Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 2
Mér finnst hann vera að segja hið augljósa. Illugi Gunnarsson menntamála­ ráðherra Í dag er áfram útlit fyrir hæglætisveður á öllu landinu. Bjartviðri víðast hvar, en þó útlit fyrir einhver snjókorn við ströndina, bæði vestan til og norðan. Áfram er frost í kortunum, allt að 15 gráður inn til landsins norðaustan til en hlýnar lítið eitt vestan til um tíma yfir daginn. Sjá SÍðu 18 Veður Fjör á frumsýningu LögregLumáL Landspítalinn hefur verið kærður til lögreglu fyrir leka á persónuupplýsingum víetnömsku hjónanna Thuy Nguyen og Hao Van Tio. Fréttablaðið greindi frá því í októ- ber að Útlendingastofnun hefði farið fram á lögreglurannsókn á persónu- högum hjónanna vegna gruns um málamyndahjónaband. Á meðan veitti Útlendingastofnun Thuy ekki dvalarleyfi. Eiginmaður hennar hefur alist hér upp frá barnsaldri. Í bréfi Útlendingastofnunar til lög- reglu kom fram að samkvæmt upp- lýsingum frá Landspítalanum væri konan barnaleg og maðurinn ófram- færinn. Eina þjónustan sem hjónin höfðu nýtt sér frá spítalanum var við fæðingu dóttur þeirra sem kom í heim- inn þremur mánuðum áður en beiðni Útlendingastofnunar barst til lögreglu. Í október sagði Skúli Á. Sigurðsson, verkefnastjóri hælismála hjá Útlend- ingastofnun, um upplýsingarnar frá Landspítalanum: „Við fengum upp- hringingu frá Landspítalanum. Þetta kom bara í símtali og það liggur fyrir í dagbókarfærslu í okkar innri kerfum.“ Þá upplýsti Fréttablaðið að símtalið hefði komið frá félagsráðgjafa á Land- spítalanum. Landspítalinn mun segja að engin gögn innan spítalans styðji að hringt hafi verið í Útlendingastofnun með fyrrgreindar lýsingar á hjónunum. Björg Valgeirsdóttir, lögmaður hjónanna, segir málið fyrst og fremst vera kært til lögreglu til að fá formlega rannsókn á því hvaðan upplýsingarnar bárust til Útlendingastofnunar. Málið hafði áður verið til skoðunar hjá Pers- ónuvernd. „Landspítalinn frábiður sér alla ábyrgð í svörum til Persónuverndar og þá er ekki annað hægt en að kæra og gera þar með kröfu um að málið verði rannsakað með formlegum hætti.“ Björg segir það skýrt í svörum til Persónuverndar að Landspítalinn vilji ekki kannast við málið. „Það eru engar skráningar um þetta og starfs- maðurinn sem um ræðir neitar,“ segir Björg sem kveður viðkomandi starfs- mann hættan hjá spítalanum. Eftir umfjöllun fjölmiðla um málið fékk Thuy Nguyen dvalarleyfi hér á landi. snaeros@frettabladid.is Kæra leka um sig til að fá formlega rannsókn Landspítalinn neitar því að persónuupplýsingum um víetnömsk hjón hafi verið lekið þaðan til Útlendingastofnunar. Hjónin hafa nú kært hinn meinta leka til lögreglunnar. Það er gert til að fá formlega rannsókn, að sögn lögmanns þeirra. menntamáL „Ég held að menn mis- skilji forsætisráðherra. Mér finnst hann vera að segja hið augljósa. Það þarf að tryggja nægt fjármagn fyrir háskólastarfsemi, hvort sem er úti á landi eða í Reykjavík,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Vísar Illugi þar til ummæla Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um að ákvörðun Háskóla Íslands um að hætta með íþróttakennaranám á Laugarvatni muni „væntanlega kalla á að fjárveit- ingum verði í auknum mæli beint til skóla á landsbyggðinni á þeirra eigin forsendum“. Ummæli forsætisráðherra vöktu nokkra reiði. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði, sagði þau hótanir og minna á stjórnarfar í alræðisríkjum. Þá sagði Magnús Karl Magnússon, prófessor í læknadeild, forsætisráðherrann hóta að svelta háskóla á höfuðborgarsvæðinu. Illugi segir fráleitt að halda því fram að forsætisráðherra sýni alræðistil- burði eða standi í hótunum. „Það sem forsætisráðherra bendir á er að háskólakerfið er undirfjár- magnað. Ef við viljum halda úti starf- semi úti á landi, og það viljum við, þá þarf að tryggja fjármagn til að það sé hægt,“ segir Illugi og bendir á að fyrir liggi stefnumótun á vegum Vísinda- og tækniráðs um að auka fjármagn til háskólanna. Háskóli Íslands hafi sjálf- stæði samkvæmt lögum og taki sínar ákvarðanir. „Háskólinn hefur sjálfur bent á að það voru ekki nógu margir nemendur til að halda úti þessu námi,“ segir menntamálaráðherra. – þea Illugi telur Sigmund misskilinn ViðSkipti Allir hluthafar í Bakka- vör Group munu fá sent kauptil- boð í hluti sína á næstu dögum. Tilboð þessa efnis er auglýst í dag- blöðunum í dag. Um 1,5 prósent af hlutafé í Bakkavör Group eru í eigu 2.800 íslenskra hluthafa og nemur heildarvirði þeirra um 900 milljónum. Tilboðið er í breskum pundum en samsvarar um 500 krónum á hlut. Þetta er hið sama og greitt var í janúar til íslenskra lífeyrissjóða og BG12, þegar 50,1 prósents hlutur í Bakkavör Group var seldur. Tilboðið er frá Bakkavör Group og Bakk Al Holdings Limited, sem er félag í eigu sjóða í stýringu hjá Baupost og bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona, stofnenda Bakkavarar. – jhh Bræður bjóða í hlut allra hinna Svandís Dóra Einarsdóttir, Snorri Engilbertsson, Hafdís Helga Helgadóttir og Hilmir Snær Guðnason, sem fara með helstu hlutverk í kvikmyndinni Fyrir framan annað fólk, voru mætt ásamt leikstjóranum Óskari Jónassyni á frumsýningu myndarinnar í Háskólabíói í gær. Myndin fjallar um hlé- dræga auglýsingateiknarann Húbert. Snorri fer með aðalhlutverkið. Fréttablaðið/Vilhelm thi thuy Nguyen og hao Van Do ásamt dóttur sinni sem fæddist á Íslandi. Fyrir það greiddu þau háa fjárhæð því thuy hafði ekki dvalarleyfi. Fréttablaðið/Vilhelm Landspítalinn frábiður sér alla ábyrgð í svörum til Persónu- verndar og þá er ekki annað hægt en að kæra og gera þar með kröfu um að málið verði rannsakað með formlegum hætti. Björg Valgeirsdóttir, lögmaður Thuy Nguyen og Hao Van Tio 2 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.