Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 2
Það sem menn eru
að sjá í dag er að stór
hluti BDSM-fólks upplifir
þetta sem part af sinni
kynverund. Það hefur ekkert
með það að gera hvað það
gerir inni í svefnherbergi eða
ekki.
Magnús Hákonarson,
formaður BDSM á íslandi
Lítils háttar éljabakki gengur upp að
landinu með éljum við ströndina, en áfram
úrkomulaust með norðurströndinni. Um
hádegi hvessir af suðaustri í skamma
stund, en síðdegis snýst í hæga vestlæga
átt með snjómuggu en áfram verður
hægviðri og léttskýjað um norðan- og
austanvert landið. Sjá Síðu 30
Veður Fokker skipt út
NorskIr
brjóstdropar
róar hósta,
dregur úr
sársauka
og losar um
í ennis- og
kinnholum.
daNskIr
brjóstdropar
mÝkir háls
og stillir
Þrálátan hósta.
Fást í næsta apóteki
Samfélag Á komandi ársþingi Sam-
takanna ’78 verður kosið um aðild
BDSM á Íslandi að samtökunum.
Vegna þessa verður í kvöld haldin
kynning á BDSM félaginu fyrir með-
limi Samtakanna ’78.
Magnús Hákonarson, formaður
BDSM á Íslandi, segir að kynningin
í kvöld verð nýtt til að útskýra af
hverju félagið vilji aðild að Samtök-
unum ’78. „Stutta svarið er að þetta
er partur af hinseginflórunni. Í Nor-
egi er landssamband BDSM-félaga
undir LLH, sem eru norsku hin-
seginsamtökin. Við erum í rauninni
að elta þau svolítið.“
Hann segir að aðild BDSM-félaga
að hinsegin-hópum sé stórflókið og
rammpólitískt mál. Fræðimenn séu
ekki sammála um hvað kynhneigð
sé og hversu mikið hún orsakist af
líffræðilegum þáttum eða félags-
mótun.
„Það sem menn eru að sjá í dag
er að stór hluti BDSM-fólks upplifir
þetta sem part af sinni kynverund.
Það hefur ekkert með það að gera
hvað það gerir inni í svefnherbergi
eða ekki. Það fólk er inni í skápnum
á nákvæmlega sama hátt og að
strögla í mjög svipaða veru með að
koma út út skápnum.“
Aðspurður hvort BDSM á Íslandi
vilji taka þátt í kynningarstarfi Sam-
takanna ’78 á meðal ungmenna
segir Magnús: „Það er einn stærsti
þátturinn í þessu. Gagnvart ung-
lingum sem eru að taka sín fyrstu
skref og átta sig á tilverunni og hafa
þessar tilhneigingar. Þeir eru oft í
vandræðum.“ Skilaboðin sem ung-
lingar fái í dag séu að þeir eigi að
vera bæði sterkir og sjálfstæðir.
„Við eigum ekki að níðast á öðrum
og ekki að níðast á okkur og það er
jafnrétti. En svo koma tilfinningar
sem stangast á við þetta og það truflar
marga. Það eru margir unglingar sem
eiga í vandræðum með þetta. Það
er rosalega svipað og hjá samkyn-
hneigðum og öllum hinum hinsegin
sem hugsa: „Af hverju er ég svona?“
Þegar við tölum um BDSM sem
kink eða krydd þá er eins og við
höfum val. En þetta er partur af fólki.
Það eru margir sem hafa alltaf verið
svona,“ segir Magnús.
snaeros@frettabladid.is
Vilja kynna BDSM
fyrir unglingum
Félag BDSM áhugafólks á Íslandi bíður eftir að félagsmenn Samtakanna ’78 kjósi
um aðild þeirra að samtökunum. Heimildir Fréttablaðsins herma að skiptar skoð-
anir séu um aðildina. Formaður segir BDSM-fólk þurfa að koma út úr skápnum.
