Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 54
Í flestum veislunum voru skreyt­ ingar einfaldar og stílhreinar, yfir­ leitt var kertaskreyting, skreytt­ ur kassi undir kort til fermingar­ barnsins, gestabók og myndir af fermingarbarninu. Einnig var vin­ sælt að nota M&M­sælgæti til að skreyta, fánaveifur og alls kyns blóm. Mæðurnar töluðu um að hafa fengið hugmyndir að skreytingum á Pinterest en fermingarbörnin sjálf voru yfirleitt dugleg að segja sína skoðun á þeim líka. Origami áberandi Í fermingu Guðmundar Þórs Hann­ essonar voru þemalitirnir svart/ hvítt og túrkisblátt. „Hugmyndirn­ ar að skreytingunum komu víða að, til dæmis er YouTube og Pinterest ómissandi,“ segir Marsibil Brák Vignisdóttir, móðir Guðmundar. „Ég reyndi bara að hafa skreyt­ ingarnar karlmannlegar, því oft finnst mér fermingarskreyting­ ar svo stelpulegar, líka hjá strák­ unum. Þannig að fiðrildi, rósir og þess háttar urðu ekki fyrir valinu. Ég byrjaði strax eftir áramót að gera origami­skrautið og viða að mér efni og borðbúnaði. Origami­ pappírsskreytingarnar voru meðal annars úr blöðum úr gamalli bók og þær voru svo hengdar í loftið og dreift á borðin. Fermingarkert­ ið og gestabókin eru frá Karmel­ systrum í Hafnarfirði og svo mál­ aði ég hilluna sem er undir kertinu í svörtu og túrkis.“ Stílhreinar og einfaldar Fermingarbarnið Amalía Sif Jes­ sen og móðir hennar, Berglind Þórðardóttir, vildu hafa skreyting­ arnar líflegar, skemmtilegar og í uppáhaldslitunum hennar Amalíu sem eru blár og túrkis. „Við lögðum upp með að hafa skreytingarnar einfaldar, stíl­ hreinar og án þess að þurfa að kosta miklu til. Á borðunum vorum við með krukkur með lituðu vatni, fallegum borða og flotkerti. Til að blanda vatnið notuðum við túrkis­ bláan matarlit og blönduðum í nokkrar könnur með mismörg­ um dropum af lit, þannig fengum við mismunandi tóna. Fermingar­ kertið var hefðbundið kerti vafið með borða og skreytt með krossi,“ segir Berglind. Kristín, amma Amalíu, gerði servéttublóm og svo var merkt M&M í þemalitunum notað á kransakökuna og á borðin en á þeim var ýmist nafn Amalíu, kross eða mynd af fermingarbarninu. „Litla fánalengju settum við á kökuborðið, til að gera hana prent­ uðum við litina á blöð og klippt­ um út í þríhyrninga sem við límd­ um á band með límbandi. Á borð­ unum var döðlugott pakkað inn í gjafapappír, eitt fyrir hvern gest og gestabókin var gerð úr Cheer­ ios­kössum og scrap­pappír.“ Flugvélar til að skreyta Fermingarbarnið Sigurður Ernir Axelsson leyfði mömmu sinni, Lauf­ eyju Sigurðardóttur, alveg að ráða skreytingunum í veislunni hans. „Bláir litir voru mest áberandi ásamt hvítum og mildum pastellit­ um. Ég notaði mikið sem ég átti til heima, alls konar krukkur sem ég skreytti og setti blóm í, ég prentaði út myndir úr fermingarmyndatök­ unni og setti í ramma, prentaði líka út fánalengjur með nafninu hans á til að gera salinn aðeins persónu­ legri. Ég var með hvíta og gula tú­ lipana á öllum borðum í alls konar krukkum. Drengurinn er mikill flugáhugamaður, þannig að flugvél­ ar fengu að vera með í skreyting­ um,“ lýsir Laufey. Hún segir mikið af skreytingun­ um hafa verið gert fyrirfram og að hún hafi dundað við þær í einhvern tíma fyrir daginn sjálfan. liljabjork@365.is Fallega skreyttar fermingarveislur Mæður fermingarbarna virðast sjá að mestu leyti um skreytingarnar í fermingarveisluna ef taka má mið af þessum þremur veislum barna sem fermdust í fyrra. Í þeim flestum er lagt upp með að láta persónueinkenni fermingarbarnsins eða áhugamál þess skína í gegn. Sigurður Ernir er mikill flugáhugamaður, þannig að flugvélar fengu að vera með í skreytingum í veislunni hans ásamt fermingarmyndum í ramma og á kerti. Marsibil setti lítið batteríljós undir gamlan öskubakka og lét lýsa upp vasa hjá gestbókinni í veislu Guðmundar. Á borðunum í fermingu Amalíu voru krukkur með lituðu vatni sem var blandað með túrkísbláum matarlit, mismörgum dropar af lit í hverri könnu. Sama var gert með blómaskreytinguna en þá var gerviblóm, sandur, litað vatn og flotkerti sett í stóran vasa. Túrkisbláa límonaðið sló svo í gegn. Móðir Guð- mundar Þórs málaði hilluna sem er undir kertinu í svörtu og túrkis, sem voru þemalitir veislunnar. KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur MacBook Air 13" Þunn og létt með rafhlöðu sem dugar daginn Frá 199.990 kr. MacBook Pro Retina 13" Alvöru hraði í nettri og léttri hönnun Ótrúleg skjáskerpa Frá 264.990 kr. Mac skólabækurnar fást í iStore Kringlunni 10 heppnir sem versla frá 1. mars til 15. maí vinna miða á Justin Bieber. FErMinG Kynningarblað 23. febrúar 201638
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.