Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 42
Snæbjörn Ragnarsson, samfélags
miðlafulltrúi og tónlistarmaður,
betur þekktur sem Bibbi í Skálm
öld, fermdist í Húsavíkurkirkju á
hvítasunnu árið 1992. Hann segir
fermingardaginn ekki vera eftir
minnilegan í stóra samhenginu.
Af hverju fermdist þú? Ég var ekki
í skólanum þegar við vorum spurð
hvort við vildum fermast (ef það
var nokkurn tímann gert) svo ég var
einhvern veginn sjálfkrafa kominn
í ferlið. Ég gerði bara eins og hinir
enda of ungur og bitlaus til að
taka sjálfstæðar ákvarðanir
án hvatningar. Og svo fékk
ég gjafir og peninga.
Hvernig var fermingar-
fræðslan? Kjánaleg og
barnaleg. Ég man að ég
reyndi framan af að taka
þessu eins og hverju
öðru námi, kannski
meira eins og sögu
kennslu eða slíku.
Sérann reyndi
hins vegar frá
upphafi að segja
okkur að þetta
væri allt satt. Það
var nú asnalegt. Ég
man ekki eftir því
að þarna hafi í raun
neitt komið fram
annað en órökstutt
skrum og skoðanaof
beldi, svona eftir á að
hyggja. Siðferðisleg
ir hlutir og það sem kannski mætti
taka gott með sér úr skipulögðum
trúarbrögðum var skilið eftir. Full
orðið fólk að heilaþvo börn.
Hvernig var fermingin? Ógeðslega
löng. Hitastigið í kirkjunni var
svo ótrúlega hátt að meðbörn mín
féllu sum hver í yfirlið, og nú er ég
ekki að ýkja. Ég man að ég var ansi
mikið stressaður, og við sennilega
flest. Það var nú enn eitt ruglið, að
spana „heilagt“ stress upp í öllum.
En þetta var svo annars bara ein af
þessum allt of löngu og tilgerðar
legu athöfnum kirkjunnar. Búning
ar og allt.
Hvernig var veislan? Veislan
var heima hjá okkur á Húsa
vík, sirka fimmtíu manns og
mjög vel mannað man ég. Ég
hefði nú ekki munað það
nema af myndum og
eftir móður minni, að
í boði voru smárétt
ir og tertur. Alvöru,
íslenskt kvenfélags
borð af besta tagi
sýnist mér.
Var þetta eftirminni-
legur dagur? Nei, ekki
í stóra samhenginu.
En þetta er auðvitað í
eina skiptið sem ég hef
fermst. Það fær daginn
aðeins til að standa upp
úr.
Í hvernig fötum varstu?
Ég var að sjálfsögðu
í hvíta kirtlinum í kirkjunni, en
annars í rauðum ullarjakka. Alveg
Legorauðum og allt annað en pass
ífum. Svo bara svörtum buxum og
hvítri skyrtu, með svart bindi og
í svörtum rúskinnsskóm. Hef oft
litið kjánalegar út en þetta. Oft.
Hvað fékkstu í fermingargjöf? Pen
inga og orðabækur og Passíusálma
og penna og alls konar svoleiðis
óeftirminnilegt. Eina gjöfin sem
ég man virkilega eftir var frá for
eldrum mínum og fleira nærfólki.
Svartur Ibanezrafmagnsgítar sem
ég á enn í dag. Þvílík uppfærsla
sem það var fyrir þungarokkið,
sem sérann sagði okkur einmitt að
væri frá djöflinum komið. Feis.
Myndir þú fermast í dag? Nei.
Aldrei. Vegna þess að ég er full
orðinn og þyrði að standa með
sjálfum mér og skoðunum mínum.
Skipulögð trúarbrögð eru úrelt þar
sem vísindin hafa fyrir löngu varp
að ljósi á það sem eitt sinn var óút
skýranlegt. Það er kjánalegt í besta
falli og aðför gegn sjálfstæðri hugs
un að gera ráð fyrir því að skipuleg
trú sé eðlilegt ástand og þátttaka í
henni hverju mannsbarni sjálfsagt.
Ég hljóma auðvitað eins og ég sé
bitur eftir að hafa fermst, en ég er
það alls ekki. Ég hefði samt viljað
vera eldri áður en þessi aðför fór
fram. Mér þætti gaman að sjá þjóð
kirkjuna hækka fermingaraldurinn
upp í átján ár. Sjáum hversu margir
fermast þá. liljabjork@365.is
Fékk rafmagnsgítar
Tónlistarmaðurinn Snæbjörn Ragnarsson myndi ekki fermast ef hann ætti kost á því
í dag. Hann gerði það þó á sínum tíma eins og allir hinir og fékk gjafir og peninga.
Bibbi með æskuvinum sínum, Villa og Kára Naglbítabræðrum. „Þeir bjuggu á Akur-
eyri á þessum tíma og ég á Húsavík. Við ólumst upp saman á Laugum í Reykjadal
en vorum nýaðskildir þarna. Við Villi erum jafnaldrar, Kári ári yngri.“
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt, fyrir flottar konur
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Nýjar vorvörur streyma inn
Í S L E N S K H Ö N N U N
K Í K T U Á Ú R V A L I Ð Á 2 4 I C E L AND . I S
FeRmiNg Kynningarblað
23. febrúar 201626