Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 69
Aðalfundur N1 hf. Aðalfundur N1 hf. verður haldinn miðvikudaginn 16. mars 2016 klukkan 16.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Dagskrá fundarins 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur. 3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins. 4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2015. 5. Stjórnarkjör. 6. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma. 7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar. 8. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu félagsins. 9. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 10. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 11. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur a) Ársreikningur (liður 3) Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2015 verði samþykktur. b) Arðgreiðsla (liður 4) Stjórn leggur til við aðalfund að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð kr. 1.050.000.000 vegna rekstrarársins 2015 eða kr. 3,0 fyrir hverja eina krónu af nafnverði hlutafjár í félaginu. Arðurinn verður greiddur til hluthafa þann 7. apríl 2016. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 16. mars 2016 og arðleysisdagur því 17. mars 2016. Arðsréttindadagur er 18. mars 2016, sem þýðir að arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá N1 hf. hjá Verðbréfaskráningu Íslands í lok dags 18. mars 2016. c) Kjör endurskoðanda (liður 6) Stjórn leggur til að endurskoðunarfirmað Ernst & Young sjái áfram um endurskoðun á ársreikningi félagsins vegna rekstrarársins 2016. d) Þóknun til stjórnar (liður 7) Stjórn leggur til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs verði sem hér segir: Stjórnarformaður fái kr. 630.000 á mánuði Varaformaður stjórnar fái kr. 472.500 á mánuði Aðrir stjórnarmenn fái kr. 315.000 á mánuði Fulltrúar í starfskjaranefnd fái kr. 35.000 á mánuði og formaður starfskjaranefndar kr. 75.000 á mánuði Fulltrúar í endurskoðunarnefnd fái kr. 65.000 á mánuði og formaður endurskoðunarnefndar kr. 110.000 á mánuði e) Starfskjarastefna (liður 8) Stjórn leggur til að við starfskjarastefnu félagsins bætist eftirfarandi 7. gr. um skaðleysi stjórnar og framkvæmdastjórnar: „Félagið skal tryggja að á hverjum tíma sé í gildi starfsábyrgðartrygging er gildi fyrir stjórnarmenn og æðstu stjórnendur, bæði starfandi og fyrrverandi, vegna starfa þeirra í þágu félagsins. Félagið skal tryggja að stjórnarmönnum og æðstu stjórnendum sé haldið skaðlausum af kröfum sem á þá kunna að verða gerðar eða á þá kunna að falla vegna starfa fyrir félagið að svo miklu leyti sem ákvæði laga um hlutafélög, laga um gjaldþrot og meginreglur laga um saknæmi leyfa. Félagið greiðir tryggingariðgjald starfsábyrgðartryggingar og eðlilegan kostnað af málsvörn gagnvart kröfum eða rannsóknum af ofangreindum toga með fyrirvara um rétt til endurkröfu, komi síðar í ljós að viðkomandi hafi í umræddu tilviki af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum við félagið eða ákvæðum laga í starfi sínu fyrir það.“ Að öðru leyti er lagt til að starfskjarastefna félagsins verði óbreytt frá fyrra ári. f) Tillaga um breytingu á samþykktum (liður 9) Stjórn leggur til að breytt verði ákvæði 17. gr. samþykkta félagsins, samkvæmt 8. mgr., þannig að tekið verði upp nýtt ákvæði um að hluthafar eigi ávallt rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið. g) Kaup á eigin bréfum (liður 10) Félaginu er heimilt að kaupa eigin hluti sem nemur allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í samræmi við 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118. og 131. gr. sömu laga. Heimild þessi gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar. Aðrar upplýsingar Öll skjöl og tillögur sem lagðar verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9.00-16.00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 föstudaginn 11. mars 2016. Hluthafar eiga rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundar skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 2. mars 2016. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16.00 föstudaginn 11. mars 2016. Framboðum skal skila á skrifstofu N1 hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi, eða á netfangið hluthafar@n1.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 15.30 á aðalfundardegi. Stjórn N1 hf. Kjúklingabitar 4 kjúklingabringur eða -lundir 2 bollar grísk jógúrt 2 msk. hunang 2 msk. dijonsinnep ¼ tsk. sjávarsalt 2 ½ bolli kornfleks Hitið ofninn í 175°C. Skerið kjúklinga­ bringurnar í strimla. Hrærið saman grískri jógúrt, hunangi, salti og dijon­ sinnepi í stórri skál. Bætið kjúklingn­ um í skálina og blandið saman þannig að maríneringin hjúpi kjúklinginn. Setjið plastfilmu yfir kjúklinginn og geymið í ísskáp í 20 mínútur. Setjið helminginn af kornfleksinu í poka og myljið. Setjið helminginn af kjúklingnum í pokann og hristið hann svo að kornfleksið hjúpi kjúklinginn. Raðið kjúklingnum á bökunarpappírs­ klædda ofnplötu og spreyið smá af olíu yfir. Bakið í 20­25 mínútur. Bakaðar sætar kartöflufranskar 2-4 stórar sætar kartöflur 1-2 msk. maizena-mjöl 1-2 ólífuolía Sjávarsaltkrydd eftir smekk Hitið ofninn í 210°C. Setjið bökunar­ pappír á ofnplötu og spreyið smá olíu á hann. Afhýðið kartöflurnar, skerið í strimla á stærð við franskar kartöflur og setjið í stóra skál. Stráið maizena­ mjöli yfir og hristið vel svo að mjölið myndi létta húð um kartöflurnar. Setj­ ið ólífuolíu yfir og hristið aftur þannig að kartöflurnar fái létta olíuhúð. Bakið kartöflurnar í 15 mín., snúið þeim og bakið áfram í 15 mín. til viðbótar. Hunangssinnepssósa ¼ bolli majónes ¼ bolli dijonsinnep 2 msk. hunang Hrærið majónesi og sinnepi vel saman. Bætið hunangi saman við og hrærið aftur þar til allt hefur blandast vel. uppskrift fengin af ljufmeti.com Kjúklingabitar og sætar kartöflur með sinnepssósu „Maður gleymir stundum hvað Ísland er fallegt á veturna. Þessi mynd er tekin í Hvalfirðinum í vetur.“ L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 25Þ R i ð J U D A G U R 2 3 . f e B R ú A R 2 0 1 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.