Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 10
Hjúkrunafræðingar segja
stuðningsmenn Clinton hafa
villt á sér heimildir
VEGNA TILBOÐS
til hluthafa í
BAKKAVOR GROUP LIMITED
Í samræmi við II. tl. 1. mgr. (c) 978. gr. breskra hlutafélagalaga frá
árinu 2006, hefur verið tilkynnt að Bakk AL Holdings Limited og
Bakkavor Group Limited er að gera tilboð í alla almenna hluti í
Bakkavor Group Limited.
Allir skilmálar tilboðsins (þ.m.t. upplýsingar um hvernig samþykkja
megi tilboðið) koma fram í dreibré til hluthafa sem dagsett er og
póstlagt í dag og meðfylgjandi því er einhliða afsal, undirritað af
kaupandanum og félaginu, ásamt skjali um samþykki afsalsins.
Sérhver hlutha sem samþykkir tilboðið á gildan hátt mun fá
£2,6909 fyrir hvern hlut.
Sækja má afrit af dreibrénu, einhliða afsalinu og samþykkisskjali-
nu til Bakkavor Foods Limited á Fiskislóð 31, 101 Reykjavík. Einnig
má skila undirrituðum eintökum í móttöku Kviku banka hf. ásamt
upplýsingum fyrir millifærslu. Nánari upplýsingar og öll gögn um
tilboðið má nna á heimaslóð félagsins: www.bakkavor.co.uk. Þá er
einnig hægt að hringja í síma 550-9700 til að fá nánari upplýsingar.
Tilboðið er gert öllum hluthöfum, þ.m.t. þeim sem mögulega hafa
ekki fengið dreibréð. Hægt verður að samþykkja tilboðið fram til
kl. 17:30 hinn 15. mars 2016.
Þessi tilkynning er ekki útgáfulýsing heldur auglýsing og hluthafar
ættu ekki að samþykkja tilboðið nema á grundvelli upplýsinga í
dreibrénu, einhliða afsalinu og samþykkisskjalinu.
22. febrúar 2016
Heilbrigðismál Sálfræðingur segir
um þrjátíu manns leita til sín á ári
vegna átkastaröskunar og gagnrýnir
ofgreiningar á matarfíkn. Segir hún að
minnsta kosti hundrað leita á hverju
ári beint til sálfræðinga.
Um hundrað manns leita til
átröskunarteymis Landspítalans á
ári hverju eins og kom fram í Frétta
blaðinu í gær. Þórdís Rúnarsdóttir
sálfræðingur sinnir átröskunarsjúkl
ingum á stofu. Hún segir að minnsta
kosti hundrað í viðbót leita beint til
sálfræðinga á ári.
„Ég fæ um það bil fjörutíu beiðnir
árlega sem koma fyrir utan tilvís
anir Landspítalans þannig að ég get
ímyndað mér að í það minnsta hund
rað leiti sér aðstoðar utan átröskunar
teymisins,“ segir Þórdís. Allt að fimm
mánaða bið er eftir meðferð á Land
spítalanum. „Sumir sjúklingar eru of
veikir til að vera sinnt inni á stofu og
þá vísa ég þeim á spítalann. Því finnst
mér mikilvægt að átröskunarteymið
sé styrkt og bið listum útrýmt.“
Helmingur þeirra sem leita til Þór
dísar þjáist af átkastaröskun sem ein
kennist af átköstum, en ekki uppköst
um eða að svelta sig. Átkastaröskun er
lítið meðhöndluð á spítalanum en er
mjög algeng og segir Þórdís sífellt fleiri
leita aðstoðar vegna hennar. Í flestum
tilfellum konur.
„Sumar hafa verið þybbnar alla
ævi og fengið skilaboð frá samfélag
inu um að það sé ekki í lagi. Gífurleg
áhersla á vigtina hefur farið illa í þær.
Til dæmis vigtun hjá skólahjúkrunar
fræðingi þegar þær voru börn. Þetta
eru kannski hraustar stúlkur í íþrótt
um með mikinn vöðvamassa en svo
hringja einhverjar viðvörunarbjöllur
í vigtun.“
Þórdís segir þessar konur ekki læra
að borða á heilbrigðan hátt. „Þær
hafa nammidaga á laugardögum
sem er í átkastastíl. Þær læra ekki
að borða hóflega, hlusta á magann,
tengjast líkamanum og vita hvenær
þær eru saddar.“
Þórdís segir marga rugla röskun
inni saman við matarfíkn en setur
spurningarmerki við greiningar
aðferðir og meðferð við henni sem
ákveðnir aðilar hafa boðið upp á. Þar
sé ekki um meðferð fagaðila að ræða.
„Fólk hefur notað öfgafullar
aðferðir eins og að vigta allan mat,
taka út ákveðnar fæðutegundir,
tyggja marga pakka af sykurlausu
tyggjói eða jafnvel tyggja mat og
spýta honum út. Þetta er strangt
prógramm sem fólk springur á og þá
kemur slæmt átkast í kjölfarið. Fólk
með átkastaröskun er að kljást við
sálrænan vanda sem hefur gífurleg
áhrif á lífsgæði þess. Það þarf aðstoð
sálfræðings til að vinna úr þeim
málum.“ erlabjorg@frettabladid.is
Átkastaröskun er ekki
það sama og matarfíkn
David Cameron gerði óspart grín að Boris Johnson, borgarstjóra í London, fyrir að vilja hafna aðild í von um að ná fram
enn betri samningum. NorDiCphotos/AFp
bretland David Cameron, forsætis
ráðherra Bretlands, hvetur Breta til
þess að kjósa áframhaldandi aðild
að Evrópusambandinu. Þjóðar
atkvæðagreiðsla um breytingar á
aðildarsamningnum verður haldin í
Bretlandi 23. júní næstkomandi.