Fyrsta Bombardier Q400 flugvél Flugfélags Íslands í lágflugi í gær fyrir ofan gamlan Fokker 50 sem stendur á Reykjavíkurflugvelli. Taka á tvær Q400-
vélar í notkun til viðbótar þessari. Þær koma í stað Fokker-véla félagsins. „Við erum mjög spennt fyrir nýju flugvélunum,“ segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Q400-vélarnar séu stærri, rýmri, nýrri og þægilegri en Fokker-vélarnar. Fréttablaðið/Vilhelm
bDSm á Íslandi er fræðslu- og hagsmunafélags bDSm-iðkenda. Félagið stendur
fyrir námskeiðum og heldur reglulega viðburði. Árið 2014 var félaginu neitað um
þátttöku í Gleðigöngunni. NorDicPhotoS/Getty
Bandaríkin Donald Trump er orðinn
harla sigurviss eftir velgengni sína í
þriðju forkosningum Repúblikana-
flokksins í röð. Hann vann öruggan
sigur í Nevada á þriðjudaginn, eftir að
hafa sigrað bæði í New Hampshire og
Suður-Karólínu.
„Þetta verða frábærir tveir mán-
uðir,“ sagði hann um framhaldið, en
næsti áfangi hjá repúblikönum verður
ofurþriðjudagurinn svonefndi, 1.
mars.
Þann dag verða forkosningar hjá
bæði repúblikönum og demókrötum
í 14 af 50 ríkjum Bandaríkjanna. Þetta
er stærsti kosningadagurinn þann-
ig að fastlega má reikna með því að
málin verði farin að skýrast verulega
eftir það.
Enn keppa fjórir repúblikanar við
Trump um að verða forsetaefni flokks-
ins. Þetta eru þeir Ted Cruz, Marco
Rubio, John Kasich og Ben Carson. Til
þessa hafa einungis Cruz og Rubio náð
árangri, sem mark er á takandi. – gb
Trump orðinn
sigurviss
ungverjaland Viktor Orban,
forsætisráðherra Ungverjalands,
hefur tilkynnt að haldin verði þjóð-
aratkvæðagreiðsla um flóttamanna-
kvóta Evrópusambandsins.
Orban segir Evrópusambandið
hafa misnotað völd sín með því að
þröngva aðildarríkjunum til að taka
við ákveðnum fjölda flóttafólks.
Evrópusambandið samþykkti
á síðasta ári að deila flóttafólki,
sem komið hefur til Evrópusam-
bandsins, niður á aðildarríkin eftir
ákveðnu kvótakerfi, þar sem tekið
er tillit til fólksfjölda, efnahags og
annarra þátta í hverju aðildarríki
fyrir sig.
Reyndar eru gerðar ákaflega litlar
kröfur til Ungverjalands í þessum
reglum Evrópusambandsins, því
tilgangurinn var að létta álaginu af
Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi
með því að láta önnur aðildarlönd
en þessi þrjú taka við þeim flótta-
mönnum, sem þangað hafa flykkst.
Á atkvæðaseðlinum í Ungverja-
landi verður þessi spurning: „Vilt
þú að Evrópusambandið ákveði
með bindandi hætti innflutning til
Ungverjalands á fólki, sem ekki er
ungverskir ríkisborgarar, jafnvel án
samþykkis þingsins?“ – gb
Lætur kjósa um
ákvarðanir ESB
StjórnSýSla Eftirlitsstofnun EFTA
(ESA) telur bindandi álit skattayfir-
valda á Íslandi, í Noregi og Liechten-
stein, sem stofnunin skoðaði, sam-
ræmast reglum EES-samningsins
um ríkisaðstoð. ESA tilkynnti í gær
að stofnunin hefði lokið rannsókn
sinni á bindandi áliti skattayfirvalda
í löndunum þremur.
Rannsóknina hóf ESA að eigin
frumkvæði samhliða rannsókn Fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambandsins
á bindandi áliti skattayfirvalda í aðild-
arríkjum Evrópusambandsins. – ih
ESA segir álit
skattayfirvalda
ekki ríkisaðstoð
2 5 . f e B r ú a r 2 0 1 6 f i m m t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð