Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 4
SlyS Helgafell, skip Samskipa, missti um tíu gáma í sjóinn suðvestur af Fær- eyjum. Skipið fékk á sig brotsjó þannig að gámarnir féllu fyrir borð. Skipið var á leið til Englands. Að sögn Pálmars Óla Magnússonar, for- stjóra Samskipa, var ákveðið að skipið færi til Færeyja til að fjarlægja gáma sem höfðu losnað. Enn er ekki ljóst hvert innihald gámanna er, né hversu mikið tjónið er. „Við munum nú upplýsa þá við- skiptavini sem áttu vörur í þessum gámum og síðan fer það í ferli,“ sagði Pálmar. – þv Gámar í sjóinn við Færeyjar Orkumál Eftirspurn eftir raforku eykst mikið og Landsvirkjun getur ekki annað heildareftirspurn iðn- aðar eins og sakir standa. Þetta kom fram í máli Harðar Arnars- sonar, forstjóra Landsvirkjunar, á uppgjörsfundi sem fram fór í gærmorgun. Hann sagði að eftir- spurnin væri meiri en hefði sést áður á Íslandi. Hörður sagði að þessi mikla eftir- spurn væri mjög sérstök í því efna- hagsumhverfi sem ríkir í heiminum í dag. Almennt væri lítið um fjár- festingar og orkuverð í heiminum væri lágt. „Þetta staðfestir alveg sam- keppnishæfni okkar. Sumir vilja halda það að við séum að verð- leggja okkur of hátt. En þegar staðan er þannig að eftirspurnin er meiri en framboðið þá myndu flest markaðslögmál segja að við værum frekar að verðleggja okkur of lágt,“ sagði hann. Hörður benti á að tveir nýir kaupendur væru að koma inn í viðskiptavinahópinn, annars vegar United Silicon í Helguvík og hins vegar PCC á Bakka. Þá sé uppbygg- ing í gagnaverum mikil viðbót en sala á markaðnum til gagnavera er nú í heild 30 megavött á ári. „Síðan er vöxtur í almenna markaðnum og að mati Orkustofnunar er sá vöxtur um sex til tólf megavött á ári,“ sagði Hörður. Það væri því fjölbreytt eftir spurn frá litlum og meðal stórum fyrirtækjum Hörður sagði að verið væri að mæta aukinni eftirspurn með þremur nýjum virkjanafram- kvæmdum; Búðarhálsvirkjun, Þeistareykjavirkjun og stækkun Búrfellsvirkjunar. „Við myndum gjarnan vilja að fleiri væru að byggja virkjanir á Íslandi. En frá árinu 2008 erum við eina fyrirtækið sem hefur byggt eitthvað upp. Það væri mjög gott fyrir markaðinn ef fleiri væru að styðja við eftirspurn- ina.“ Hörður segir unnið að því að endursemja við viðskiptavini. Þar séu samningar við Elkem á Íslandi og Norðurál sem þurfi að endur- Forstjórinn segir Landsvirkjun bjóða gott verð á raforku Landsvirkjun annar ekki spurn eftir raforku, segir forstjórinn. Segir fleiri aðila en Landsvirkjun þurfa að mæta eftirspurninni. Markmiðið að endursemja við Elkem og Norðurál en aðrir kaupendur séu tiltækir. DANmÖrk Tilkynningum til lög- reglunnar um netsvindl í Danmörku fjölgaði úr 4.992 árið 2014 í 10.808 árið 21015. Jótlandspósturinn hefur eftir öryggissérfræðingi að netsvindl sé mun skipulagðara en áður þegar menn fengu tölvupóst um að þeir hefðu erft milljarða einhvers ættarhöfðingja. Netsvindlinu má skipta í þrjá flokka. Í fyrsta lagi svokölluð Nígeríu- bréf þegar viðtakendur eru beðnir um kortaupplýsingar. Í öðru lagi innbrot í tölvu þar sem gögnum er breytt og eigandinn þvingaður til að greiða lausnargjald. Í þriðja lagi er hefðbund- inn netþjófnaður. Þá er upplýsingum stolið úr tölvu án þess að eigandi verði þess var. – ibs Netsvindl eykst í Danmörku Þegar staðan er þannig að eftir- spurnin er meiri en fram- boðið þá myndu flest mark- aðslögmál segja að við værum frekar að verðleggja okkur of lágt. Hörður Arnarsson Norðurál á Grundartanga. Hörður segir að ef ekki náist að semja muni aðrir aðilar líklegast kaupa orkuna til lengri tíma. Fréttablaðið/ErNir nýja fyrir árið 2019. Hörður segir að ef ekki náist að semja við Norðurál og Elkem verði líklegast umfram- framboð á raforku í einhvern tíma. „En þetta eru ekki mjög stórir samningar,“ segir Hörður. Hann bætir því við að það séu að koma aðilar inn á markaðinn sem kynnu að hafa áhuga á að kaupa þá orku sem yrði þá afgangs. „En ég endur- tek samt, að áformin eru skýr, að endursemja.“ jonhakon@frettabladid.is lÖgreglumál Lögreglan leitar enn óþekkts karlmanns sem grunaður er um að hafa beitt sömu konuna ofbeldi í tvígang, á mánudag í síð- ustu viku og sunnudagskvöld sex dögum síðar. Ofbeldið er alvarlegt og þurfti að færa konuna á sjúkra- hús vegna þess. Bæði tilvik áttu sér stað á heimili konunnar við Móa- barð í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins bankaði maðurinn upp á hjá konunni á mánudagsmorgni í síðustu viku og villti á sér heim- ildir. Hann sagðist þurfa að lesa af mælum fyrir orkufyrirtæki sem varð til þess að konan hleypti honum inn. Í kjölfarið beitti hann konuna harkalegu ofbeldi, meðal annars kynferðislegu. Á sunnudag nýtti maðurinn stutt færi á meðan konan var ein heima til að koma aftur og beita hana hörkulegu ofbeldi. Lögreglu hafa borist nokkrar ábendingar um fölleitan mann á miðjum aldri og meðalhæð en engin þeirra hefur borið árangur að sögn Árna Þórs Sigmundssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. – snæ Réðst á sömu konuna aftur á heimili í Hafnarfirði StjórNSýSlA Minjastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands verða sam- einuð í Þjóðminjastofnun. Verkefni laga um menningarminjar sem lúta að friðlýsingu húsa og mannvirkja, sem og afnám slíkrar friðlýsingar, færast til forsætisráðuneytisins. Þetta er lagt til í nýju lagafrumvarpi stýrihóps á vegum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Sagt er að allt að tíu prósenta hagræð- ing geti náðst innan tíu ára. Hópinn skipaði forsætisráðherra um tveimur mánuðum eftir að ráðuneytið kynnti tillögu að lagabreytingum sem fólu í sér að ráðherrann gæti tekið lönd og mannvirki eignarnámi og fengi rétt- indi til friðlýsingar. – bá Minjastofnanir í hagræðingu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Fréttablaðið/StEFáN Móabarð í Hafnarfirði er löng gata með fjölmörgum minni botnlangagötum. ábend- ingar nágranna um mannaferðir hafa ekki borið árangur. Fréttablaðið/aNtoN briNk 2 3 . f e b r ú A r 2 0 1 6 Þ r I Ð j u D A g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.