Cameron hélt þrumuræðu á
breska þinginu í gær þar sem hann
stærði sig af því að hafa fengið Evr
ópusambandið til að fallast á allar
helstu kröfur sínar.
Hann hefði náð því fram að Bret
land hafi skýra sérstöðu innan Evr
ópusambandsins. Hagsmunir Breta
gagnvart evrusvæðinu hefðu verið
tryggðir og Bretar yrðu til fram
búðar undanþegnir öllum kröfum af
hálfu ESB um „æ nánara samband“,
sem fælu í sér aukin yfirráð Brussel
stjórnarinnar yfir málefnum Bret
lands.
Jafnframt skaut Cameron föstum
skotum að flokksbróður sínum, Boris
Johnson, sem bæði er þingmaður
og borgarstjóri í London. Boris vill
að Bretar hafni samningnum, sem
Cameron hefur gert við Evrópusam
bandið, í von um að hægt verði að ná
fram betri samningi.
„Við ættum að hafa það á hreinu
að þetta verður endanleg ákvörð
un,“ sagði Cameron. Það væri ekkert
hægt að kjósa gegn aðild í von um að
samið yrði upp á nýtt og þá efnt til
þjóðaratkvæðagreiðslu á ný.
„Ég hef því miður þekkt nokkur
hjón sem hafa byrjað á skilnaðar
ferli,“ hélt Cameron áfram, og vísaði
þar augljóslega til Johnsons. „En ég
þekki engin sem hafa byrjað á skiln
aðarferli í þeim tilgangi að endurnýja
hjúskaparheit sín.“
Cameron sagðist sannfærður um
að Bretlandi væri betur borgið innan
Evrópusambandsins en utan. Mikil
óvissa myndi fylgja því að segja skilið
við Evrópusambandið. Það væri ekk
ert annað en „stökk út í myrkrið“.
Með samningnum við Bretland
hafi Evrópusambandið því í raun
staðfest „tveggja hraða“ fyrirkomu
lag, þannig að sum ríki Evrópusam
bandsins geti tekið þátt í öllu sem til
heyrir hinu „æ nánara sambandi“, en
önnur geti staðið utan við evrusam
starfið og fleiri þætti án þess þó að
missa áhrif sín innan sambandsins.
Þetta þýði að Bretland geti nú notið
hins „besta úr báðum heimum“, bæði
verið innan Evrópusambandsins, og
þar með í „bílstjórasætinu“, en um
leið undanskilið samstarfi á þeim
sviðum, sem henta ekki Bretlandi.
gudsteinn@frettabladid.is
Cameron stærir sig af
því að hafa beygt ESB
Bretar kjósa um aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu 23. júní. David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands, segist hafa náð fram öllum helstu kröfum sínum um
breytingar á aðildarsamningnum. Úrsögn úr ESB væri stökk út í myrkrið.
Við ættum að hafa
það á hreinu að
þetta verður endanleg
ákvörðun.
David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands
Þetta eru kannski
hraustar stúlkur í
íþróttum með mikinn vöðva-
massa en svo hringja ein-
hverjar viðvörunarbjöllur í
vigtun.
Þórdís Rúnarsdóttir
sálfræðingur
bandaríkin Landssamband hjúkr
unarfræðinga í Bandaríkjunum skor
aði í gær á framboð Bernie Sanders
til forseta í forkosningum demókrata
að fara fram á að kosningaeftirlits
menn frá Sameinuðu þjóðunum
vöktuðu kjörstaði forkosninganna
til að koma í veg fyrir svindl.
Áskorun sambandsins, sem er
stærsta stéttarfélag hjúkrunarfræð
inga í landinu, er tilkomin eftir að
hópur stuðningsmanna andstæðings
Sanders, Hillary Clinton, mætti á
kjörstað í Nevada um helgina í rauð
um bolum, keimlíkum einkennis
klæðnaði sambandsins. Vakti þetta
reiði forsvarsmanna sambandsins,
sem hefur lýst yfir stuðningi við
Sanders. Vilja þeir meina að stuðn
ingsmenn Clinton reyni þar að villa
á sér heimildir.
Talsmaður sambandsins, Chuck
Idelson, sagði í samtali við frétta
miðla vestanhafs að þetta væri ekki
í fyrsta sinn sem framboð Clinton
gerðist sekt um slíkt. Segir hann að
um leið og meðlimir stéttarfélagsins
hafi bent fjölmiðlum á stuðnings
menn Clinton hafi þeir verið fljótir
að skipta í bláa boli, merkta fram
boði hennar.
Hjúkrunarfræðingar vilja eftirlit frá
Sameinuðu þjóðunum með kosningum
Landssamband hjúkrunarfræðinga skorar á Bernie sanders að krefjast kosninga-
eftirlits frá sameinuðu þjóðunum. NorDiCphotos/Getty
Clinton bar sigur úr býtum í for
kosningunum í Nevada. Hlaut hún
rúm 52 prósent atkvæða en Sanders
rúm 47. Næst verður kosið í Suður
Karólínu á laugardaginn.
– þea
2 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Þ r i ð J U d a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð