt heyrist mér og textinn er á vissan hátt hvetjandi, það er að segja ef maður slítur hann úr sam­ hengi við raunverulegt innihald,“ segir Egill. Spurður út í hvort Stuð­ mannablær sé yfir laginu segir Egill svo ekki vera. „Nei, þetta er annars eðlis. Steindi rappar þarna og það hefur nú ekki verið mikið um slíkt hjá Stuðmönnum. Að vísu rappaði Flosi Ólafsson í laginu Fiddi báts­ maður og Birna sprettur, það má því alveg segja að Steindi sé ákveðin framlenging af Flosa. Hann er ef til vill Flosi dagsins í dag,“ bætir Egill við léttur í lund. Steindi er gamall rappari og því ekki alls ókunnur að láta rímurnar flæða. Steindi, sem söng lokalag Ára­ mótaskaupsins árið 2013 ásamt Baggalútsmönnum, semur texta lagsins. „Þegar ég sem texta þá er það fyrsta sem ég geri að ákveða viðfangsefni í laginu og svo sem ég brandarana og söguna og enda svo á textanum,“ segir Steindi, sem vildi ekki gefa upp hvað lagið fjallar um að svo stöddu en vonar að fólki taki vel í það og allir verði með. Eins og fyrr segir er lagið frum­ samið og er Steindi alveg á því að lokalög í Áramótaskaupinu eigi að vera frumsamin. „Persónulega finnst mér lokalagið eiga að vera frumsamið, mér finnst það eiga að vera skylda. Mér finnst ekki nógu mikill metnaður í því að þýða bara einhvern texta fyrir lokalagið en á móti getur verið hættulegt að koma með frumsamið lag sem enginn hefur heyrt og kannast því ekki við og þarf því að vera mjög grípandi og ná áhorfendunum strax. Við höfum legið yfir laginu i mjög langan tíma og vonum að það heppnist,“ segir Steindi um lagið. Tökur á Skaupinu gengu mjög vel en Steindi segir að mikill hraði hafi verið í tökunum. „Við lögðum upp með að gera skemmtiþátt fyrir alla fjölskylduna og reyndum því að halda pólitík í lágmarki. Það hefur rosalega margt gengið á síðustu daga og það þurfti að hoppa út í nokkur pikköppskot til að fullkomna skaupið,“ segir Steindi. „Ég bið vin­ samlegast pólitíkusa um að hætta að skíta á sig og listamenn að bíða með alla listræna gjörninga fram í janúar því búið er að læsa Skaupinu,“ bætir Steindi við og hlær. Kristófer Dignus leikstýrir Skaup­ inu í ár en hann leikstýrði Skaupinu einnig árið 2013. Handritshöfund­ arnir eru þau Guðjón Davíð Karls­ son leikari, Katla Margrét Þor­ steinsdóttir leikkona, Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, og Steindi. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 12.12.15- 19.12.15 StaLdrar BieBer við? Líkt og flestir vita heldur popp- prinsinn Justin Bieber tónleika hér á landi þann 9. sept- ember næstkomandi. Tónleikarnir verða haldnir í Kórnum í Kópavogi og eru líkur taldar á því að Bieber muni dvelja hér á landi í nokkra daga en hann er þekktur fyrir að leggja mikið upp úr því að æfa vel fyrir tónleika. Skreytir í anda Stjörnu- StríðS Hólm- fríður Helga Sigurðar- dóttir heldur upp á þemajól í fyrsta skipti ásamt fjölskyldu sinni. Allt jóla- skraut fjölskyldunnar er í anda Stjörnustríðs en nýjasta myndin var einmitt frumsýnd á fimmtudaginn. Samningur við Sony Tónlistarmaðurinn Axel Flóvent gerði á dögunum samning við Sony og mun fyrirtækið sjá um að gefa út EP-plötu tónlistarmannsins, Forest Fires, í Evrópu. Stuttmyndin ungar Leikkonan og hand- ritshöf- undurinn Nanna Kristín Magnús- dóttir hlaut á dögunum framleiðslustyrk fyrir nýrri stuttmynd sinni, Ungar, en stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið. egill og Steindi leiða saman hesta sína Einn af hápunktum ársins er þegar lokalag Áramótaskaupsins er flutt en þeir egill Ólafsson og Steindi jr. syngja lagið í ár. Steindi Jr. og Egill Ólafsson flytja lokalag áramótaskaupsins í ár. Hér eru þeir alsælir við tökur á Skaupinu. Mjúkur pakki eða gjafabréf Opið virka daga fram að jólum kl. 11 – 20. Opið laugardaginn 19.12. kl. 11 – 17. Opið sunnudaginn 20.12. kl. 12 – 16. Við aðstoðum þig við að finna gjöf handa dömunni þinni. Gjafabréf er einnig góð gjöf. Gjafabréfin okkar hafa engin tímatakmörk og má nota þau hvenær sem er (þ.m.t. á útsölum). Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Póstsendum GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK Á BÍÓSTÖÐINNI Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn. Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. 365.is | Sími 1817 BÍÓSTÖÐ IN ER Í SKEM MTI- PAKKAN UM Ég hef aLdrei haft nef fyrir hit-Lögum en mÉr finnSt þetta vera aLgjör eyrnaormur. Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r120 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.